Morgunblaðið - 09.10.2009, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 09.10.2009, Blaðsíða 26
26 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 2009 STEINGRÍMUR Joð fer mikinn og leik- ur kosningaleiki með hugmyndir sínar um orku- og kolefn- isskatta. Lætur hann sem þetta sé skatt- heimta sem sé sótt í vasa erlendra stórfyr- irtækja og muni hvergi snerta íslensk- an almenning. Þetta er víðsfjarri veruleikanum og ljóst að Stein- grímur veit betur þó að hann láti svo að hann sé í „draumastríði Þjóðvilj- ans“ við erlenda auðhringi. Lítum aðeins nánar á áhrif þess- ara skattahugmynda. Áhrif kolefnisskattanna ef hug- myndin er að skattleggja í jafnræði munu leggjast á allt þjóðfélagið jafnt einstaklinga sem fyrirtæki. Stóriðjufyrirtækin munu þó sum hver sleppa þar sem fjárfestinga- samningar þeirra og íslenska rík- isins koma í veg fyrir slíka skatt- heimtu. Tæpast verða sum þeirra sköttuð og önnur ekki allt eftir samningsstöðu því þannig yrði jafn- ræði hallað. Það er því ljóst að hugmyndir um kolefnisskatta eru hugmyndir um viðbótarskattheimtu á almenning í landinu og önnur framleiðslufyr- irtæki en stóriðjuna sem og hvers- konar þjónustustarfsemi. Þar sem því verður viðkomið verð- ur þeim sköttum velt út í verðlag og kynt undir verðbólgunni áfram á kostnað almennings sem alltaf mun greiða þessa skatta beint eða óbeint og gott betur þegar verðbólgan blæs út skuldirnar. Önnur fyrirtæki sem ekki ná að velta þessari skattheimtu út í verð- lag munu láta í minni pokann og tapa í samkeppni við innflutning frá öðrum löndum sem eru ekki enn sem komið er a.m.k. að innheimta slíka skatta. Niðurstaðan af því verður að íslenskum störfum fækkar og inn- lenda framleiðslan verður fátækari. Um orkuskattana liggur eftirfar- andi ljóst fyrir. Orku- verð stóriðjufyrirtækj- anna er bundið í viðskiptasamningum þeirra og orkufyr- irtækjanna og verður ekki breytt nema með samkomulagi beggja. Í þessum efnum ger- ist hins vegar það að ef lagður yrði almennur skattur á orkusölufyr- irtækin sem næmi 20- 30 aurum á kWh yrðu þau að velta honum af sér út í innlent verðlag með al- mennri rafmagnsverðshækkun á al- menning og þau innlendu fyrirtæki sem væru óvarin af viðskiptasamn- ingum við þau. Hér er því niðurstaðan sú sama og að ofan, skattheimtunni er beint og óbeint stefnt að almenningi og því að kynda undir verðbólgunni í landinu. Stóra spurningin er þessi. Hvern er Steingrímur að reyna að plata? Eða það sem enn verra er. Veit hann ekki betur? Eða er ef til vill allt sjónarspil VG um þessi mál, synjun endurnýjunar yfirlýsingar um álver á Bakka, bréf- ið um háspennulínuna og Helguvík og útganga Ögmundar allsherjar sjónarspil til að þvinga fram stjórn- arslit? Leikurinn magnast og spenn- an vex. Það er þó er verst í þessu spili að VG er að leika sér með fjör- eggið og virðist láta sér það í léttu rúmi liggja. Eftir Víglund Þorsteinsson Víglundur Þorsteinsson » Það er því ljóst að hugmyndir um kolefnisskatta eru hugmyndir um viðbótarskattheimtu á almenning í landinu. Þessir skattar munu kynda undir verð- bólgunni. Höfundur er stjórnarformaður BM Vallár ehf. Hvernig virka orku- og kolefnis- skattarnir? ÉG GEKK um dag- inn „Laugaveginn“, gönguleiðina milli Landmannalauga og Þórsmerkur. Fegurð landslagsins og fjöl- breytni þess sem fyrir augu ber er með ólík- indum mikil og hafa margir við orð að þessi vinsæla gönguleið sé í flokki þeirra merkileg- ustu í heimi. Þegar kom yfir Syðri-Emstruá niður á Almenninga, afrétt Vestur- Eyfellinga, fór mér að verða star- sýnt á gróðurinn. Ég hef oft farið um þessar slóðir, og það gleður mig allt- af jafn mikið hve gróðri hefur fleygt fram frá árinu 1985 er ég fór mína fyrstu gróðurskoðunarferð um af- réttinn. Þá var beit á svæðinu meiri en góðu hófi gegndi og gróður á und- anhaldi eftir aldalangt samspil beit- ar og óblíðrar veðráttu. Þvílík breyt- ing á gróðurfari til hins betra. Sama gilti þegar komið var á Þórsmörk, sárin eru óðum að gróa og birkið að ná sér á strik þar sem áður voru flakandi sár. Land í rúst Ef litið er til liðinna alda er ljóst að oft hefur gróðri á öllu Þórsmerk- ursvæðinu verið hætta búin, einkum vegna skógarhöggs og beitar. Fé var haft á útigangi í Þórsmörk og Goða- landi og skógarnir mikið nytjaðir. Árið 1802 var t.d. svo komið að Mörkin var orðin nær skóglaus vegna skógarhöggs. Heimamenn sáu að við svo búið mátti ekki standa og tóku höndum saman um að vernda leifar birkiskóganna á svæð- inu. Gróður- og jarðvegseyðing gekk þó stöðugt nær landinu, enda veður- farsskilyrði óhagstæð þegar líða tók á öldina. Með ungmennafélagshugsjón aldamótaáranna um 1900 um að „rækta nýjan skóg“ og setningu fyrstu laganna um „skógrækt og varnir gegn uppblæstri lands“ árið 1907 var leitað nýrra leiða til að bjarga því sem eftir stóð af skóg- unum frá bráðri hættu. Samið var um friðun Þórsmerkur 1920 og svo var Goðaland sunnan Krossár tekið til friðunar 1927. Sama ár tók Skógrækt rík- isins að sér friðun og umsjón svæðisins. Þessir samningar friðuðu ekki Almenn- inga fyrir beit og árið 1924 var hafist handa við að setja upp girð- ingu meðfram Þórs- mörk að norðan. Frið- unin var ófullkomin vegna sérstaklega erf- iðs girðingarstæðis, en þegar dró úr fjárbeit- inni fór birkiskógur víða að vaxa upp að nýju og sumt af hinu eydda landi að taka á sig græna slikju. Samningar um beitarfriðun Útilokað reyndist viðhalda fjár- heldri girðingu og fé af Almenn- ingum átti nokkuð greiða leið niður í Þórsmörk og þaðan á Goðaland. Með auknum samgöngum upp úr miðri síðustu öld fjölgaði ferðamönnum í Þórsmörk og þær raddir urðu æ fleiri og háværari sem kröfðust úr- bóta á beit og gróðureyðingu þar. Fé hélt þó stöðugt áfram að fjölga og beitarálag að aukast. Líklegt er að fjöldinn hafi orðið mestur upp úr 1970, en vorið 1973 er talið að farið hafi verið með meira en 1.200 full- orðins fjár á Almenninga. Beitarþol afréttarins var aðeins brot af því, en féð rataði sína leið inn á það land sem átti að vera friðað. Árið 1985 hófst nýr kafli í samn- ingaumleitunum um friðun Almenn- inga. Haldnir voru margir fundir með eigendum upprekstrarréttar og leitað leiða til að draga úr beitar- álagi, m.a. með hagabótum heima- fyrir. Leysa þurfti margvísleg mál, en vorið 1990 var síðan undirritað samkomulag milli bænda í Vestur- Eyjafjallahreppi og Landgræðsl- unnar um að búfé yrði ekki rekið á afrétti hreppsins a.m.k. næstu 10 ár- in. Lauk þar 70 ára ferli við friðun alls svæðisins milli Markarfljóts og jökla sunnan Syðri-Emstruár. Þessi samningur er að vísu runninn út, en báðir aðilar hafa haldið samstarfinu áfram. Endurheimt vistkerfa Þegar horft er til baka er með ólíkindum hve friðun Þórsmerkur- svæðisins í heild leysti úr læðingi mikinn kraft í endurreisn landkosta þar. Ári síðar, 1991, var Rauði kross Íslands með fræðslutengdar vinnu- búðir fyrir ungmenni og var unnið að uppgræðslu á Merkurrana og inn af Langadal. Ferðafélag Íslands, Útivist, Starfsmannafélag Hampiðj- unnar, Ferðaklúbburinn 4x4 og margir fleiri unnu einnig af krafti að stöðvun eyðingar og sáningu í illa farin svæði. Á Almenningum unnu bændur úr Vestur-Eyjafjallahreppi einnig ötul- lega að uppgræðslu. Árið 1991 lagði Landgræðslan t.d. til átta tonn af áburði auk fræs en bændur sáu um dreifingu. Þeir hafa farið í land- græðsluferðir í Almenninga nær öll ár síðan, og það er árangurinn af þessu mikla og fórnfúsa starfi bænda ásamt áhrifum beitarfrið- unarinnar sem gleður svo mjög aug- að þegar farið er um afréttinn, eins og vikið var að í upphafi. Það er búið að verja gríðarlegri vinnu og fjármunum við að takast á við þá miklu jarðvegseyðingu sem ógnaði gróðri á Þórsmerkursvæðinu og aðstoða náttúruna við að græða sárin með markvissum landgræðslu- aðferðum. Enn er þó nokkuð í land með að fullnaðarsigri sé náð. Enn eru mörg sár í gróðurþekjunni þótt þeim fari stöðugt fækkandi. Þar er náttúran að græða sig sjálf, reyndar víða með aðstoð fórnfúsra handa. Það er afar mikilvægt að þetta ferli nái lengra því annars er verið að kasta á glæ merku starfi heima- manna og fjölda annarra við endur- heimt landkosta á Þórsmerkursvæð- inu. Til þess að svo megi verða er brýnt að svæðið verði friðað fyrir beit eitthvað lengur. Endurreisn Almenn- inga og Þórsmerkur Eftir Andrés Arnalds »Kraftaverk hefur unnist í endurheimt gróðurs á Þórsmerkur- svæðinu. Er það mest að þakka beitarfriðun og fórnfúsu starfi bænda og ótal sjálf- boðaliða. Andrés Arnalds Höfundur er fagmálastjóri Land- græðslunnar. GEÐHEILBRIGÐ- ISÞJÓNUSTAN hef- ur, auk þess að lækna, hjúkra og endurhæfa, einnig fé- lagslegu hlutverki að gegna. Hún skil- greinir hvað sé við- eigandi eða óviðeig- andi í samfélaginu. Að fá geðsjúkdóms- greiningu getur verið gífurlegur léttir fyrir marga en fyrir aðra getur það ógnað fram- tíðarmöguleikum. Sumir sem hafa nýtt sér geðheilbrigðisþjónustuna þakka henni líf sitt, jafnvel þótt það hafi verið gegn vilja þeirra í upphafi, meðan aðrir finna henni allt til foráttu. Þeim sem eru ánægðir með þjónustuna – not- endum og aðstandendum – sárnar allt tal sem felur í sér gagnrýni og þegar efast er um hug- myndafræði eða nálganir. Þeir sem tilheyra hópi óánægðra segj- ast vera survivors‘, hafa „lifað af“ eða þraukað þjónustuna. Þeim finnst sér hafi verið settir af- arkostir, þjónustan oft handahófs- kennd, órökstudd og óviðeigandi og ekki mætt þörfum þeirra. Þeir hafna jafnan sjúk- dómsgreining- arkerfinu og staðhæfa að lyf sem þeir hafi þurft að taka hafi haft slæmar afleiðingar. Þeir líta svo á að sjúkdómsgreiningin sé afskræming á reynslu þeirra, undirrót glat- aðra tækifæra, skertra lífgæða og beinlínis hættuleg heilsu þeirra. Þegar fólk hefur svona mismunandi reynslu af þjónustunni gagnast ekki málaflokknum að skiptast í stríðandi fylkingar eða að öll óánægja sé þögguð niður. Það þykir „tabú“ þegar lýst er efa- semdum um einhver atriði, gerðar athugasemdir eða komið fram með tillögur að breytingum. Vegna for- dóma og mismunandi skoðana á geðheilbrigðismálum hefur virk umræða um málaflokkinn átt erf- itt uppdráttar. Erfitt hefur verið að sanna orsakaþætti geðtruflana og rannsóknarniðurstöður oft mis- vísandi. Fólk er misjafnt og hefur mismunandi skoðanir á því hvað hafi gagnast því best. Lágmarks- krafa er því að borin sé virðing fyrir ólíkum skoðunum. Stjórn- málamenn, sem ákveða hvernig al- mannafé skuli varið til almenn- ingsheilla, ættu að vera sá hópur sem skilur best þá sem barist hafa fyrir fjölþættari nálgun í geðheil- brigðisþjónustunni; þeir eru ólíkir á sama hátt og þeir sem greinast með geðræna kvilla. Þeir sem starfa og hrærast í geðheilbrigð- ismálum ættu að nýta sér stjórn- málamenn sem fyrirmyndir; þeir hafa sýnt fram á að hægt sé að vinna með „svæsnustu“ skoðana- andstæðingum ef þeir sjá fram á að komast til áhrifa og valda. Það eru svo margir þættir geðheil- brigðisþjónustunnar sem hægt væri að sameinast um: fjölbreytt- ari meðferðarform, að fólk sé virt og hlustað á það þrátt fyrir skrítna hegðun, að lög og reglu- gerðir séu virtar, að allir hafi sama rétt til að eiga heimili, hafa eitthvað fyrir stafni og eiga sam- leið með öðrum. Að berjast gegn mismunun, fordómum og fátækt, að hafa aðgang að mannlegum stuðningi eða fjárstuðningi þegar þess er þörf. Valdbeiting er notuð í geðheil- brigðisþjónustunni og réttlætt á ýmsa vegu. Hún mun halda áfram, því ekki verður hjá henni komist í einstaka tilvikum, þó að við fjölg- um úrræðum í þjónustu við geð- sjúka. En þeir sem eru í þeirri óþægilegu stöðu að þurfa að beita aðra manneskju valdi, verða að vita að orsök vanda margra ein- staklinga, sem misst hafa tökin á eigin geði, á rætur sínar í um- hverfi þar sem valda- og áhrifa- leysi ríkir. Að verða fyrir end- urtekinni valdbeitingu undirstrikar veika stöðu. Ein- angrun sem oft fylgir valdbeitingu gerir stöðu fólks enn viðkvæmari. Síendurtekin valdbeiting og ein- angrun brýtur niður eldmóð, sjálfstraust og mótstöðu. Til að lifa af slíkar aðstæður er leitað verndar til þeirra sem beita valdi. Þá miðast hegðun við væntingar þess, sem hefur valdið, vegna þeirra mannlegu þarfa að fá at- hygli, umhyggju og viðurkenn- ingu. Þótt ætlun þjónustuveitanda sé ekki að gera fólk háð sér getur afleiðingin fyrir þiggjandann orðið lært hjálparleysi. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) leggur áherslu á almenn mannréttindi og að ekki megi brjóta á rétti einstaklinga sem eiga við geðsjúkdóma að stríða. Þeir sem berjast fyrir fjölþættari úrræðum styðja einstaklings- bundið val í geðheilbrigðiskerfinu. Lyfjaiðnaðurinn er orðinn risavax- inn og því er hætta á að hann geti í krafti stærðar rutt úr vegi öðr- um meðferðarúrræðum, ráðskast með fjölmiðla, auglýsingar og rannsóknir til að sannfæra alla um ágæti sitt. Stjórnvöld eiga að hlúa að valkostum fyrir þá sem t.d. hafa ekki sannfærst um ágæti geðlyfja, því geðheilbrigðismál eru ekki ósvipuð stjórnmálum. Geð- heilbrigðismál og stjórnmál hafa sömu markmið; að auka velsæld og hag almennings. Leiðirnar sem valdar eru til að ná markmiðunum ráða úrslitum um val okkar á stjórnmálaflokki. Ég vona að ís- lenskir kjósendur verði aldrei í þeirri aðstöðu að geta ekki valið flokk; hann verði bara einn. Á sama hátt vænti ég þess að geð- sjúkir fái að velja hvers konar að- stoð þeir fá. Mismunandi kostir verða að spanna allt ferlið; nálgun heilsugæslunnar, bráðaþjónust- unnar, endurhæfingar sem og eft- irfylgdar í nærumhverfi. Stjórnmál og geðheilbrigðismál Eftir Elínu Ebbu Ásmundsdóttur » Vegna fordóma og mismunandi skoð- ana á geðheilbrigð- ismálum hefur virk um- ræða um málaflokkinn átt erfitt uppdráttar. Elín Ebba Ásmundsdóttir Höfundur er iðjuþjálfi/dósent við HA og framkvæmdastýra Hlutverkaseturs.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.