Morgunblaðið - 09.10.2009, Page 41

Morgunblaðið - 09.10.2009, Page 41
Velvakandi 41 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 2009 Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ER EIN- HVER HEIMA? NEI FÓLK HEFUR ALDREI HALDIÐ ÞVÍ FRAM AÐ FUGLAR SÉU KLÁRIR MIKIÐ ER ÞETTA FALLEGUR FLUGDREKI HJÁ ÞÉR, LÍSA! BJÓSTU HANN TIL SJÁLF? HANN ER MJÖG FLOTTUR! HANN ER SVO FALLEGA LJÓSBLÁR. HANN ER ALVEG EINS Á LITINN OG... ...TEPPIÐ MITT!! FYRIR ÞESSA ÓHLÝÐNI GERI ÉG ÞIG HÉR MEÐ AÐ LUKKUDÝRI FÉLAGSINS! ER ÞAÐ JÁ?!? ÞÚ GETUR GERT ÞAÐ SEM ÞÚ VILT! ÉG ER HÆTTUR! ÉG ÆTLA AÐ BÚA TIL MITT EIGIÐ FÉLAG OG ÞAÐ VERÐUR MIKLU BETRA EN ÞITT! FÉLAGIÐ ÞITT VERÐUR EKKI NÆRRI ÞVÍ JAFN FLOTT OG MITT! ÉG ÆTLA AÐ KALLA FÉLAGIÐ, „K.E.A.“ K.E.A.? FYRIR HVAÐ STENDUR ÞAÐ? KALVIN ER AULI! ÞAÐ ER ASNALEGT NAFN Á FÉLAGI! ÉG ELDAÐI ÞVÍ MIÐUR EKKI NÓG TIL AÐ GETA BOÐIÐ ÞÉR Í MAT AL GORE ER KOMINN TIL AÐ TALA VIÐ ÞIG UM KATTA- SANDINN ÞINN NJÁLL, ELSKAN... ER ALLT Í LAGI? ÞETTA ER ÚT AF ÞVÍ SEM LALLI SAGÐI... UM ÞAÐ AÐ FAGNA ÞVÍ AÐ VERA FRJÁLS ÞEGAR ÉG VAR UNGUR TÓK ÉG MARGAR RANGAR ÁKVARÐANIR OG VAR Í FANGELSI UM TÍMA ÉG Á ALLTAF EFTIR AÐ MUNA HVAÐ ÉG VAR EINMANA OG HRÆDDUR. ÉG ÞAKKA FYRIR ÞAÐ Á HVERJUM DEGI AÐ VERA FRJÁLS ÉG EYÐILAGÐI ALLT, ER ÞAÐ EKKI? NEI! ALLS EKKI! SNIFF NÚNA ÆTLAR ÞÚ AÐ KOMA ÞÉR HÉÐAN, ER ÞAÐ EKKI, VULTURE? FYRIRGEFÐU!... ÉG MEINA DRAGO... ÞÚ HEITIR DRAGO! MUNDU AÐ ÞÚ LOFAÐIR AÐ TAKA MIG MEÐ ÞÉR ÞEGAR ÞÚ BRÝST HÉÐAN ÚT AUÐVITAÐ TEK ÉG ÞIG MEÐ VEL GERT! ÞETTA ER NÁKVÆMLEGA ÞAÐ SEM ÉG ÞURFTI Útrásarvíkingar í íslenskum sendiráðum? HVERSU oft heyrum við ekki talað um svo- kallaða „útrásarvíkinga“ og hversu oft eru þeir sakaðir um kreppuna hérlendis, sem sífellt er í fréttunum? Nýlega sást þó orðið „fjármálajöfr- ar“, en í Íslenskri orða- bók stendur að orðið „jöfur“ þýði „konungur“, „skáld“ og einnig „iðn- jöfur“ og „auðjöfur“. Í gamla daga lærði ég í skóla að landnámsmennirnir okkar hefðu flestir verið friðsamir bænda- synir frá Noregi, sem voru í leit að landnæði. Þá voru það elstu synir bændanna, sem erfðu land þeirra, en þá var einmitt skortur á landnæði fyrir þá yngri. Nokkrir þeirra höfðu heyrt um land í norðri, þar sem væri nóg landrými, og lögðu því upp í leit- arferð (skoðunarferð?). Fyrstu bændasynirnir lögðu af stað frá ákveðinni vík í Óslóarfirði, sem kallast Víkin. Þar af leiðandi voru þeir kallaðir víkingar, en síðan komu aðrir, sem voru frá öðrum stöð- um í Noregi, eins og t.d. Ingólfur Arnarson, sem kom frá Dalsfirði. Sögukennarinn sagði okkur líka að aðeins tveir eða í mesta lagi þrír þeirra, sem settust að á Íslandi, hefðu farið „í víking“ frá Íslandi til annarra landa. Fyrir nokkrum ár- um sýndi Ríkissjón- varpið viðtal við ís- lenskan sendiherra í Svíþjóð. Þar sagði hann okkur frá ný- legri endurnýjun á sendiherrabústaðnum í Stokkhólmi og m.a. kom þar fram að flest öll húsgögnin og ann- að tilheyrandi í sendi- herrabústaðnum hefði verið sérhannað fyrir íslenska sendiráðið af ákveðnum þekktum listamönnum. Mér krossbrá þegar ég sá þetta á skjánum og velti fyrir mér hvað þetta allt saman hefði nú kostað okkar fámennu íslensku þjóð. Voru það kannski íslenskir útrásarvík- ingar, sem þar réðu ferð? Getur verið að umræddur sendiherra í Svíþjóð hafi nýlega, fyrir hönd íslenska rík- isins, samið um afsláttarkjör við er- lenda kröfuhafa vegna kreppunnar hér? Nýjustu fréttir herma að nú, einmitt vegna kreppunnar hér, eigi að fækka í íslenskum sendiráðum er- lendis. Var það ekki löngu tímabært? Var virkilega nauðsynlegt að kaupa sérhönnuð og rándýr húsgögn og listaverk fyrir íslenskt sendiráð er- lendis? Hagsýnn eldri borgari.         Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Opin vinnustofa kl. 9- 16.30, útskurður kl. 13, bingó kl. 13.30. Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16. Opin smíðastofa 9-16.30, bingó kl. 13.30. Dalbraut 18-20 | Söngstund kl. 14. Félag eldri borgara í Kópavogi | Opið hús FEBK í félagsheimilinu Gullsmára á morgun, 10. okt. kl. 14. Tískusýning frá frá Dalakofanum og Dressmann, veit- ingar í boði FEBK. Einnig verður Skvettu- ball á sama stað kl. 20-23. Þorvaldur Halldórsson leikur og syngur. Félag eldri borgara, Reykjavík | Dans- leikur á sunnudagskvöld kl. 20 í Stang- arhyl 4, Klassík leikur fyrir dansi. Félagsheimilið Gjábakki | Botsía kl. 9.30 og 13, málm- og silfursmíði kl. 9.30, jóga kl. 10.50, spænska kl. 13 og félagsvist kl. 20.30. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefn- aður, jóga og trjáálfar kl. 9.30, ganga kl. 10, leikfimi kl. 10.30, bingó kl. 13.30. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Opnar vinnustofur í Jónshúsi kl. 9.30- 12.30, hádegismatur, félagsvist og ullar- þæfing á silki kl. 13, kaffi. Félagsstarf eldri borgara í Mos- fellsbæ | Farið verður í Listasafn Íslands og síðan í kaffihlaðborð á Icelandair hot- el. Lagt af stað frá Hlaðhömrum kl. 13. Skráning í síma 586-8014 e.h. og 692- 0814. Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur opnar kl. 9-16.30, m.a. bókband, prjóna- kaffi/bragakaffi kl. 10, ganga m/ leið- sögn í stafagöngu kl. 10.30. Frá hádegi er spilasalur opinn, bókband kl. 14.30. Furugerði 1, félagsstarf | Framhalds- sagan Myrká, eftir Arnald Indriðason lesin kl. 15, kaffi. Hraunbær 105 | Handavinna og bað- þjónusta kl. 9, matur, bingó kl. 13.30, bókabíllinn, kl. 14.45, kaffi. Hraunsel | Rabb kl. 9, bókmennta-/ söguklúbbur kl. 9.30, leikfimi kl. 11.30, brids kl. 12, tréskurður kl. 13. Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa kl. 9, postulínsmálun og lífsorkuleikfimi kl. 9 og 10, námskeið í myndlist kl. 13. Sviðaveisla, húsið opnar kl. 18. Böðun fyrir hádegi. Hæðargarður 31 | Kaffi og heimsókn nema í tómstunda- og félagsfræðum frá Háskóla Íslands kl. 9. Stefánsganga kl. 9.10, listasmiðja kl. 9-16, Taichi kl. 9, leikfimi kl. 10, hláturhópur 13.30. Gáfu- mannakaffi kl. 15 og bíó kl. 15.30, Land og synir. Uppl. 411-2790. Íþróttafélagið Glóð | Botsía í Gjábakka kl. 13. Uppl. í síma 564-1490 og á glod.is Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Opið hús, sýning: handverk og hönnun, á t.d. text- ílvinnu, bútasaum, prjónaskap mál- verkum og glerlist. Kynning fer fram á vikulegum viðburðum svo sem; söng og tónlistartímum, vísnaklúbbi, fræðslu- fundum heilsueflingu og listgreinum. Veitingar til sölu. Norðurbrún 1 | Myndlist, opin vinnu- stofa, útskurður kl. 9-12, leikfimi með Sólveigu kl. 13 í borðsal. Vesturgata 7 | Skartgripagerð/ kortagerð kl. 9.15-14.30, glerbræðsla kl. 9.15, spænska kl. 9, matur, tölvukennsla kl. 13, sungið v/flygilinn kl. 13.30, veit- ingar og dansað í aðalsal kl. 14.30. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, leir- mótun, handavinnustofan opin, morg- unstund kl. 9.30, leikfimi kl. 10.15, bingó kl. 13.30. Uppl. í síma 411-9450. Þórðarsveigur 3 | Salurinn opnar kl. 9, bingó kl. 15.30, kaffi. ÞAÐ getur reynt á þolrifin að vera á ferð í umferðinni þegar umferðar- þunginn er hvað mestur. Ekki bætir úr skák þegar snjór og hálka eru farin að gera bíleigendum skráveifu, en þá getur gert gæfumuninn að hreinsa rúðurnar á bílnum til að hafa sem besta yfirsýn. Morgunblaðið/Kristinn Þolinmæði í umferðinni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.