Morgunblaðið - 09.10.2009, Side 1
DAGLEGT LÍF
RÚLLAÐ Á RÖMPUM, SVEITT DUBSTEP-PARTÍ,
OFMETIÐ SUMAR OG GALLIANO-GLAMÚR
F Ö S T U D A G U R 9. O K T Ó B E R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
274. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
Sérblað um
tísku og föðrun
fylgir Morgunblaðinu í dag
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
NOKKUÐ ljóst þykir að Alþingi
þurfi aftur að fjalla um Icesave-mál-
ið, að sögn Indriða H. Þorlákssonar,
aðstoðarmanns fjármálaráðherra.
Ekkert liggur þó fyrir um hvernig sú
aðkoma þingsins þarf að vera eða
hver næstu skref verða í málinu.
Hvorki ríkisstjórnin, þingmenn
ríkisstjórnarflokkanna né stjórnar-
andstaðan hafa fengið skýrslu um
ferð Steingríms J. Sigfússonar til
Tyrklands, þar sem hann fundaði
með lykilpersónum frá Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum og í Icesave-málinu,
auk þess að hitta fólk frá alþjóð-
legum lánshæfismatsfyrirtækjum.
Helst er á Indriða að skilja að árang-
ur ferðarinnar liggi í því að viðmæl-
endur ráðherrans þar úti hafi öðlast
betri skilning á afstöðu Íslendinga
og þróun efnahagsmálanna hér á
landi og mikilvægi þess að áætlun
AGS haldi áfram.
Umboð til formanna stendur
Staðan er einfaldlega sú, að sögn
þingflokksformanna VG og Samfylk-
ingar, Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur
og Björgvins G. Sigurðssonar, að
formenn stjórnarflokkanna fengu í
síðustu viku umboð til að ræða við
Breta og Hollendinga um Icesave-
samningana og fyrirvara Alþingis.
Það umboð stendur óbreytt og málið
hefur ekki breyst neitt frá því áður
en Steingrímur fór til Tyrklands.
Nokkuð ljóst | 8
Icesave-mál hafa
ekki haggast neitt
Ljóst þykir að Icesave-málið stefnir aftur inn á Alþingi
Óbreytt staða í þingflokkum frá því fyrir Tyrklandsför
Í HNOTSKURN
»Fundur verður í ríkis-stjórn fyrir hádegi í dag
og verður árangurinn af ferð
fjármálaráðherra til Tyrk-
lands líklega ræddur þar.
»Steingrímur hefur tekiðskýrt fram að hann hafi
ekki farið neina erindisleysu.
HORFT yfir Landeyjahöfn í Bakkafjöru, Vestmannaeyjar í
baksýn. Höfnin er ætluð fyrir nýja Vestmannaeyjaferju og á
að verða tilbúin á næsta ári. Hátt í 50 starfsmenn Suðurverks
undan áætlun. Samið var við Landgræðsluna um uppgræðslu
á svörtum sandinum, græddir verða upp hátt í 600 hektarar
og verður kostnaðurinn um 300 milljónir.
munu í vetur vinna á dagvöktum við höfnina, þegar mest var
unnu þar um 110 manns á vöktum allan sólarhringinn. Garð-
arnir eru nánast komnir í fulla lengd og verkið er mánuði á
HÚMAR HÆGT AÐ KVELDI VIÐ LANDEYJAHÖFN
Morgunblaðið/RAX
HUGSANLEGT er að þorskur á
Bretlandsmiðum muni leita norður á
bóginn í íslensku, norsku og græn-
lensku landhelgina vegna hlýnunar
hafsins á næstu áratugum.
Leiddar eru líkur að þessu í niður-
stöðum nýrrar rannsóknar, Hafið
umhverfis okkur, sem vísindamenn
við Háskólann í bresku Kólumbíu í
Kanada unnu að og fjallað er um í
nýjasti hefti vísindaritsins Global
Change Biology.
Rakið er hvernig hlýnun hafsins
kunni að leiða til útrýmingar fisk-
tegunda á heitari hafsvæðum.
Á móti komi að fiskigengd kunni
að aukast um tugi prósenta á norð-
lægum slóðum fyrir miðja öldina.
Spár sem þessar eru háðar mörgum
fyrirvörum, m.a. um ástand ein-
stakra fiskistofna, samspilið þeirra á
milli og fæðuframboðið.
Hlýnun hafsins gæti aukið
þorskgengd við Ísland
Eftir Sigurð Boga Sævarsson
og Baldur Arnarson
„ÉG SKIL Gylfa mjög vel. Við erum í
ömurlegri stöðu. Við kunnum vel að
meta hvað verkalýðshreyfingin hefur
nálgast samskipti okkar af mikilli
ábyrgð í sameiginlegri vinnu okkar
við að komast út úr kreppunni,“ segir
Vilhjálmur Egilsson, formaður Sam-
taka atvinnulífsins, um þá hótun
Gylfa Arnbjörnssonar, formanns
ASÍ, á þingi Starfsgreinasambands-
ins í gær að látið verði sverfa til stáls
gangi kjarasamningar ekki eftir.
„Það sem við höfum upplifað núna
er stórkostlegur vandræðagangur við
að koma fjárfestingum af stað,“ segir
Vilhjálmur, en hann telur „blasa við“
að fyrirtæki muni ekki geta staðið
undir kjarasamningum ef stöðug-
leikasáttmáli gengur ekki eftir. | 16
„Við erum í
ömurlegri stöðu“
Vilhjálmur Egilsson segir aðgerðaleysi
ríkisins tefla kjarasamningum í tvísýnu
Gylfi
Arnbjörnsson
Vilhjálmur
Egilsson
YOKO Ono, listakona, friðarsinni
og ekkja Bítilsins Johns Lennons,
segist ekki bera ábyrgð á því að
Bítlarnir lögðu upp laupana. Þetta
kemur fram í ítarlegu viðtali í
Morgunblaðinu í dag. Ono kemur
víða við og segist m.a. vel geta
hugsað sér að lifa að eilífu. | 42
Morgunblaðið/Kristinn
Splundraði ekki Bítlunum
ÞINGMENN
stjórnarandstöðu
gagnrýndu fjár-
lagafrumvarpið
harðlega í gær og
sögðu það unnið í
alltof miklum
flýti. Ólöf Nordal,
Sjálfstæðisflokki,
sagðist vonast til
að því yrði „snúið
á haus“. Um-
ræðunni lauk
með því að Steingrímur J. Sigfússon
fjármálaráðherra sagði ósanna-
gjarnt að þingmenn stjórnarand-
stöðunnar, nýkomnir úr góðu sum-
arfríi, kvörtuðu yfir að frumvarpið
væri ekki lengra á veg komið. Þing-
menn bentu m.a. á að mikil óvissa
einkenndi það. Steingrímur gat tek-
ið undir ýmislegt í þeim efnum og
vonaðist til að það fengi góða með-
ferð Alþingis. | 14
Tókust á
um fjárlög
Steingrímur J.
Sigfússon
Fjárlagafrumvarp
sent til nefndar