Morgunblaðið - 09.10.2009, Side 34

Morgunblaðið - 09.10.2009, Side 34
34 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 2009 ✝ Þórir Daníelssonfæddist á Kollu- fossi í Miðfirði í V- Húnavatnssýslu 8. nóvember 1917. Hann lést á Landspít- alanum 30. september 2009. Foreldrar hans voru Daníel Jón- atansson, bóndi á Bjargshóli í Miðfirði, f. 22. nóvember 1860, d. 4. maí 1941, og Ágústa Jónatans- dóttir, f. 1. ágúst 1886, d. 19. apríl 1947. Þórir átti tíu systkini: Elín, f. 1908, d. 1994, Helga, f. 1910, d. 2005, Jónatan Samson, f. 1911, d. 1993, Sigurður, f. 1912, d. 1973, Ingibjörg, f. 1914, d. 1981, Sak- arías, f. 1915, d. 1982, Hreggviður, f. 1916, d. 2004, Sigfús Ragnar, f. 1920, d. 2009, Einar, f. 1921, og Daníel, f. 1923, d. 1997. Árið 1949 kvæntist Þórir Guðmundu Alexand- ersdóttur, f. 11. mars 1926, d. 17. Þresti Jóni Sigurðssyni, f. 3. júlí 1973, börn þeirra eru Sigurður Við- ar, f. 27. ágúst 2004, og Tinna Kar- ítas, f. 10.7. 2009, Alexander, f. 16. apríl 1986. 4) Alexander Björgvin, f. 2. janúar 1960, maki var Oddný Guðmundsdóttir, f. 11. júlí 1959, þau skildu. Börn þeirra eru Stefán Arnar, f. 24. maí 1992, og Hildur, f. 21. janúar 1996. Þórir fór í héraðsskólann í Reyk- holti veturinn 1937-1938. Þórir og Guðmunda stofnuðu heimili að Laufásvegi 60 árið 1948. Þaðan fluttust þau að Bústaðavegi 85 og bjuggu þar til árins 1959. Þá flutt- ust þau í Kópavog, fyrst að Álfhóls- vegi 67 þar sem þau bjuggu í rúm 36 ár. Árið 1996 fluttu þau að Gull- smára 9 og bjó Þórir þar til ársins 2005. Þá flutti hann að Skjólbraut 1a þar sem hann bjó til æviloka. Þórir bjó í Kópavogi í 50 ár. Þórir starfaði lengst af hjá Mjólkursam- sölunni eða frá 1951 til 1980. Hann starfaði svo hjá Snælandsskóla frá 1982 til 1986. Útför Þóris fer fram frá Digra- neskirkju í dag, 9. október og hefst athöfnin kl. 13. Meira: mbl.is/minningar október 1999. Þau eignuðust fjögur börn. Þau eru: 1) Mar- grét Berta, f. 2. júlí 1949, maki Magnús Jónsson, f. 19. febrúar 1948. Börn þeirra eru Þórir, f. 8. júlí 1971, kvæntur Áslaugu Jónasdóttur, f. 26. nóvember 1968. Börn þeirra eru Margrét Vala, f. 29. júní 1998 og Jónas, f. 12. febr- úar 2002, Kristjana, f. 18. desember 1973, Jón Bjarni og Jón Birgir, f. 6. maí 1980. 2) Daníel Ágúst, f. 24. ágúst 1951, maki var Guðrún Jónasdóttir, f. 6. nóvember 1948, þau skildu. Börn þeirra eru Auður, f. 14. maí 1975, Þórir, f. 28. desember 1979, og Daníel Þór, f. 11. september 1983. 3) Helgi, f. 1. júní 1953, maki Ingibjörg Þorkelsdóttir, f. 30. ágúst 1958. Börn þeirra eru Kolbrún Pál- ína, f. 9. maí 1980, í sambúð með Elsku pabbi, Nú ert þú búinn að fá hvíldina sem þú varst búinn að biðja svo lengi um. Síðustu orðin þín voru að þig langaði til að fara heim. Þangað ert þú kominn núna. Þú varst ekki bara dásamlegur pabbi heldur líka félagi og vinur. Margar góðar minningar hlaðast upp. Þú varst þessi yndislegi pabbi sem maður gat alltaf leitað til. Þú varst besta fyrirmyndin sem maður gat hugsað sér. Minningarnar frá því þú byrjaðir að byggja á Álfhóls- veginum en þá fórum við Helgi oft dagsferðir yfir dalinn til að fá fylgj- ast með. Það voru ófáir dagarnir sem þú komst og dvaldir hjá mér er ég veiktist fyrst. Fyrsta ferðin ykk- ar mömmu erlendis var þegar þið komuð í heimsókn til okkar Guð- rúnar á Spáni. Þú þurftir að sjá svo margt. Þið mamma fóruð til Mar- okkó og til Granada. Margar ferð- ina fórum við saman. Ferðin okkar til Mexíkó var ógleymanleg. Þig langaði að sjá Kyrrahafið. Þú heillaðist af þessu lífsglaða fólki og dáðist af tónlistinni og matargerð þess. Þú varst svo fé- lagslyndur. Það var ekki liðinn fyrsti dagurinn áður en þú hafðir spjallað við alla okkar ferðafélaga. Næsta ferðin okkar var inn á Sa- hara. Það var líka ógleymanleg ferð en ekki heillaði matargerðin þeirra innfæddu okkur. Við komum seint um kvöld í þorp eitt og fengum kjötrétt á okkar borð. Þetta var versta máltíð sem við höfum smakk- að en þetta voru úlfaldaleggir, ól- seigir og bragðvondir, svo það voru svangir feðgar sem gengu til hvílu þetta kvöldið. Fleiri ferðir fórum við saman, bæði til Majorka og Kanarí. Það voru forréttindi að fá ferðast svona mikið með þér. Þú varst svo vel les- inn að það var alveg sama hvar við vorum. Hvort það var í Mexíkó eða Sahara, þú hafðir frá svo mörgu að segja. Þú reyndist líka börnunum mín- um, þeim Auði, Þóri og Daníel Þór góður afi og Guðrúnu góður tengda- faðir. Ég á eftir að sakna þín mikið. En allar þessar ljúfu minningar eiga eftir að hjálpa mér. Síðustu árin bjó pabbi á Skjól- brautinni 1. Alveg frá fyrsta degi fannst pabba það vera heimili sitt og vil ég þakka Helgu, Hrafnhildi og þeirra góða starfsfólki fyrir það hlýja við- mót sem þið sýnduð pabba. Þinn sonur, Daníel. Elsku pabbi. Það er erfitt að kveðja þig. Þú kenndir mér svo margt og gerðir það með góðu fordæmi. Eitt af því sem ég lærði af þér var að hafa framtíðarsýn. Þú byggðir æsku- heimilið okkar á Álfhólsveginum af ótrúlegum dugnaði. Þú fórst eftir langan vinnudag til að vinna við húsið á kvöldin og um helgar. Þú sýndir okkur hvernig með þraut- seigju, vinnusemi og framtíðarsýn hægt er að ná árangri við erfiðar aðstæður. Það sama á við um Bjargshólsl- und, minningarland um foreldra þína norður í Miðfirði, á þínum æskuslóðum. Þegar verið var að skipuleggja landið, sem var lítið annað en móar og melar, þá vantaði nafn á það. Þú komst með tillögu um nafnið Bjargshólslundur. Þeir voru til sem töldu varla mögulegt að rækta skóg þarna. Þá fórst þú á undan og byrjaðir með þinn eiginn skógarlund sem þú ræktaðir af mik- illi elju. Þú naust þess svo að planta trjám og vinna við gróðurinn fyrir norðan. Innan fárra ára sást á þín- um lundi að það var vel hægt að rækta skóg þarna. Þegar þú komst með tillögu um nafnið Bjargshólsl- undur þá varstu ekki að horfa á landið eins og það var heldur eins og það yrði eftir einhverja áratugi. Nú, um tveimur áratugum síðar, þá er kominn þarna fallegur skógar- lundur, svo fallegur að eftir er tek- ið. Þú sást þetta fyrir og áttir mik- inn þátt í að gera þetta að veruleika. Bjargshólslundur stend- ur því undir nafni í dag. Þú fórst norður með mér í síðasta skipti einn fallegan dag í ágúst, 2007. Þú skoðaðir lundinn þinn og landið allt. Þú komst líka við í kirkjugarðinum á Melstað þar sem foreldrar þínir, Helga og Hreggi hvíla. Þú vissir að þetta yrði síðasta ferðin þín norður því þú áttir orðið eriftt með að sitja lengi í bíl. Þegar við töluðum saman þá gleymdi ég því iðulega hvað þú varst orðinn gamall. Þú sýndir mér fram á að aldur er afstæður. Þeir sem umgengust þig höfðu orð á þessu. Með því að vera alltaf að, hafa eitthvað skemmtilegt og gef- andi fyrir stafni þá er hægt að vera ungur í anda svo lengi. Þú áttir ekki kost á langskólanámi eins og þú hefðir svo gjarnan viljað. Þú bættir þér það upp með því að viða stöðugt að þér fróðleik. Þú varst sérstak- lega vel lesinn og vel að þér á svo mörgum sviðum. Það leið varla sá dagur að þú tækir þér ekki bók í hönd. Enda var bókasafnið á Álf- hólsveginum stórt. Þú hefur alltaf stutt mig í því sem ég hef tekið mér fyrir hendur. Það gladdi þig að ég skyldi fara í lang- skólanám og þú studdir mig í því. Þú og mamma heimsóttuð okkur Oddnýju út til Bandaríkjanna. Þú fylgdist líka með öllum barnabörn- unum og barnabarnabörnunum. Stefán Arnar og Hildur fóru stolt með einkunnir sínar til þín. Þú sýndir þeim og því sem þau tóku sér fyrir hendur svo mikinn áhuga. Þau eiga fallegar minningar um yndislegan og kærleiksríkan afa. Þau eiga eftir að sakna þín mikið. Þú varst ekki bara góður faðir held- ur vinur líka. Þú hefur alltaf verið til staðar fyrir mig og fyrir það er ég afar þakklátur. Ég á eftir að sakna þín mikið. „... og bænar bið ég þér, að ávallt geymi þig Guð í hendi sér. (Þýð. Bjarni Stefán Konráðsson.) Þinn sonur, Alexander. Ég kveð afa minn í dag. Eftir standa óteljandi minningar um góðan mann. Ég og Þórir bróðir gistum ósjaldan í rauða sófanum á Álfhólsveginum. Við nutum þess að vera umvafin ást og hlýju ömmu og afa. Amma var húsmóðir fram í fingurgómana og saman sáu þau til þess að okkur skorti ekkert. Afi var traustur og ekki fór á milli mála að honum þótti vænt um skottuna sína. Það var sérstaklega ánægjulegt fyrir mig að fá afa í heimsókn til Kaupmannahafnar þegar ég bjó þar fyrir nokkrum ár- um. Hann naut þess að skoða sig um í borg sem hann hafði lesið um í fleiri áratugi en aldrei látið verða af því að heimsækja. Á ferðum okkar um borgin fræddi hann mig um sögu borgarinnar og sagði mér sög- ur um Íslendinga í Kaupmannahöfn. Afi var víðlesinn með eindæmum og mikill áhugamaður um góðar bókmenntir og ljóðlist. Elsku afi minn, hvíl í friði og kærleik. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Kristjana Magnúsdóttir. Þórir Daníelsson ✝ Árni Þorkelssonfæddist í Reykja- vík 27. desember 1942. Hann lést á Hrafnistu í Hafn- arfirði 30. september sl. Foreldrar hans voru Þorkell Lúðvík Ingvarsson, f. 23. ágúst 1905, d. 16. júlí 1987, og Sigríður Svava Árnadóttir, f. 7. febrúar 1906, d. 15. nóvember 1963. Árni kvæntist El- ínu Nóadóttur 4. júlí 1964, þau skildu. Dóttir þeirra er Svava Árnadóttir, f. 3. mars 1961, maki Hjálmur Nordal, f. 5. desember 1959, þau skildu. Synir þeirra eru Þorkell, f. 31. mars 1992, og Jón, f. Árni gekk í Austurbæjarskólann og lagði svo leið sína í Verknáms- skólann og þaðan í Iðnskólann í Reykjavík þar sem hann lærði út- varpsvirkjun, hann útskrifaðist 1965. Árni var á samning hjá Hljómi en seinna meir stofnuðu hann og Sveinn Jónsson fyrirtækið Radíó- stofuna (1964-1980). Þegar Árni hætti þeim rekstri vann hann um tíma við störf hjá heildverslun A.J. Bertelsen. Þaðan fór hann svo til Tollstjórans í Reykjavík þar sem hann starfaði meðan heilsan leyfði. Árni bjó lengst af í Reykjavík, en flutti til Hafnarfjarðar 1988. Þegar heilsu hans fór verulega að hraka fluttist hann á Hrafnistu í Hafn- arfirði, hjúkrunardeild 2B, þar sem hann naut yndislegrar virðingar og umönnunar síðustu æviárin. Jarðarför Árna fer fram frá Frí- kirkjunni í Hafnarfirði í dag, föstu- daginn 9. október, og hefst athöfn- in kl. 13. 28. febrúar 1995. Seinni kona Árna er Kolbrún Kristín Jóhannsdóttir, f. 12. júlí 1951, Þau gengu í hjónaband 25. ágúst 1990. Börn Kolbrúnar eru 1. Örn Hrafnkels- son, maki Þórunn Njálsdóttir, börn þeirra eru Örlygur Sturla og Melkorka Assa. 2. Haraldur Logi, unnusta Drífa Kristjánsdóttir, börn Haraldar eru Guðjón Logi, Salma Björk og Ragnheiður Kolbrún, dóttir Drífu er Sara Jas- mín. 3. Eva Dóra Kolbrúnardóttir maki Anton Ingibjartur Antonsson, dætur þeirra eru Kolbrún Kristín og Lovísa Björt. Elsku pabbi. Það er mjög skrýtið að setjast nið- ur og ætla að skrifa um þig minning- arorð. Þú sem varst nú ekki svo miklu eldri en ég. Orð mega sín svo lítils á svona stundum. Minningarn- ar hrannast upp í huga manns og erfitt að vita hvar á að byrja. Ég var einkadóttir þín og eina barnabarna Þorkels afa. það var nú ekki leið- inlegt að vera prinsessan ykkar. Þegar ég var lítil stelpa fannst mér eins og þið tveir, karlarnir í mínu lífi, væruð eilífir en ég veit að svo er ekki. Nú eruð þið afi báðir farnir og hafið örugglega hitt hvor annan. Ég hef enn tvo karlmenn mér við hlið sem eru barnabörnin þín tvö, Þorkell og Jón. Elsku pabbi minn. Þín verður sárt saknað en góðar minningar um þig sem pabba er það sem situr eftir þegar minningabókinni er flett. Guð geymi þig og varðveiti. Ég veit að englarnir munu passa þig vel. Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgrímur Pétursson.) Þín dóttir, Svava. Látinn er æskuvinur minn og fé- lagi Árni Þorkelsson. Í nokkrum orðum langar mig til að minnast hans og þakka fyrir þau forréttindi að hafa kynnst Árna. Það byrjaði með venjulegum strákaleikjum á Sjafnargötunni í lok stríðsins og með forvitni um banda- ríska kampinn á Skólavörðuholtinu, leik með alvöru tindátum. Síðan ger- ist það að við Árni lærum útvarps- virkjun saman, bæði í Iðnskólanum og í Hljómi, hjá þeim höfðingjum Þórmundi og Sigursteini. Á námstímanum kynntumst við stelpum, vinkonum úr Skerjafirðin- um, sem síðan leiddi til hjónabands hjá okkur báðum. Árni eignaðist vel- heppnaða einkadóttur, Svövu, með Ellu sinni, en eignaðist ekki fleiri börn. Við ferðuðumst saman með kærustunum okkar tvær svo eftir- minnilegar ferðir, að enn í dag er ég undrandi yfir. Ferð á Dodge drossí- unni hans Kela pabba hans. Við vor- um 6 manns með allan útilegufar- angur, mat og aðrar vistir allt í þessum bíl, á vegunum eins og þeir voru í þá daga. Árni var þeim eiginleikum búinn að vera mikill lífskúnstner og hafa mikla þekkingu á t.d. landinu okkar. Við skoðuðum bókstaflega hvern einasta stað og þekkt kennimerki á landinu, en þurftum að snúa við á Höfn þar sem engin brú var komin á sandana á suðurlandinu. Mér hefur ekki tekist enn að heimsækja alla þessa staði aftur þrátt fyrir tíð ferðalög um landið. Ferðin þessi stóð í um tvær vikur og ég held að það hafi rignt allflesta daga ferða- lagsins, og oftar en ekki bókstaflega flaut matur og farangur út úr tjöld- unum, og ekki beint gott að taka saman hlaða bílinn og leggja í’ann aftur. Hin ferðin sem er svo eftirminni- leg var þegar Árni, Ella og Sigga konan mín, komu og sóttu mig til Danmerkur eftir nám mitt þar. Við ferðuðumst um Danmörk og síðan England og komum heim með Gull- fossi frá Edinborg. Víð eigum svo margar myndir og minningar um þessa ferð að aldrei gleymist. Ekki má gleyma hinum frábæru árlegu ferðum með eldri útvarps- virkjum hvert einasta haust, en Árni tók þátt í þeim flestum, allt fram til þess að veikindi hömluðu honum þátttöku. Við Árni stofnuðum í sameiningu fyrirtækið Radióstofan sem starfaði að útvarps- og sjónvarpsviðgerðum, og síðar fyrirtækjaþjónustu á Raf- eindasviði í áratugi, en Árni fór síð- an til starfa hjá föður sínum Þorkeli Ingvarssyni hjá fyrirtækinu AJ Ber- telsen, og enn síðar fór hann til Toll- stjórans í Reykjavík, og þar var gott að leita í smiðju Árna varðandi toll- flokka á flóknum rafeindabúnaði, og oft fannst mér eins og hann kynni heilu Tollskrána utanbókar, og skildi svo vel eiginleika vöru til tollflokka. Árni kvæntist aftur henni Kol- brúnu, Kollu, sem ég held að hafi verið þvílíkt gæfuspor, og þegar veikindin sem nú hafa dregið þennan góða dreng til dauða, var Kolla alveg einstök í umhyggju og hjálpsemi all- ar stundir, og meðan hann dvaldist á Hrafnistu og þurfti mikla þjónustu, var hún alltaf til taks. Kolla mín, Svava, fjöldskyldur ykkar. Ég og Sigga mín vottum ykk- ur samúð okkar, kærar þakkir fyrir allt og allt. Sveinn Þ. Jónsson. Kveðja frá R.Á.F. Í 46 ár hefur þessi hópur sem kall- ar sig „Rafeindavirkjar Á Ferð“ ferðast saman um landið á hverju hausti. Árni Þorkelsson hefur verið með í þessum ferðum frá upphafi þar til hann veiktist alvarlega fyrir nokkrum árum. Það er kannski um- hugsunarvert að Árni lést 2 dögum fyrir síðustu ferð okkar og hefur örugglega verið með okkur hafi ein- hver möguleiki verið á því. En nú hefur vinur okkar og félagi lagt í sína lengstu og hinstu för. Við sitjum eftir með ljúfar og góðar minningar um góðan dreng. Árni var mikill lífskúnstner, það var sama hvernig veður eða aðrar aðstæður voru, Árni dró upp grill og stórsteikur. Hann vildi alvöru mat- aráhöld, ekkert pappadrasl, maður hafði oft á tilfinningunni að upp kæmu kristalsglös og Mávastell. Árni tók mikið af myndum og þá sérstaklega kvikmyndir og seinna meir var vídeó vélin á fullu. Í öllum þessum myndum kemur fram þessi hnitmiðaði húmor og glöggt auga á myndefninu sem Árni hafði. Árni lærði útvarpsvirkjun, eins og það hét þá, hjá viðtækjaverkstæðinu Hljómi og rak síðan í mörg ár ásamt félaga sínum Sveini Jónssyni, Radíó- stofuna hf. Síðust æviárin vann Árni hjá skrifstofu Tollstjóra. Við R.Á.F. félagar sendum ætt- ingjum og vinum Árna okkar inni- legustu samúðarkveðjur, blessuð sé minning góðs drengs. Grétar F. Felixson. Árni Þorkelsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.