Morgunblaðið - 20.09.2009, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 20.09.2009, Qupperneq 46
46 Menning MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2009 Íslendingum hefur oft verið álasað fyrir að vera lítil kvikmyndaþjóð, þó að vissulega hafi komið hér út myndir sem ná upp í hinn svo- kallaða heimsklassa. Í gamanmyndageiranum höfum við átt brokkgengar myndir sannarlega; en sumar þeirra ná að fanga á glæst- an hátt einhvern séríslenskan anda sem er algerlega óskiljanlegur útlendingum en fullkomlega eðlilegur mörlandanum. Hæstu hæðum í þeim efnum var náð með kvikmynd Stuðmanna, Með allt á hreinu, nokkuð sem flestir geta sammælst um, en þær eru fleiri smíðarnar sem sigla svipaðan sjó. Morgunblaðið gerði úttekt á málinu með tilstuðlan gengisvísitölunnar, nema hvað. Leikstjóri Íslenska draumsins, Róbert I. Douglas,hafði sigrað fjórum sinnum í samkeppni stuttmynda áður en hann tók til við að gera sína fyrstu mynd í fullri lengd. Ekki var svo bara að hann væri að gera sína fyrstu kvikmynd heldur var aðalleikarinn að leika í sinni fyrstu kvikmynd, en leiklist var honum áhugamál með- fram námi í Tækniskóla- num. Róbert hefur gert tvær myndir síðar sem báðar hafa fengið fína dóma; Maður eins og ég var frumsýnd 2002 og Strákarnir okkar 2005. Í slagnum um titilinn „Gaman-leikari Íslands“ er Eggert Þorleifsson með örugga forystu að öðrum ólöstuðum. Hann sló í gegn sem Dúddi í Með allt á hreinu og sem Þór Magnússon í Nýju lífi. Hann hefur síðan komið fram í fjölda gamanmynda: Dalalífi, Löggu- líf, Stellu í orlofi, Sódómu Reykjavík, Stuttum Frakka, Stellu í framboði og Í takt við tímann, aukin- heldur sem hann hefur oft leikið í áramótaskaupinu og er þekktur fyrir sviðsleik sinn. Eggert hefur líka leikið alvarlegri hlutverk, til að mynda í Skammdegi, Skyttunum og Foxtrot svo dæmi séu tekin. Sagan segir að fyrir sex árum hafi Sjón verið staddur á plussklæddum hótelbarí ítölskum smábæ þegar hugmyndin að Reykjavík Whale Watching Massacre kviknaði. Hann var þar staddur með félaga sínum Torsten Metalstein Hvas og sem þeir virtu fyrir sér fiskabúrið á hótelinu þar sem allir fiskar höfðu greinilega drepist fyrir löngu fóru þeir að velta því fyrir sér hvernig skreytingarnar á barnum litu út eins og mannabein og hvort ekki væri hætta á því að óstýrilátir gestir enduðu í pottunum inni í eldhúsi. Þegar annar þeirra nefndi gæða- myndina Texas Chainsaw Massacre var neistinn kominn og af því varð nafnið „Reykjavík Whale Watching Massacre“ til sem síðan gat af sér bíómynd. Tónlist spilar mikla rullu í gaman-myndum og oft meiri í þeim en öðrum myndum. Besta dæmið um það er náttúrlega frammistaða Stuðmanna í Með allt á hreinu, en einnig má nefna Ham í Sódómu Reykjavík, sem reyndar kemur ekki beinlínis fram í myndinni, Tappa tíkarrass í Nýju lífi, og nú síðast Doctor Spock sem setur heldur en ekki svip á Reykjavik Whale Watching Massacre. Plötur með kvikmyndatónlist hafa líka selst bráðvel sumar, en engin eins vel og Með allt á hreinu sem selst hefur í ríflega 35.000 eintökum. Gargandi snilld Sprenghlægileg Hlægileg Brosleg Geisp Níundi áratugurinn var óvenju gjöfullá gamanmyndir og þá voru frumsýndar nokkrar helstu gamanmyndir kvikmyndasögunnar (og líka nokkrar þær verstu): Með allt á hreinu 1982, Nýtt líf 1983, Dalalíf 1984, Hvítir mávar og Löggulíf 1985 og Stella í orlofi 1986. Aðsókn að myndunum var líka með mesta móti framan af, en svo dró úr aðsókninni og í kjölfarið fylgdu nokkur mögur ár. Næsta gamanmynd sem eitthvað kvað að kom svo ekki fyrr en 1992 þegar Sódóma Reykja- vík var frumsýnd. 2 6 Engin mynd hefur slegiðeins rækilega í gegn á Íslandi og Með allt á hreinu, þó ekki séu menn á eitt sáttir um það hver sé fjölsóttasta kvikmynd Íslandssögunnar (það fer víst eftir því hvaða kvarði er valinn). Samkvæmt upplýsingum frá Friðberti Pálssyni sem stýrði Háskólabíói og dreifikerfi þess á sínum tíma sáu 120.000 manns myndina í Háskólabíói og á þeim stöðum sem myndinni var dreift víða um land á fyrsta sýningarári hennar. Síðan hefur myndin oft verið sýnd og áætlað að a.m.k. 15.000 manns til viðbótar hafi séð hana, en einnig má minna á að myndin verður sýnd í Drive-in bíói RIFF. 1 4 5 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 3 Gengisvísitala gamanmynda 1 1982 Með allt á hreinu var ekki fyrsta gamanmyndin, en því má halda fram að hún hafi verið fyrsta myndin til að slá rækilega í gegn, enda er hún með mest sóttu myndum íslenskrar kvikmynda- sögu. Í kjölfar mynd-arinnar urðu Stuðmenn Hljómsveit Íslands og hafa haldið þeim sessi að mestu síðan, þrátt fyrir afleitar framhaldsmyndir. 1983 Þráinn Bertelsson gat sér gott orð fyrir kvikmyndina um Jón Odd og Jón Bjarna sem frumsýnd var á annan í jólum 1981. Hann sló svo rækilega í gegn með sinni næstu mynd, Nýju lífi, sem segir frá óförum þeirra Danna (Karl Ágúst Úlfsson) og Þórs (Eggert Þorleifsson) sem ákveða að hefja nýtt líf í Eyjum. Myndin er meðal annars fræg fyrir frammistöðu Bjarkar Guðmundsdóttur og Tappa tíkarrass. 1984 Í ljósi vinsælda Nýs lífs kemur varla á óvart að gert var framhald með æringjunum Danna og Þór, Dalalíf, en það stóð fyrri myndinni talsvert að baki. 1985 Hvítir mávar var misheppnuð mynd og óskiljan- leg þó margir þeir sömu kæmu að henni og meistarastykkinu Með allt á hreinu. 1985 Danni og Þór gengu aftur í Löggulífi, en hefðu betur látið það ógert. 1986 Umfjöllunarefni Stellu í orlofi er ekki gamanefni, að maður hefði haldið: Alkóhólismi, geðstirðar karlrembur, Lionsmenn og laxeldi, en þær Þórhildur Þorleifsdóttir og Guðný Halldórsdóttir bregða spéspeglinum á loft og leyfa Íslendingum að horfast í augu við sjálfa sig um stund. 2 3 1992 Sódóma Reykjavík eftir Óskar Jónasson, sagan af Axel og fjarstýringunni, er íslensk klassík, ein fyndnasta mynd íslenskrar kvikmyndasögu. Leikur í myndinni er framúrskarandi, útlitið vel heppnað og handritið nánast skothelt. Sérstaklega standa þeir sig vel Eggert Þorleifsson, Björn Jörundur Friðbjörnsson og Helgi Björnsson. Óskar Jónasson átti góðan sprett með gamanmyndinni stuttu SSL25, en brilleraði með Sódómu Reykjavík. 1995 Þráinn Bertelsson hélt sig við lífið í bíómyndinni Einkalíf, en að þessu sinni voru þeir Danni og Þór víðs fjarri, en þess í stað glímt við íslenskan samtíma; kynslóðabilið, skilnaði, unglinga- vandamál og ámóta. 1997 Perlur og svín var bráðvel heppnuð mynd og sannaði að Óskar Jónasson kunni öðrum fremur að gæla við hláturtaugarnar. 2000 Róbert I. Douglas dró Íslendinga sundur og saman í háði í myndinni Íslenski draumurinn; ekki síst draum veiðimannsins um að lenda í mokfiskiríi; að verða ríkur nánast af engu. Þórhallur Sverrisson á stórleik sem draumóramaðurinn Tóti og Jón Gnarr setur punktinn yfir i-ið með þurrkuntulegri túlkun. 2004 Í Í takt við tímann átti að rifja upp gamalt stuð úr Með allt á hreinu, en aldrei fannst takturinn. 5 4 2007 Astrópía er óvenjuleg mynd á íslenskan mælikvarða; rómantísk gamanmynd með ævintýraívafi: Glamúrgella vaknar upp við það að líf hennar var byggt á lygi þegar kærasti hennar er settur í steininn. Myndin fékk gríðargóða aðsókn og fína dóma, en sérstaklega þótti mönnum Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir standa sig vel í aðal- hlutverkinu. 2009 Helst hefur verið fjallað um Reykjavik Whale Watching Massacre sem hryllings- mynd eða jafnvel „Splatter“-mynd, en það dylst ekki þeim sem á myndina horfa að hún er hreinræktuð gamanmynd, þó í henni sé ógn og skelfing í bland og mikið af blóði. Sjá til að mynda sperðlaveisluna, súrrealíska tengingu fjölskyldunnar illu við „Ægi Tryggvason“ og háhyrninginn í restina. Svo getur mynd með Gunnari Hansen ekki klikkað. 6 íslenskra

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.