Morgunblaðið - 09.10.2009, Page 14

Morgunblaðið - 09.10.2009, Page 14
14 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 2009 „AÐ keyra ríkishlutann miskunnarlaust áfram felur í sér dauða,“ sagði Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, í umræðunum í gær. Áður hafði hann tæpt á að fjármálaráðherra ætlaði sér að halda sig við áætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) hvað varðaði ríkisfjármálahlutann þrátt fyr- ir að endurskoðun sjóðsins hefði tafist í um níu mánuði og mundi líklega tefjast í um ár. Töfin hefði falið í sér tilheyrandi gjaldeyr- ishöft, háa vexti og vanburðugt bankakerfi. Tryggvi benti á að vöruskiptajöfnuður hefði verið stórkostlega jákvæður frá hruninu, hagvöxtur hefði ekki dregist jafn mikið saman og áætlað var og atvinnuleysi væri minna. Því þyrfti að endurskoða áætlun AGS og fjárlaga- frumvarpið í samhengi við þær staðreyndir. Hann boðaði til- lögur Sjálfstæðisflokks í efnahagsmálum þar sem tekið yrði á þessum atriðum. Að keyra miskunnarlaust áfram felur í sér dauða Tryggvi Þór Herbertsson GUÐMUNDUR Steingrímsson, þingmaður Framsóknarflokks, fór almennt um sviðið í umfjöllun sinni um fjárlagafrumvarpið. Sagðist hann vera að stíga sín fyrstu skref í pólitík og hann hefði í sjálfu sér ekkert betri hugmyndir en þær sem fram væru komnar. Hann væri þó tilbúinn að hlusta ef einhverjir aðrir teldu sig hafa þær. Guðmundur sagði þó að fjárlaganefnd Alþingis þyrfti að hafa nokkra hluti að leiðarljósi. „Mér finnst, þeg- ar ég les fjárlagafrumvarpið núna og fylgi- skjölin, að það þurfi að forgangsraða betur og meira,“ sagði Guðmundur en hann var engu að síður ánægð- ur með þær línur sem voru lagðar – að minna væri skorið niður í velferðarkerfinu og heilbrigðiskerfinu en meira hjá stjórnsýsl- unni. Engu að síður þyrfti meiri kjark, s.s. til að skera ekki nið- ur í umönnun fatlaðra svo dæmi væri nefnt. Allt annað ætti að skera niður áður en kæmi að grunnþjónustunni. Allt skal skera niður á undan grunnþjónustunni Guðmundur Steingrímsson „ÞAÐ AÐ ætla sér að byggja raunhæfar tekjur á tekjuskatti fyrirtækja, sem geta hagrætt sínu bókhaldi og greitt nánast þá skatta sem þau langar til hverju sinni er ekki góð leið til að byggja upp tekjur fyrir rík- issjóð. Það kerfi má endurskoða frá grunni og leggja í staðinn lágan veltuskatt á lög- aðila og leyfa þeim að ráðstafa sínum hagn- aði eins og þeim hentar,“ sagði Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, í umræðum um frumvarp til fjárlaga. Hann sagði vanda fjár- málaráðherra gríðarlegan og í raun að Ís- land væri komið yfir þolmörk í greiðslumöguleikum og huga ætti að greiðslufalli á skuldum. Það væri ekki svo alvarlegt mál. „Ég öfunda ekki hæstvirtan fjármálaráðherra.“ Þór sá þó ekki allt alvont við frumvarpið. Honum líst vel á boðaða orku-, umhverfis- og auðlindaskatta. Þar sé um að ræða grundvallaratriði, að afhenda ekki auðlindir ódýrt eða ókeypis. „Ég öfunda ekki hæst- virtan fjármálaráðherra“ Þór Saari Eftir Andra Karl andri@mbl.is HLUTVERK fjármálaráðherra var ekki öfundsvert í þetta sinn. Að mæla fyrir frumvarpi sem er í senn „sárs- aukafull birtingarmynd þess mikla tjóns, þess skaða sem íslenskt þjóð- arbú og ekki síst ríkissjóður sitja uppi með,“ svo vitnað sé í orð ráð- herrans. En þó að ráðherrann hafi á köflum verið ómyrkur í máli mátti á stundum heyra bjartsýnistón. Með frumvarpinu er boðað eitt það allra erfiðasta sem Alþingi Íslend- inga og íslenskt samfélag hafa þurft að takast á við, sagði Steingrímur Jó- hann Sigfússon fjármálaráðherra. Einnig að vegferðin myndi reyna á þanþol hagkerfisins og hins opin- bera, bæði í efnahagslegum og póli- tískum skilningi. Eftir að hafa farið yfir ýmsar tölur sem fram koma í frumvarpinu sagði Steingrímur að aðgerðaáætlun ríkis- stjórnarinnar miðaðist við að halla í ríkisrekstri yrði snúið í afgang á fjór- um árum. „Það kann að virðast mikið í fang færst en ég hef fulla trú á því að sú áætlun geti gengið eftir ef sam- staða getur orðið um það og við miss- um aldrei sjónar á lokatakmarkinu. Þó að horfur til skamms tíma séu ekki góðar er mikilvægt að við höfum það í huga að til lengri tíma litið eru þær betri en hjá mörgum öðrum, jafnvel flestum öðrum þjóðum.“ Hann bætti við að ýmislegt ynni með okkur Íslendingum. Fullir efasemda Þingmenn stjórnarandstöðunnar voru flestir ef ekki allir fullir efa- semda. Oft kom fram að frumvarpið væri hálfklárað, hulið óvissu og unnið í allt of miklum flýti. Þeir bundu við það vonir að frumvarpinu yrði „snúið á haus“, líkt og Ólöf Nordal orðaði það, eða fengi mikla yfirhalningu í meðförum fjárlaganefndar. Af ræðu Guðbjarts Hannessonar, formanns fjárlaganefndar, að dæma og hans fyrri verkum verður án efa lögð mikil áhersla á að ná samstöðu. Þeirri sömu og Steingrímur kallaði eftir í lokakafla flutningsræðunnar. „Vinnan fram undan er vandasöm en ég treysti fjárlaganefnd og Alþingi til að leysa hana vel af hendi. Það liggur mikið við.“ Meðal þess sem þingmenn Sjálf- stæðisflokks gagnrýndu var að í frumvarpið væru ekki færð vaxta- gjöld vegna Icesave og verðbætur af skuldabréfi Seðlabankans. Samtals næmu þau gjöld um 48 milljörðum króna. Steingrímur svaraði því síðar í um- ræðunni til að þau mál væru í vinnslu í ráðuneytinu enda engin fordæmi fyrir slíkum færslum. Fjárlög sársaukafull birt- ingarmynd efnahagshruns Morgunblaðið/Ómar Fjármálaráðherra telur hægt að snúa halla í ríkisrekstri í afgang á fjórum árum Fyrsta umræða um frumvarp til fjárlaga 2010 stóð frá morgni og fram á kvöld. Umræðan var nokk- uð málefnaleg þó að vitanlega væru skiptar skoðanir á að- ferðafræði ríkisstjórnarinnar. Ræðuflutningur Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, mælti fyrir frumvarpi til fjárlaga 2010 á Alþingi í gær. Hann sagði að með samstöðu og ef allir leggja sitt að mörkum, muni Ísland sigrast á erfiðleikum sínum. Eftir Andra Karl andri@mbl.is HEILDARTEKJUR milli áranna 2008 og 2009 munu dragast saman um 22,9% að raunvirði gangi áætl- anir eftir. Það er langmesti sam- dráttur ríkistekna á einu ári svo langt aftur sem nútíma þjóðhags- reikningar ná, þ.e. til 1945. Þetta kemur fram í frumvarpi til fjár- aukalaga fyrir árið 2009 sem lagt var fram á Alþingi í gær. Þær tillögur sem fram koma í frumvarpinu taka mið af nýrri laga- setningu á árinu, óvissum og ófyr- irséðum útgjöldum og ákvörðunum um ný útgjöld. Niðursveiflan í efna- hagslífinu hafði þannig veruleg áhrif og leiddi m.a. til mikillar aukningar í vaxtakostnaði og útgjöldum vegna atvinnuleysis. Veruleg hækkun gjalda Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að 175,6 milljarða króna halli verði á rekstri ríkissjóðs. Það er 22,5 millj- örðum króna lakari afkoma en gert var ráð fyrir í fjárlögum. Áætlunin var endurskoðuð með hliðsjón af þjóðhagsspá sem fjármálaráðu- neytið birti í byrjun mánaðarins og í ljósi nýrra upplýsinga um þróun tekjustofna. Í frumvarpinu er talið að heildar- tekjur ríkissjóðs verði um 407 millj- arðar króna sem er 4,4 milljörðum króna hærri upphæð en reiknað var með í fjárlögum. Þá eru heildargjöld talin nema rúmum 582 milljörðum króna en það er 26,9 milljörðum hærri upphæð en gert var ráð fyrir við afgreiðslu fjárlaga. Í frumvarpinu er farið fram á að fjárheimildir ríkissjóðs árið 2009 verði auknar um 26,9 milljarða króna. Hins vegar þurfa greiðslu- heimildir að aukast um 28,8 millj- arða króna, en að auki er áætlað að greiddir vextir og greiddar lífeyr- isskuldbindingar séu taldar verða nokkuð hærri en það sem gjaldfært verður á þessa tvo liði. Helsta ástæða þess að farið er fram á svo háa upphæð er hækkun vaxtagjalda. Þau aukast um ríflega 17 milljarða króna, og má rekja þá hækkun að stærstum hluta til end- urfjármögnunar bankanna. Af öðrum stórum útgjaldaliðum eru rúmir þrír milljarðar króna vegna kaupa á nýrri flugvél fyrir Landhelgisgæsluna sem afhent var sl. sumar. Langmesti samdráttur ríkistekna Vaxtagjöld aukast gríðarlega á árinu 2009, skv. frumvarpi til fjáraukalaga, eða um ríflega 17 milljarða. Hækkunina má rekja til endurfjármögnunar bankanna Orðrétt af Alþingi ’[S]annarlega er þetta frumvarpog innihald þess skilgetið af-kvæmi hrunsins sem hér varð.STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON ’ Fjárlagafrumvarp þetta er ekkipólitískur draumóramatseðill,hvorki fyrir mig né nokkurn annan,heldur felur það í sér hið óhjákvæmi-lega. STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON ’Þó að horfur til skamms tíma séuekki góðar er mikilvægt að viðhöfum það í huga að til lengri tíma litiðeru þær betri en hjá mörgum öðrum,jafnvel flestum öðrum þjóðum. STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON ’Ég hef engar aðrar lausnir áhundrað milljarða króna vaxta-reikningi sem blasir við ríkissjóðiásamt minnkandi tekjum heldur en aðfara í aðgerðir af þessu tagi. […] Ég er hins vegar alveg ein eyru gagnvart öll- um öðrum hugmyndum. GUÐMUNDUR STEINGRÍMSSON ’Við stöndum í ströngu í dóms-málaráðuneytinu.RAGNA ÁRNADÓTTIR ’Hvernig hefur Sjálfstæðisflokk-urinn hugsað sér að gera þetta efekki má skera niður né afla tekna?STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON ’Tekjur af fjármálalífinu eru horfn-ar og hrun bankanna skilur eftirsig stórauknar skuldir. Segja má aðfimmta hver króna hafi tapast hjá rík-issjóði og ljóst að ekki er hægt að reka ríkissjóð með lántökum til margra ára. GUÐBJARTUR HANNESSON ’Ef horft er til þess hvernig rík-isstjórnin ber sig að við framlagn-ingu frumvarpsins þá rennur mörgumkalt vatn milli skinns og hörunds. Fyrirþað fyrsta hangir líf stjórnarinnar á bláþræði. Óeining sérstaklega innan annars ríkisstjórnarflokksins þjakar umræðu dagsins og litar stjórnarsam- starfið dökkum litum. KRISTJÁN ÞÓR JÚLÍUSSON ’Við eigum öll eftir að finna fyrirþví að hér er niðurskurður.UNNUR BRÁ KONRÁÐSDÓTTIR ’Ég geri mér það ljóst og sættimig við þá skilgreiningu að efundirstöður atvinnugreina þjóðfélags-ins eru matur og drykkur samfélagsokkar, þá eru menning og listir þau nauðsynlegu vítamín sem hvert þjóð- félag þarf á að halda til þess að vera heilbrigt og til þess að þegnarnir geti verið hamingjusamir. ÞRÁINN BERTELSSON ’Þjóðfélag án menningar og listaer ekki raunverulegt þjóðfélagheldur tímabundið samfélag manna,nokkurs konar verkstöð eða olíu-borpallur þar sem engar kröfur eru gerðar um að lífið sé hamingjuríkt heldur að lífið sé notað til að vinna tímabundin verkefni og skila fjárhags- legum arði. ÞRÁINN BERTELSSON

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.