Morgunblaðið - 09.10.2009, Síða 11
Fréttir 11INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 2009
BYGGÐARÁÐ Skagafjarðar lýsir
áhyggjum vegna niðurskurðar og
skipulagsbreytinga hjá ríkisvaldinu.
Í fréttatilkynningu segir að byggða-
ráðið hafi fjallað um fjárveitingar til
opinberra stofnana í Skagafirði í
fjárlagafrumvarpinu. „Byggðaráð
lýsir þungum áhyggjum vegna fyr-
irhugaðrar skerðingar á fjárfram-
lögum til opinberra stofnana í sveit-
arfélaginu og fækkunar starfa sem
af því mun leiða, án þess að sýnt sé
að af því hljótist raunverlegur sparn-
aður,“ segir þar. „Er þar sérstaklega
átt við kerfisbreytingar er m.a.
varða Sýslumannsembættið á Sauð-
árkróki og Héraðsdómstól Norður-
lands vestra, sem valda aukinni mið-
stýringu vegna flutnings stjórnun-
arstarfa burt af svæðinu.
Lýsa áhyggjum
Segja miðstýringu aukast vegna flutnings
stjórnunarstarfa burt af landsvæðinu
Eftir Sigurð Boga Sævarsson
sbs@mbl.is
KURR er meðal
Íslendinga í Dan-
mörku vegna
þeirra áforma að
leggja niður emb-
ætti sendiráðs-
prests í Kaup-
mannahöfn. „Við
erum að vonum
slegin yfir þessu,“
segir sr. Þórir
Jökull Þorsteins-
son, sem gegnir embættinu.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu sl. sunnudag þarf Þjóðkirkj-
an að skera niður alls 160 milljónir
króna á næsta ári. Rætt er um að slá
verkefnum á frest og sameina eða
leggja niður embætti, þar á meðal
embætti sendiráðspresta í Kaupa-
mannahöfn og Lundúnum. Síðasta
áratug hefur verið í gildi samningur
milli Tryggingastofnunar og Sjúkra-
trygginga Íslands og Ríkisspítalans í
Kaupmannahöfn um líffæraíg-
ræðslur. Fjöldi íslenskra sjúklinga
hefur farið til slíkra aðgerða á þess-
um tíma. Þessi samningur rennur út
um nk. áramót og þess í stað hefur
verið samið við Sahlgrenska sjúkra-
húsið í Gautaborg. „Einn af tekju-
stofnum embættis sendiráðsprests í
Kaupmannahöfn hefur verið framlag
trygginganna vegna þjónustu við
sjúklingana að heiman, sem fellur
niður um næstu áramót.
„Veikt gengi íslensku krónunnar
ræður mestu um niðurskurðará-
formin,“ segir Þórir Jökull sem þyk-
ir sárt að prestsembættið í Kaup-
mannahöfn verði lagt af, enda eigi
það sér 45 ára sögu. Á þeim tíma
hafi þær þúsundir Íslendinga sem
búa í Danmörku vanist því að geta
sótt íslenskar guðsþjónustur og
fengið aðra prestsþjónustu í sorg og
gleði. Á fundi með íslenska söfn-
uðinum í Kaupmannahöfn nýverið
deildi Karl Sigurbjörnsson biskup
því með fólki að ekki stæði til að
leggja niður safnaðarnefnd og æski-
legt væri að halda úti barnastarfi. Þá
væri gott að halda áfram úti söng-
hópi, því ekki væri loku fyrir skotið
að íslenskur prestur gæti komið að
heiman og þjónað á stórhátíðum, þó
slík farandþjónusta sé tilskilin leyfi
danskra kirkjuyfirvalda, að sögn sr.
Þóris Jökuls.
Prestsembætti
í Köben aflagt
Ísendingar í Dan-
mörku eru slegnir
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Kaupmannahöfn Þúsundir Íslend-
inga búa í Danaveldi og vilja áfram
sinn prest.
Þórir Jökull
Þorsteinsson
Neskaupstaður | Bókasöfn eru til margra hluta nyt-
samleg. Hópur kvenna í Neskaupstað kemur nú saman
á mánudögum á bókasafninu þar sem þær glugga í
prjónabækur hvers konar, prjóna og skiptast á upp-
skriftum og hugmyndum. Á meðan mömmur og ömmur
prjóna dunda börnin sér í notalegu barnahorni þar sem
hægt er að fara í brúðuleikhús, skoða bækur og knúsa
mjúk dýr af ýmsum stærðum og gerðum. Með nýjum
starfskrafti safnsins hafa orðið margskonar breytingar
undanfarið og hafa þær fallið í kramið hjá bæjarbúum.
Morgunblaðið/Kristín Ágústs
„ÞETTA ER SVO SKEMMTILEGT MUNSTUR“
Prúttsala á girðingaeiningum, húsgögnum,
blómapottum og brúm í timbursölu BYKO Breidd.
Komdu og gerðu frábær kaup
PRÚTT
SALA
Timbursala BY
KO Breidd
miðvikudag, fim
mtudag, föstud
ag og laugarda
g
EX
PO
·w
w
w
.e
xp
o.
is
að seljast
Allt á
Þórshöfn | Eldur kviknaði í bifreið
sem stóð inni á verkstæði á Þórshöfn
í gær. Bifreiðin er gjörónýt.
Mikill reykur og hiti var í húsinu.
Reykkafari sá að Hyundai Star bif-
reið var alelda inni. Var bíllinn dreg-
inn út og vel gekk að slökkva eldinn.
Engin slys urðu á fólki en ljóst er að
tjónið á verkstæðinu er tilfinnanlegt
og skemmdir urðu af völdum hita,
reyks og sóts, en ekki var eldur ann-
ars staðar en í bílnum. Líklegt er tal-
ið að kviknað hafi í út frá rafkerfi
bílsins, að sögn lögreglu.
Bifreið stóð alelda
inni á verkstæði