Morgunblaðið - 09.10.2009, Page 10

Morgunblaðið - 09.10.2009, Page 10
10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 2009 Við ætlum okkur að borga tutt-ugu milljarða á ári fyrir lán frá AGS, sem við þurfum ekki og viljum ekki. Við ætlum að taka á okkur yfir fjörutíu millj- arða á þessu ári í afturvirkum vöxtum, eins og Ragnar H. Hall hrl. benti á, og þetta er bara byrjunin.     Hver hag-fræðisnill- ingurinn af öðrum segist búinn að reikna það út á vasatölvuna sína að við getum þetta með léttum leik!     Og eftir fá-ein ár ætlum við að taka að okkur að borga sjötíu milljarða (einnig leikandi létt) á einu ári vegna „frábærs samnings“ Steingríms J. um Icesave.     Og hvernig förum við að þvíað gera þetta svona leikandi létt? Jú, svarið er komið. Og þetta var ekki neitt vont eftir allt saman. Við náum þessu úti á landi. Við ætlum að fækka sýslu- mönnum. Við ætlum að leggja niður störf forstöðumanna héraðsdóm- stóla úti á landi og færa skatt- stjórana þaðan til Reykjavíkur.     Og svo ætlum við að færastarfsmenn skattstofunnar í Reykjavík til Hafnarfjarðar til að sýna að landsbyggðin fái eitt- hvað í staðinn. Þetta var þá svona auðvelt.     Og ef svo illa fer að við bætastsvo sem eins og þrjátíu milljónir á ári vegna Icesave getum við alltaf fært einn vita- vörð utan af landi og komið honum fyrir á Vitastíg þar sem hann gerir miklu meira gagn. Steingrímur J. Sigfússon Flott forgangsröðun Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður Reykjavík 2 rigning Lúxemborg 16 skýjað Algarve 24 léttskýjað Bolungarvík 2 skýjað Brussel 16 léttskýjað Madríd 21 léttskýjað Akureyri -1 skýjað Dublin 12 léttskýjað Barcelona 25 léttskýjað Egilsstaðir -3 léttskýjað Glasgow 11 léttskýjað Mallorca 24 léttskýjað Kirkjubæjarkl. 2 alskýjað London 15 heiðskírt Róm 25 heiðskírt Nuuk -3 heiðskírt París 21 skýjað Aþena 26 heiðskírt Þórshöfn 6 léttskýjað Amsterdam 14 léttskýjað Winnipeg 5 alskýjað Ósló 7 skúrir Hamborg 14 léttskýjað Montreal 12 alskýjað Kaupmannahöfn 11 skýjað Berlín 12 léttskýjað New York 14 heiðskírt Stokkhólmur 9 heiðskírt Vín 24 skýjað Chicago 12 alskýjað Helsinki 6 léttskýjað Moskva 14 skúrir Orlando 32 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR 9. október Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 2.56 0,7 9.10 3,8 15.31 0,9 21.37 3,3 8:01 18:30 ÍSAFJÖRÐUR 5.09 0,4 11.14 2,0 17.49 0,5 23.41 1,7 8:11 18:30 SIGLUFJÖRÐUR 1.39 1,2 7.20 0,4 13.40 1,3 20.01 0,3 7:54 18:13 DJÚPIVOGUR 0.05 0,5 6.20 2,1 12.45 0,6 18.32 1,8 7:32 17:58 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið Á laugardag Austan- og norðaustanátt. 15- 20 m/s, slydda eða él norðan- og austanlands, 10-15 sunnan og vestan til og léttir til. Hægari vindur um kvöldið. Hiti 1 til 10 stig, hlýjast suðvestan til. Á sunnudag Norðaustan og austan 5-13 m/s, hvassast við suðaust- aurströndina. Víða bjartviðri, en stöku él norðaustanlands. Hægt vaxandi suðaustanátt og þykknar upp suðvestanlands seinnipartinn. Hiti 1 til 8 stig, en 0 til 6 stiga frost fyrir norðan. Á mánudag Stíf suðaustlæg átt með rign- ingu en úrkomulítið fyrir norð- an. Hlýnandi veður. Á þriðjudag og miðvikudag Suðlæg átt með vætu sunnan- og vestanlands. Hiti 4 til 12 stig, hlýjast norðaustanlands. VEÐRIÐ NÆSTU DAGA SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austanátt, víða 18-25 með rign- ingu og jafnvel mikilli úrkomu suðaustanlands, en hægari norðaustan til og þurrt að kalla fram eftir degi. Heldur hægari vindur suðvestanlands undir kvöld. Hægt hlýnandi og hiti 0 til 6 stig. „VIÐ viljum koma málum þannig fyrir að ráðherra hafi alltaf tvö rök- studd ráðgefandi álit í höndunum þegar hann tekur ákvörðun um heildarafla,“ segir Guðmundur Hall- dórsson, fyrrum formaður Eldingar, félags smábátaeigenda á Vest- fjörðum. Elding ætlar að leggja fram til- lögu á aðalfundi Landsambands smábátaeigenda, að skipuð verði ráðgefandi nefnd sjómanna sem hafi það hlutverk að gefa árlega rök- studda ráðgjöf um heildarafla. Til- lagan gengur út á að sjávarútvegs- ráðherra hafi tvö ráðgefandi álit þegar hann tekur ákvörðun um heildarafla, annars vegar frá vís- indamönnum Hafrannsóknastofn- unar og hins vegar frá sjómönnum. Tillagan er komin frá Guðmundi sem segir að nái hún fram að ganga muni hún breyta mjög miklu í sjávar- útvegi. „Íslendingar hafa ekki lengur efni á að nýta ekki reynsluheim sjó- manna. Nauðsynlegt er að halda ut- an um þekkingu sjómanna og nýta þá reynslu sem þeir afla sér í um- gengni við lífríkið í hafinu. Þetta verður best gert með því að byggja upp gagnagrunn í samvinnu við há- skólasamfélagið um þá þekkingu og reynslu sem sjómenn afla sér í dag- legri umgengni við fiskistofnana um- hverfis landið,“ segir í greinargerð með tillögunni. egol@mbl.is Nefnd sjómanna veiti ráðherra ráðgjöf Vilja að ráðherra hafi tvö álit í hönd- unum þegar hámarksafli er ákveðinn Morgunblaðið/RAX Afli Góður þorskur berst að landi. JÓN Magnússon, lögfræðingur í Reykjavík, kom færandi hendi í Laufás við Eyjafjörð á dögunum. Afhenti þá m.a. nokkrar bækur til varðveislu, þeirra á meðal Biblíu, sem Ingibjörg Magnúsdóttir, amma Jóns, átti og prentuð var í London 1866. Ingibjörg var prests- dóttir og prestsmaddama í Lauf- ási; eiginkona séra Björns Björns- sonar og dóttir séra Magnúsar Jónssonar sem þjónaði á staðnum frá 1883 til 1901, þegar hann lést. Jón færði safninu í Laufási einn- ig kópíu af vatnslitamynd af staðnum sem Bretinn W.B. For- tescue málaði 1913, en hann kom þá, á efri árum, í Laufás til þess að veiða í Fnjóská. Að auki færði Jón Magnússon safninu í Laufási ítarlegar upplýsingar um að- stæður á staðnum árið 1913 sem Guttormur Þormar hefur tekið saman. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Kom færandi hendi í Laufás UMFERÐARSLYSUM á Íslandi hefur fækkað á fyrstu sex mánuðum ársins borið saman við sama tímabil í fyrra. Fyrstu sex mánuði þessa árs hafa 657 slasast í umferðinni en í fyrra höfðu 785 slasast á sama tíma. Fækkunin nemur 16,3%. Þetta kemur fram í slysaskráningu Umferðarstofu sem byggir á upplýsingum úr gagna- grunni lögreglu. Alvarlega slösuðum og látnum fækkar, borið saman við fyrstu sex mánuði ársins 2008, en fjöldinn í ár er svipaður og hann var fyrstu sex mánuði ársins 2007. Slysum fækkar um 16,3% Gjafir Jón Magnússon, lengst til hægri, afhendir gjafirnar í Laufási. Frá vinstri eru Hólmfríður Erlingsdóttir, staðarhaldi, Haraldur Þór Egils- son, safnstjóri Minjasafnsins á Akureyri og séra Bolli Pétur Bollason.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.