Morgunblaðið - 09.10.2009, Síða 19
Fréttir 19INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 2009
Eftir Atla Vigfússon
Þingeyjarsveit | „Það var gaman að
lemja í steinana og prófa áhöldin.
Svo var gaman að fræðast um það
hvernig fornmenn unnu verkin sín.“
Þetta sagði Jóel Ævar Matchett
nemandi í 10.bekk Litlulaugaskóla í
Reykjadal en hann ásamt samnem-
endum sínum var í Fornleifaskóla
barnanna um helgina þar sem
margt var á döfinni en steináhalda-
gerð var meginþema dagsins. „Mér
fannst mest gaman að tálga í viðinn
en eiginlega var þetta allt mjög
skemmtilegt og fræðandi,“ sagði Jó-
el og var ánægður með vinnu dags-
ins.
Steináhaldagerð er ætlað að færa
nemendur nær fornum vinnuaðferð-
um og með því að prófa áhöldin eftir
að þau eru tilbúin sést virkni þeirra
og þá er hægt að bera þau saman
við nútímaáhöld. Krakkarnir bjuggu
til skurðaráhöld, undir leiðsögn
fornleifafræðinga, sem þau notuðu
m.a. til þess að flysja og tálga. Þau
eyddu fyrst tíma í sjálfa stein-
áhaldagerðina og var mest unnið
með hrafntinnu. Síðan var tálgað í
tré, tálgað í bein, flysjaðar gulrætur
með steinhníf og pappír skorinn
með steinskurðarhníf.
Fornleifaskólanum var
afhent myndarleg gjöf
Það var dr. Sophia Perdiakaris
prófessor við Brooklyn College í
New York sem fræddi um gerð
steináhaldanna og hvaða upplýs-
ingar það eru sem má fá með því að
rannsaka þau. Þá fræddi Edith
Gonsalez Scollard, sem lengi hefur
unnið við The Long Island Child-
ren’s Museum, um skriflegar heim-
ildir og fór yfir mikilvægi skráninga
og hvernig almenningur getur tekið
þátt í þeim. Að lokum fræddi A.
Reginald Murpy fornleifafræðingur
frá Antígva og Barbúda í Karabíska
hafinu um starf fornleifafræðinga
þar og þátttöku barna í ýmsum
verkefnum sem tengjast fornleifa-
fræði.
Fornleifafræðingarnir voru með
vinnustofu í Litlulaugaskóla bæði
laugardag og sunnudag og þeim til
aðstoðar voru Þóra Pétursdóttir
fornleifafræðingur og Sif Jóhannes-
dóttir þjóðfræðingur. Seinni daginn
mættu yngri nemendur skólans þar
sem þau fengu m.a. að greina í
sundur bein smádýra og spreyta sig
á því að skrifa með fjöðrum. Þá
vakti mikla hrifningu þegar Dr.
Sophia afhenti skólanum tækjabún-
að frá henni og Thomas Mc Govern
fornleifafræðingi með styrk frá
bandaríska vísindasjóðnum, sem
samanstóð af sex gps-handtækjum,
sex myndavélum og einni vídeóvél.
Tæki þessi eiga að nýtast m.a. við
skráning á örnefnum og varðveita
staðstetningu þeirra einnig við að
mæla og mynda tóftir og aðra bú-
setuminjar. Fyrir þetta fengu þau
miklar þakkir.
Það er gaman að búa til steináhöld
Vinnustofa hjá
Fornleifaskóla
barnanna
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Nemandi Jóel Ævar Matchett var ánægður í vinnustofu Fornleifaskólans. Hann er nemandi í Litlulaugaskóla.
Í HNOTSKURN
»Fornleifaskóli barnannavar stofnaður vorið 2007
með það að markmiði að efla
þekkingu og áhuga grunn-
skólabarna á fornleifum og
menningarminjum.
»Fornleifaskólinn er starf-ræktur í nánu samstarfi
við Litlulaugaskóla í Reykja-
dal og hefur fornleifafræðin
verið tvinnuð inn í kennsluna.
»Nemendur hafa kynnstgrunnstefjum í manna- og
dýrabeinafræði og auk þess
útbúið kuml á skólalóðinni.