Morgunblaðið - 09.10.2009, Page 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 2009
STUTT
Markmið námskeiðsins er að þjálfa fólk til starfa við
bókhaldsstörf. Námið er byggt upp á kennslu í verslunar-
reikningi (24 st.), bókhaldi (36 st.) og tölvubókhaldi (48
st.). Allar námsgreinar eru kenndar frá grunni. Nemendur
þurfa að vera orðnir 18 ára og hafa grunnþekkingu á tölvum.
OFT ER AUGLÝST EFTIR
BÓKARA!
Upplýsingar og skráning:544 4500 / www.ntv.is
108 stundir - Verð: 99.000.-
Verð fyrir atvinnulausa: 74.250.-
Morgunnámskeið byrjar 2. nóvember.
Kvöld- og helgarnámskeið byrjar
2. nóvember.
NÝI TÖLVU- OG VIÐSKIPTASKÓLINN – VIÐURKENNDUR EINKASKÓLI Á FRAMHALDSSKÓLASTIGI
Grunnnám í bókhaldi
Hverja hitti Steingrímur J. Sig-
fússon á fundi AGS í Istanbúl?
Steingrímur hitti meðal annarra
þá Alistair Darling, fjármála-
ráðherra Bretlands, Wouter Bos,
fjármálaráðherra Hollands, og
Dominique Strauss-Kahn, fram-
kvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyr-
issjóðsins.
Einnig hitti hann Dmitri Pankin,
aðstoðarfjármálaráðherra Rúss-
lands, og skrifaði undir lánssamn-
ing með Jan Vincent Rostowski,
fjármálaráðherra Póllands. Hann
fundaði einnig með sendinefnd
Portúgals á fundinum.
S&S
FRÉTTASKÝRING
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
EKKI er enn ljóst hvaða skref
verða næst stigin í Icesave-málinu,
en litlum sögum hefur farið af ár-
angri eða þróun mála í ferð Stein-
gríms J. Sigfússonar fjármálaráð-
herra til Tyrklands.
Í gær var helst að skilja á aðstoð-
armanni hans, Indriða H. Þorláks-
syni, að árangur ferðarinnar lægi í
auknum skilningi stjórnenda Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins á stöðu og
þróun mála hér á landi. Hið sama
gilti um málsaðila í Icesave-deilunni
og sérfræðinga hjá alþjóðlegum
lánshæfismatsfyrirtækjum, fundir
með þeim hafi aukið skilning þeirra
á stöðunni á Íslandi.
Alþingi kemur aftur að málum
Aðspurður sagði Indriði í gær að
nokkuð ljóst þætti nú að Alþingi
þyrfti að hafa aðkomu að Icesave-
málinu á ný. Hann gat ekki svarað
því hversu lengi viðræður við Breta
og Hollendinga myndu standa, um
fyrirvarana við Icesave-samninginn.
Það ætti þó ekki að taka mjög lang-
an tíma, enda hefði verið lögð á það
þung áhersla á fundum í Instanbúl,
ekki síst með hollenska fjármála-
ráðherranum Wouter Bos, að málin
yrðu kláruð hratt og örugglega.
Ekki liggur fyrir á hvaða formi
þessi afskipti Alþingis þurfa að
vera, hvort frumvarp verður lagt
fram eða ekki. Ekki gafst tími til að
ræða ferð Steingríms í ríkisstjórn-
inni í gær, enda fjárlagafrumvarpið
til umræðu á þingi í allan gærdag.
Ríkisstjórnarfundur er hins vegar
ráðgerður fyrir hádegi í dag og
reikna ráðherrar með að skýrsla
verði gefin um ferðina þar.
Allt óbreytt gagnvart þing-
flokkum stjórnarflokkanna
Hvað þingflokk VG snertir er
staðan í Icesave-málinu algerlega
óbreytt. Á miðvikudag í síðustu
viku fundaði þingflokkurinn og
veitti formanni sínum og fjár-
málaráðherra umboð til áframhald-
andi viðræðna við Breta og Hol-
lendinga, um fyrirvarana við
Icesave-samninginn. Þær hafa hald-
ið áfram eins og fyrr segir, meðal
annars á fundum í Tyrklandi, en
ekkert nýtt komið fram. Umboðið
frá þingflokknum stendur óhaggað,
að sögn formannsins, Guðfríðar
Lilju Grétarsdóttur.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins bíða þingmenn þess með
nokkurri óþreyju að eitthvað gerist,
ráðherra gefi Alþingi skýrslu um
gang viðræðnanna eða nýtt frum-
varp verði lagt fram.
Sömu sögu er að segja af þing-
flokki Samfylkingarinnar. Umboð
Jóhönnu Sigurðardóttur til við-
ræðna við Breta og Hollendinga
stendur óhaggað, að sögn Björgvins
G. Sigurðssonar þingflokks-
formanns og ekkert hefur breyst í
málinu eftir ferð Steingríms til
Tyrklands.
Morgunblaðið/Ómar
Á þingflokksfundi Steingrímur J. Sigfússon var ekki fyrr kominn til landsins á miðvikudag en hann sat fundi fram
til miðnættis og mætti svo í Alþingi í gærmorgun. Icesave-málið er hins vegar nokkuð óbreytt frá því hann fór utan.
Nokkuð ljóst að Alþingi
fjallar aftur um Icesave
Formenn stjórnarflokkanna hafa
áframhaldandi umboð þingflokk-
anna til þess að ræða við Breta
og Hollendinga um fyrirvarana
við Icesave-samninginn. Allt er
óbreytt.
Ekkert hefur breyst í þingflokkum stjórnarflokkanna frá því fyrir Tyrklandsförina
ENGAR kröfur eru gerðar af hálfu
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) um
að greitt verði strax til baka það lán
sem sjóðurinn hefur veitt Íslandi, ef
stjórnvöld hér á landi ákveða að slíta
samstarfinu.
Þetta segir Franek Rozwadowski,
sendifulltrúi AGS hér á landi, spurð-
ur hvað verði um það 830 milljón
dollara lán sem sjóðurinn hefur þeg-
ar veitt Íslandi, ef svo fer að Íslend-
ingar hafni frekari aðstoð. Á núvirði
jafngildir þessi upphæð ríflega 100
milljörðum króna.
Greiðslan var innt af hendi í nóv-
ember á síðasta ári. Hún hefur ekki
verið notuð en hefur safnað vöxtum á
reikningi hjá bandaríska seðlabank-
anum.
Eins og fram kom í blaðinu í gær
hefur skapast aukinn vilji til þess á
Alþingi að endurskoða samstarfið
við AGS. Sumir þingmenn vilja
hætta samstarfinu alfarið en ólíklegt
er talið að meirihluti verði fyrir því.
Eru stjórnvöld orðin óþreyjufull
vegna þess dráttar sem hefur orðið á
endurskoðun á samstarfsáætluninni,
sem átti að fara fram í febrúar sl.
„Ísland hefur þegar fengið þessa
peninga að láni,“ segir Rozwadowski
og bendir á að samkvæmt skilmálum
lánsins eigi það að endurgreiðast á
tímabilinu frá rúmum þremur árum
til allt að fimm ára frá því að það var
tekið.
Hann segir enga aukavexti leggj-
ast á endurgreiðsluna ef Íslendingar
ákveða að greiða lánið til baka fyrr
en kveðið var á um. bjb@mbl.is
Ísland þarf ekki
að greiða AGS-
lán strax til baka
Í HNOTSKURN
»Íslensk stjórnvöld sömduvið Alþjóðagjaldeyrissjóð-
inn um 2.100 milljón dollara
lán á síðasta ári.
»Fyrsta greiðsla, 830 millj-ón dollarar, var innt af
hendi í nóvember sl.
»Önnur greiðsla, 155 millj-ón dollarar, átti að koma í
febrúar sl. en hefur ekki skil-
að sér enn.
Engir aukavextir
ef Ísland slítur
samstarfi við AGS
ÁFORMAÐ er að framkvæmdum við
nýbyggingu grunnskóla á Stokks-
eyri ljúki um áramót. Barnaskólinn
á Eyrarbakka og Stokkseyri er tví-
skiptur, kennsla yngri barna verður
á Stokkseyri en þeirra eldri á Eyr-
arbakka og eru um það bil 80 nem-
endur á hvorum stað.
„Á Stokkseyri áformum við að
kenna nemendum í 1. til 4 bekk,“
segir Sigurður Bjarnason verkefn-
isstjóri fræðslumála hjá Sveitarfé-
laginu Árborg. Í skólahúsinu nýja,
sem er 1.810 fermetrar að flat-
armáli, eru fjórar kennslustofur,
auk sérgreinastofa, þar á meðal
bókasafn sem er bæði fyrir skólann
og íbúa í þorpinu. Kostnaður við
framkvæmdina er um hálfur millj-
arður króna. sbs@mbl.is
Byggja nýjan
barnaskóla á
Stokkseyri
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Skólahús Framkvæmdum við skól-
ann á Stokkseyri lýkur um áramót.
LISTAKONAN
og friðarsinninn
Yoko Ono býður
Rauða krossi Ís-
lands að vera
með fjársöfnun í
tengslum við
tendrun Frið-
arsúlunnar í
Viðey og minn-
ingartónleikana
um John Lennon í Hafnarhúsinu í
dag, föstudaginn 9. október.
Sjálfboðaliðar Rauða krossins
munu selja pakka með frið-
arnælum sem hannaðar eru af
Yoko Ono í Hafnarhúsinu í kvöld
og úti í Viðey á föstudags-, laug-
ardags- og sunnudagskvöld, auk
þess að taka við frjálsum fram-
lögum frá fólki. Þá verður söfn-
unarsími Rauða krossins,
904 1500, opinn næstu daga, en
1.500 kr. gjaldfærast af næsta
símreikningi þegar hringt er í
hann.
Safnað verður fyrir verkefni
Rauða krossins í þágu fjölskyldna
sem orðið hafa fyrir áföllum
vegna efnahagsþrenginga und-
anfarna mánuði. Árlega aðstoðar
Rauði krossinn fjölskyldur um allt
land fyrir jólin, og einnig geta
fjölskyldur og einstaklingar sótt
sér stuðning og ráðgjöf í Rauða-
krosshúsið, Borgartúni 25. Starfið
þar er byggt á áralangri reynslu
félagsins af viðbrögðum í neyð.
Starfsemin er síbreytileg þar sem
leitast er við að veita þá aðstoð
sem brýnust er talin hverju sinni.
Rauði kross Íslands hlaut pen-
ingastyrk LennonOno-friðarvið-
urkenningarinnar á síðasta ári.
Yoko Ono safnar
fyrir fjölskyldur
Yoko Ono
LÖGREGLAN í Borgarnesi stöðv-
aði í fyrrakvöld ökumann sem
reyndist vera með 104 e-töflur í fór-
um sínum. Maðurinn er grunaður
um að hafa ekið undir áhrifum
vímuefna. Hann reyndist ekki vera
með ökuréttindi. Annar maður var í
bifreiðinni. Í fórum þeirra, og í bif-
reiðinni, fundust svo talsvert magn
af ætluðum fíkniefnum. Þá segir
lögreglan að farið hafi verið í tvær
húsleitir Akureyri í kjölfarið og
fannst þar einnig nokkurt magn
fíkniefna, íblöndunarefni, tæki og
tól þeim tengdum.
Málið er unnið í samvinnu við
fíkniefnateymi Norðurlands (FÁN)
og í náinni samvinnu við lögreglu á
Blönduósi og Akureyri.
Fundu 104 e-töflur í
fórum ökumanns