Morgunblaðið - 09.10.2009, Blaðsíða 44
varð ég að byrja upp á nýtt,“ segir Laddi
sem gæti vel hugsað sér að gera þetta aftur í
dag með þá tækni sem er nú í boði.
Laddi fékk að ráða sjálfur hvernig rödd
hann gaf hverjum strumpi. „Ég var ekki með
neinar fyrirmyndir, í ensku útgáfunni voru þeir
allir mjög skrækir og ég ákvað að herma ekki
eftir þeim,“ segir Laddi og má því segja að hann
hafi skapað persónuleika „íslensku“ strumpanna.
„Það var gaman að gera þetta og gaman að þetta
skuli vera komið aftur,“ segir hann og bætir við að hann
hafi haft mjög gaman af strumpunum. „Mér þótti óskap-
lega gaman að þessu og horfði á þetta alltsaman. Ég fékk
spólurnar á ensku og drakk þetta í mig.“ Hann á þó erfitt
með að velja uppáhaldsstrump. „Mér fannst þeir allir
mjög skemmtilegir þessir aðalstrumpar.“
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
„STRUMPARNIR standast vel tímans tönn og
ég er viss um að krakkar í dag hafa jafn gaman af
þeim og fyrir hátt í þrjátíu árum,“ segir Þórhallur
Sigurðsson, Laddi, um vini sína strumpana. Sjö
þættir af strumpunum voru að koma út í fyrsta
sinn á mynddiski með upprunalegri talsetningu
Ladda en með endurbættu hljóði og mynd.
Laddi talaði fyrir alla strumpana og aðra
sem komu fram í teiknimyndunum. „Þetta var
mjög erfið vinna á þeim tíma enda tæknin ekki
eins góð og hún er núna. Við vorum bara með tvær
rásir til að taka upp á. Ég talaði fyrir marga í einu og
þurfti bara að renna af stað og ef ég klikkaði eitthvað
Æðstistrumpurinn Laddi snýr aftur á stafrænu
Strumpar Laddi og vinur.
44 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 2009
Nýjasta viðbótin í menningar-
flóru miðborgarinnar, hljóm-
plötuverslunin Havarí í Austur-
stræti, hefur aukið við rekstur-
inn. Á morgun klukkan tvö opnar
í Havarí gallerí þar sem tíu svalir
listamenn munu sýna og selja
verk sín. Að sjálfsögðu mun
óreiða og hentistefna einkenna
sýningarstjórn Havarís. Myndlist-
armennirnir svölu eru: Lóa Hlín
Hjálmtýsdóttir (FM Belfast),
Sindri Már Sigfússon, (Seabear
og Sin fang bous), Ísak Óli Sæv-
arsson, Ingibjörg Birgisdóttir,
Davíð Örn Halldórsson, Þrándur
Þórarinsson, Bjargey Ólafsdóttir,
Halldór Ragnarsson, Hugleikur
Dagsson og Sigtryggur Berg Sig-
marsson.
Einnig hefur Havarí gert sam-
starfssamning við Café Haítí og
nú geta gestir Havarí sopið kaffi
meðan þeir njóta tónlistar og
myndlistar.
Svöl myndlistarsýning
í gallerí Havarí
Fólk
Hinir ungu og upprennandi,
þeir sem munu fylla Séð og
heyrt framtíðarinnar, standa í
ströngu í kvöld. Nemendaleikhús
Listaháskóla Íslands frumsýnir
Eftirlitsmanninn eftir Nikolai
Gogol í kvöld kl. 20 í Smiðjunni,
leikhúsi Listaháskólans við Sölv-
hólsgötu. Eftirlitsmaðurinn, í
nýrri þýðingu Bjarna Jónssonar,
gerist í lítilli borg þar sem spill-
ingin er allsráðandi. Ráðamenn
mergsjúga þegnana, samfélagið
líður fyrir græðgi og lágar hvat-
ir þeirra sem deila og drottna en
svo verður uppi fótur og fit...
Leikstjóri er Stefán Jónsson og
tónlistina við verkið samdi
Magga Stína.
Nemendaleikhúsið
sýnir Eftirlitsmanninn
Einfaldar lausnir og góð ráð
er það sem Karl Berndsen gefur
kvenfólki í sjónvarpsþáttunum
Nýtt útlit sem hófu göngu sína
annan veturinn í röð á Skjá ein-
um nýverið. Kalli klikkar ekki á
því, kemur enn sterkari til leiks
og þættirnir tveir sem komnir
eru lofa góðu. Hann er ein-
staklega lúnkinn við að gefa góð
ráð sem nýtast öllum, án þess þó
að gera lítið úr manneskjunni
sem hann er að taka fyrir. Nú
eiga snyrtivöruinnflytjendur ef-
laust eftir að keppast við að
komast að hjá honum, því sagan
segir að það sem Kalli fjallaði
um í fyrra hafi rokið út úr versl-
unum daginn eftir.
Auglýst var eftir karlmönnum
til að taka þátt í Nýju útliti
þetta árið og það er bara von-
andi að einhver hafi fengist til
verksins, því það yrði gaman að
sjá hvernig Kalli tekur á sínu
eigin kyni.
Karl Berndsen kemur
enn sterkari inn
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
ÞAÐ var síðsumars sem Lay Low,
Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, hélt
út í Flatey ásamt leikstjóranum
Denna Karlssyni, myndatökumann-
inum Víði Sigurðssyni, hljóðupp-
tökumanninum Viðari Hákoni Gísla-
syni og umboðsmanninum Kára
Sturlusyni. Dvölin stóð yfir eina
helgi en ætlunin var að renna í gegn-
um nokkur laga Lay Low í berstríp-
uðum útgáfum og vonast til að ein-
stök stemning þessarar friðsælu
eyju myndi um leið rata inn á hljóð-
og myndrásir. Sjö lög voru tekin upp
á sjö mismunandi stöðum en klipp-
ing hinnar 28 mínútna löngu stutt-
myndar sem úr þessu kom var í
höndum Ágústu Margrétar Jó-
hannsdóttur.
Lögin koma af tveimur breið-
skífum Lay Low til þessa, Please
Don’t Hate Me og Farewell Good
Night’s Sleep en auk þess er að
finna eitt nýtt lag á ensku og svo lag
Lovísu við ljóðið „Sorgin“ eftir
skáldið Undínu (Helgu Steinvöru
Baldvinsdóttur), ljóð sem var samið
árið 1884.
Pétur Hallgríms fíflast
Þegar blaðamaður slær á þráðinn
til Lovísu er hún stödd í Þýskalandi.
Er á miðjum túr þar sem hún hefur
verið að spila með Emilíönu Torr-
inni. „Hann er akkúrat hálfnaður,“
segir hún feiminni – en alltaf sjarm-
erandi – röddu. Segir svo blaða-
manni að hún hafi klöngrast eitt-
hvað baksviðs með farsímann. Á
bakvið hana má greina gamanmál og
er það Pétur Hallgrímsson, meðgít-
arleikari hennar, sem er að fíflast
eitthvað. „Túrinn er búinn að ganga
afskaplega vel,“ heldur hún svo
áfram. „Við erum að spila á stórum
stöðum, 1500 til 2000 manns. Emil-
íana er orðin mjög „stór“, sér-
staklega hérna í Þýskalandi þar sem
hún er stjarna.“ Hópurinn var m.a. í
Ungverjalandi þar sem Hjaltalín og
Ourlives lék einnig. „Ég er að hita
upp fyrir Emilíönu en spila líka smá
með henni uppi á sviðinu. Svo hefur
þetta þróast mjög skemmtilega,
nokkrir í bandinu hennar hafa verið
að koma upp á svið og spila með mér
og í einu laginu er ég með heila
hljómsveit með mér – það stóð ekk-
ert til í upphafi ferðar!“ Lay Low
segir áhorfendur taka sér vel, kvart-
ar reyndar undan heldur miklu
skvaldri í hollenskum áhorfendum í
blábyrjun ferðalags. „Þeir höfðu lít-
inn áhuga á mér – ég held að þeir
hafi bara verið að bíða eftir „Jungle
Drum“ (hlær).
„Ferlið var mjög auðvelt“
En hvað dreif Lovísu eiginlega til
Flateyjar? „Þetta var eiginlega al-
veg upp úr þurru,“ segir hún. „Fyrst
ætlaði ég að taka fleiri spilara með
mér en svo endaði ég bara ein. Hug-
myndin var að nota þetta opna svæði
og sjá hvað myndi gerast, hvað það
myndi gera fyrir lögin. Á þessari
plötu hljóma þau meira eins og þeg-
ar ég spila þau á tónleikum. Þau eru
einfaldari, stundum hægari og ber-
strípaðri eðlilega. Ferlið var mjög
auðvelt – þetta tók enga stund.“ Ís-
lenskir bíógestir munu brátt sjá
Lovísu í sinni fyrstu kvikmynd, Des-
ember eftir Hilmar Oddsson. Af
stiklu að dæma er þessi hægláta
stúlku fædd leikkona. Þannig að það
var væntanlega leikur einn að „sitja
fyrir“ í Flatey? Eða hvað? „Jú,
þannig,“ segir hún og brosir í gegn-
um símann. „Það er aðallega erfitt
eftir á, að horfa á sig. Þá fæ ég
kjánahroll. Ég get eiginlega ekki
horft á sjálfa mig í mynd.“ Lovísa
segir að eitt af því sem hafi ýtt henni
út í Flatey sé að hún hafi viljað
prufa sum af lögunum af síðustu
plötu í órafmögnuðum stíl.
„Ég er að selja plöturnar á tón-
leikum og fólk spyr mig alltaf hvora
plötuna mína það eigi að kaupa. Ég
verð alltaf vandræðaleg og ég fór í
gegnum smá ferli þar sem mér
fannst hvorug þeirra nógu góð.
Þannig að á dögunum tók ég mig
taki og hlustaði ítarlega á þær aftur.
Og ég er komin á þá skoðun að þetta
séu nú bara alveg ágætis plötur,“
segir Lay Low að lokum af sinni
stöku hógværð.
Lay Low sló heldur en ekki í gegn –
og það algerlega óvænt – með
fyrstu plötu sinni, Please Don’t
Hate Me, sem út kom fyrir þremur
árum síðan. Innihaldið blús- og
þjóðlagakennt. Í fyrra gaf hún svo
út breiðskífu númer tvö, Farewell
Good Night’s Sleep, dásamlega
plötu sem bar með sér gamaldags
kántríhljóm, líkt og maður hefði
slysast inn á útsendingu frá Grand
Ole’ Opry á fimmta áratugnum.
Báðar plöturnar hlutu mikið lof hjá
gagnrýnendum og vegur Lovísu
hefur vaxið jafnt og þétt á síðustu
árum.
Þriðja platan er byrjuð að taka á
sig mynd í kollinum segir Lovísa,
þó allt sé á algeru frumstigi.
„Ég hef t.a.m. ekki hugmynd um
hvaða stílbrigði verða í gangi þar,“
segir hún og hlær. „Ég hyggst taka
hana föstum tökum eftir áramót,
svona svipað og ég gerði með síð-
ustu plötu. Það var einmitt um
áramótin 2007/2008 sem ég fór
að vinna í að semja og koma hug-
myndum á blað. Ég er að fara í
ákveðið verkefni á næstu vikum og
einhver lög eiga ábyggilega eftir
að fæðast þá.“
Þriðja platan í gerjun
Morgunblaðið/Golli
Númer þrjú Hvað ber næsta plata Lay Low í skauti sér?
Tilraun „Hugmyndin var að nota þetta opna svæði og sjá hvað myndi gerast, hvað það myndi gera fyrir lögin,“ segir Lay Low um Flateyjarverkefnið.
Barn náttúrunnar
Nýr hljóm- og mynddiskur Lay Low, Flatey, kemur út í dag Var tekinn upp
á samnefndri eyju Innihaldið bundið stillu og værð líkt og eyjan sjálf