Morgunblaðið - 20.09.2009, Side 56

Morgunblaðið - 20.09.2009, Side 56
Morgunblaðið/Þorkell Við stjórnvölinn Atvinnuhorfur flugmanna eru mun bjartari en áður var. ICELANDAIR hefur í þessum mán- uði dregið til baka uppsagnir alls 24 flugmanna félagsins vegna auk- inna verkefna í vetur. Jafnframt munu níu flugstjórar, sem stóð til að flyttust í sæti flugmanns, halda stöðum sínum. „Það er sem kunnugt er mikil árstíðasveifla í flug- og ferða- starfseminni, og mun fleiri störf í boði yfir háannatímann á sumrin en í lágönn vetrarins. Þess vegna er jafnan ráðinn inn hópur flugmanna að vori og sagt upp að hausti,“ seg- ir Guðjón Arngrímsson, upplýs- ingafulltrúi félagsins. Guðjón segir að nú bregði svo við að fyrir- sjáanleg séu aukin verkefni í flug- rekstri Icelandair í vetur og því þörf fyrir starfskrafta flugmanna mun meiri en áður var áætlað. „Bókanir í áætlunarflugi í haust eru betri en á horfðist og samið hef- ur verið um aukið fraktflug og leiguflug á vegum Icelandair,“ seg- ir hann. Rúmlega 200 flugmenn verða starfandi hjá Icelandair í vetur en voru um 240 þegar mest var á þessu sumri. sisi@mbl.is Uppsagnir 24 flugmanna dregnar til baka SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 263. DAGUR ÁRSINS 2009 Heitast 13 °C | Kaldast 8 °C  Gengur í suðaustan 10-18 með rigningu í dag, fyrst SV- lands. Hiti 8 til 13 stig. » 10 Áfangastjóri óskast Nemar í flugvirkjun Starf lögfræðings hjá Persónuvernd Umsjónarmaður á Bessastöðum ATVINNA» TÓNLIST» Rammstein gengur of langt, enn og aftur. »47 Viðtal við leikstjóra Francescu, myndar sem hefur verið lög- sótt af niðja Mussol- inis, auk tveggja dóma. »48, 49 KVIKMYNDIR» Opna um RIFF FRÆGÐIN» Amy Winehouse er dott- in í það, enn og aftur. »51 TÓNLIST» Veldi Jay-Z er með ólíkindum. »50, 51 Fyrstu dómar um framhaldsmynd hinnar geysivinsælu Karlar sem hata konur, eru fremur neikvæðir. »55 Er Larsson að klikka? KVIKMYNDIR» reykjavíkreykjavík 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT Í LAUSASÖLU 395 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950 VEÐUR» » VEÐUR mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Ólafur Ragnar í viðtali 2. „Erum tæknilega gjaldþrota“ 3. Skatturinn er enn ógreiddur 4. Nakinn og til vandræða Morgunblaðið/Pétur Blöndal Framkvæmdir Ætlunin er að koma bænhúsinu í Furufirði í upprunalegt horf. Prestarnir eru viljugir að koma. Eftir Pétur Blöndal pebl@mbl.is LAGT er upp með að ljúka að mestu viðgerð á bænhúsinu í Furufirði næsta sumar, en Guðmundur Ketill Guðfinnsson hefur unnið að því í nokkur ár. „Í sumar löguðum við vesturgaflinn á bænhúsinu, eina gaflinn sem átti eftir að laga, gerð- um við máttarviðina sem voru skemmdir og settum gamla báru- járnið á aftur,“ segir hann. „Efnið sem við notum inn í kirkj- una kom hinsvegar hálfum mánuði seinna frá Noregi en áætlað var og þegar átti að flytja það frá Norður- firði var vitlaust veður, þannig að flutningurinn tafðist enn frekar. En nú er timbrið komið undir þak í Reykjarfirði og verður geymt þar í vetur.“ Ætlunin er að koma bænhúsinu í upprunalegt horf, en langafi Ketils, Benedikt Hermannsson, sá um smíði hússins á sínum tíma. „Ég byrjaði á verkinu fyrir aldamót,“ segir Ketill. „Ég hef fengið smástyrki frá húsa- friðunarnefnd, timbur úr rekanum í Reykjarfirði og Furufirði, og áheit sóknarnefndar Furufjarðar. En mér rennur líka blóðið til skyldunnar. Langafi byrjaði að reisa bænhúsið árið 1897 og lauk við það árið 1899, en skilyrði fyrir fjár- framlagi var að verkinu lyki fyrir aldamót. Það var hinsvegar ekki vígt fyrr en árið 1902, því það samdist ekki við prestinn, sem vildi fá borgað fyrir að messa.“ Hann segir að Benedikt hafi fæðst árið 1845 og dáið árið 1918 í spænsku veikinni. „Hann er jarð- aður þarna og langamma líka. Hún var miklu yngri kerlingin, þetta var hagstæður stuðull að því leyti, og ýmsir nú á tíðum hefðu kosið að hafa þetta svona. Hún hét Ketilríður Jó- hannesdóttir, fædd 1868 og dó árið 1948.“ – Þannig að þú hefur félagsskap? „Já, elskan mín, mér líkar prýði- lega að vera þarna með þessum dauðu. Þeir hafa ekkert ásótt mig.“ – Er kirkjan tilbúin að utan? „Nei, nei, það vantar nýtt báru- járn á gaflinn sem við gerðum við í sumar og svo þarf að setja gluggana í suðurhliðina og vesturgaflinn. Ég tók þá úr og geri við þá heima í Reykjarfirði.“ – Hvenær reiknarðu með að klára verkið? „Við förum mjög langt með þetta næsta sumar, setjum gluggana í og panelinn, og málum að minnsta kosti eina umferð. Ég held að það eigi al- veg að hafast.“ – Svo þarf að flytja inn prestinn? „Já, þeir eru ótrúlega viljugir að koma.“ – Það er af sem áður var? „Já, þeim finnst nú sport í þessu núna að koma og messa. Og svo má geta þess að ein af systrunum í Furufirði er að læra til prests.“ Gerir við bænhúsið sem langafi hans smíðaði G. Katli Guðfinns- syni rennur blóðið til skyldunnar  Hornstrandir | 22 Skoðanir fólksins ’Nú liggur hins vegar ljóst fyrir aðstarfsemi spítalans í núverandimynd verður ekki söm. Ögmundur not-ar aðra leið til að hætta starfsemi St.Jósefsspítala með því að loka á fjár- mögnun læknisverka. » 32 SIGURJÓN VILBERGSSON ’Þessari hugmynd – að reka opnaveitu fjarskipta í eigu almennings– hefur verið vel tekið eins og sýnir sigí sífellt stækkandi hópi viðskiptavinaGagnaveitu Reykjavíkur. Með tilkomu hennar skapaðist upphaflega valkostur fyrir fyrirtæki við gagnaflutninga og síðar einnig fyrir heimili. » 32 GUÐLAUGUR G. SVERRISSON ’Fyrrum nýlenduherrar okkar,Norðmenn og Danir, hlakka yfiróförum okkar og leggja ekkert sér-staklega mikið á sig til að teygja framfrændþjóðaarminn og veita okkur stuðning. Kannski vænta þeir þess að við leitum enn og aftur á náðir þeirra líkt og við gerðum á Sturlungaöld. » 32 GUÐRÚN BERGMAN ’Lýðskrum þrífst þar sem lýðræðier vanrækt. Hættan stafar því afíslensku stjórnmálakerfi. Ekki þjóðinni.Ekki fólkinu sem byggir landið og ámest undir því að stjórnað sé af viti. Al- menningur á Íslandi getur vel áttað sig á hvað honum sjálfum er fyrir bestu. » 34 HJÖRTUR HJARTARSON ’Um áratuga skeið valdi þjóðinSjálfstæðisflokkinn sem leiðandiafl í íslenskum stjórnmálum. Kosningareftir kosningar kaus tæpur meirihlutiþjóðarinnar hann. Nú verður þjóðin að borga fyrir Sjálfstæðisflokkinn. » 34 JÓN HJARTARSON ’Uppeldi er mikilvægt. – Eitthvaðhefur skort í uppeldi oflátungannasem skömmtuðu sér milljón á dag ogtöldu sig vera að afla auðs sem reynd-ist skuldasöfnun þegar til átti að taka. Þeir sáust ekki fyrir, trufluðust af gervi- gróða, eyddu fúlgum fjár og komust upp með það. » 35 SÓLVEIG ALDA PÉTURSDÓTTIR ’Hálendi Íslands heillar alla menn,bæði innlenda og erlenda.Nú er því orðin mikil og vaxandi umferðvíða um hálendið þó að þar séu veg-leysur, en ég minni á, að allur ut- anvegaakstur er bannaður. » 35 ÓLAFUR RUNÓLFSSON

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.