Morgunblaðið - 20.09.2009, Side 50

Morgunblaðið - 20.09.2009, Side 50
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2009 45.000 manns í aðsókn! FRÁ LEIKSTJÓRA QUENTIN TARANTINO KEMUR HANS MAGNAÐASTA, VILLTASTA OG STÓRKOSTLEGASTA ÆVINTÝRI TIL ÞESSA. HHHHH - H.G.G, Poppland/Rás 2 HHHHH “ein eftirminnilegasta mynd ársins og ein sú skemmtilegasta” S.V. - MBL HHHH „Gargandi snilld allt saman bara.“ Þ.Þ – DV Stranglega bönnuð börnum innan 16 ára Magnað og blóðugt framhald af Halloween sem Rob Zombie færði okkur fyrir tveimur árum.SÝND Í REGNBOGANUM SÝND Í SMÁRABÍÓI, REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI HÖRKUSPENNANDI MYND UM METNAÐAR- FULLAN BLAÐAMANN SEM TEKUR Á SIG SÖK Í MORÐMÁLI TIL ÞESS EINS AÐ UPPLJÓSTRA UM HINN SVIKULA SAKSÓKNARA MARTIN HUNTER(MICHEAL DOUGLAS) SÝND Í REGNBOGANUM Uppgötvaðu ískaldan sannleikann um karla og konur Fyndnasta rómantíska gamanmynd ársins Sími 551 9000 Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef TILBOÐSVERÐ 300 KR Á SÝNINGAR MERKTA R RAUÐU SÝND Í SMÁRABÍÓI, REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI Þú færð 5% endurgreitt í HáskólabíóSími 462 3500 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó SÝND Í SMÁRABÍÓI OG REGNBOGANUM 300kr.600kr. 3D The Ugly Truth kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 14 ára The Final Destination kl. 6, 8 og 10 B.i. 16 ára Ísöld 3 (ísl. tal) kl. 4 (300 kr.) LEYFÐ Beyond Reas. Doubt kl. 3:20 (550 kr.), 5:40 - 8 750 kr. B.i.16 ára Night at the Museum kl. 3:30 (300 kr.) LEYFÐ The Ugly Truth kl. 3:30 (550 kr.), 5:45 - 8 - 10:15 B.i.14 ára Ice Age (enskt tal) kl. 4 (300 kr.) LEYFÐ Inglorious Bastards kl. 6 - 9 750 kr. B.i.16 ára Halloween 2 kl. 10:20 750 kr. B.i.16 ára Karlar sem hata konur kl. 6 - 9 750 kr. B.i.16 ára Þ að bar til tíðinda í vik- unni að nýjasta plata rapparans Jay-Z fór á toppinn á bandaríska breiðskífulistanum og sló þar við kónginum sjálfum, Elvis Presley – Elvis var fyrstur til að koma tíu breiðskífum á toppinn vestan hafs en nýja skífan, The Blueprint 3, var ellefta plata Jay-Z sem kleif þann tind. Næst á dagskrá er að leggja Bítlana sem komu nítján plötum á toppinn. Tónlistarsaga Shawn Corey Carter, sem tók sér listamanns- nafnið Jay-Z, er nánast samfelld sigurganga allt frá því hann sendi frá sér fyrstu breiðskífuna og sann- ast nú þar sem hann hefur velt sjálf- um rokkkónginum af stalli. Fátt benti þó til þess að piltur myndi ná svo langt, því hann ólst upp í fátækt í Bedford-Stuyvesant-hverfinu í Brooklyn, New York, og komst iðu- lega í kast við lögin sem unglingur, meðal annars fyrir að hafa skotið bróður sinn í öxlina tólf ára gamall, en bróðirinn ætlaði að stela af hon- um skartgripum. Þess má geta að skartgripina keypti hann sér fyrir hagnað af kókaínsölu. Carter hinn ungi var því efni í kraftmikinn glæpon, en tónlistin togaði líka í hann; hann var mjög upptekinn af takti sem barn og þegar honum óx fiskur um hrygg lagðist hann í rímnasmíð meðfram dópsölunni. Jay-Z og Jaz-O Sextán ára var Jay-Z farinn að rappa með félögum sínum, helst náunga sem notaði listamanns- nafnið Jaz-O, en þeir voru um tíma í rímnaflokknum High Potent. Jay-Z vann sig upp meðal rímnavina og var iðulega boðið að rappa með hin- um og þessum þar til hann sendi frá sér fyrstu smáskífuna undir eigin nafni 1995. Henni var þokkalega tekið, en dugði ekki til að piltur fengi útgáfusamning svo hann ákvað að fara eigin leiðir; 1986 stofnaði hann útgáfuna Roc-A-Fella Records við þriðja mann og samdi síðan við stórfyrirtæki um að dreifa skífunum. Fyrsta platan, Reaso- nable Doubt, kom út sama ár og þótt hún hafi ekki selst ýkja vel hef- ur vegur hennar vaxið síðan og þess má geta að hún var á lista Rolling Stone yfir 500 bestu plötur tónlist- arsögunnar. Jay-Z þótti fyrirtækið sem dreifði skífunni ekki standa sig nema miðl- ungi vel og Roc-A-Fella Records færði sig um set, samdi við Def Jam. Næsta plata, In My Lifetime, Vol. 1, kom svo út 1987 og með sjálfan Puff Daddy, Sean Combs, sem heiðurs- Víst ertu, Jay-Z, kóngur klár Tungulipur Konungur rappsins - Shawn Corey Carter sem gjörvallir lýðir lofa sem Jay-Z. Sjálfur Elvis Presley stenst honum ekki einu sinni snúning. TÓNLIST Á SUNNUDEGI Árni Matthíasson Þess má geta að „svarta plat- an“, The Black Album, átti að vera kveðjuskífa Jay-Z; hann raðaði á hana gestastjörnum; Neptunes, Kanye West, Timba- land, Eminem og Rick Rubin, svo dæmi séu tekin og hélt mikla kveðjuhátíð Madison Square Garden-tónleikahöllinni í New York 25. nóvember 2003. Hann starfaði reyndar að tónlist eftir þetta, ætlaði að láta nægja að gefa aðra plötu út, en svo fór að hann sneri aftur í sviðsljósið með Kingdom Come og hefur ekki hótað því að hætta aftur eins og sjá má á The Blueprint 3. Að hætta og ekki hætta

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.