Morgunblaðið - 22.10.2009, Síða 6

Morgunblaðið - 22.10.2009, Síða 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2009 holar@simnet.is PAPA JAZZ Ævisaga Guðmundar Steingrímssonar er jafnframt saga djass- og dægurtónlistar á Íslandi. Hér tvinnast þetta saman og útkoman er bæði fróðleg og skemmtileg; sögur af sviðinu og baksviðs, spaugileg atvik og erfiðleikar og allt þar á milli. PAPA JAZZ er bók sem enginn tónlistaráhugamaður lætur fram hjá sér fara. FRÉTTASKÝRING Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is ÁTTA manns eru nú í gæslu- varðhaldi vegna mansalsmálsins, 5 Litháar og 3 Íslendingar. Þess utan eru væntanlegir til landsins tveir Ís- lendingar sem hlotið hafa fangels- isdóm í öðru landi en óskuðu þess að afplána hann hér heima. Öll fangelsi landsins eru hins- vegar yfirfull eins og sagt var frá í Morgunblaðinu í gær og hvar á þá að geyma þessa menn? „Svarið er mjög einfalt,“ segir Páll Winkel fangels- ismálastjóri, „við getum ekki brugð- ist við þessu, því við eigum ekkert pláss, við getum ekki meir.“ Lögreglan á Suðurnesjum mun því taka að sér að hýsa gæslu- varðhaldsfangana eins og hún hefur nú ítrekað þurft að gera. Lögreglustöðvar landsins eru hinsvegar ekki ætlaðar til annars en skammtíma fangageymslu og þar er því gengið á mannréttindi fanganna. „Það er engin aðstaða á lög- reglustöðvum til að fullnægja laga- skyldum um gæsluvarðhaldsfanga, hvað þá afplánunarfanga,“ segir Páll. Klefar lögreglustöðvanna eru því neyðarúrræði í sprungnu kerfi. Orsök þess að fangelsin hafa sprengt utan af sér má m.a. rekja til þess að refsingar hafa þyngst. Eftir því sem dómarnir eru lengri sitja menn lengur inni. Þannig myndast tappi í kerfinu á meðan fangels- isrýmum fjölgar ekki í samræmi. Þessi þróun endurspeglast að hluta í fleiri gæsluvarðhaldsdómum, en það eru jafnan alvarlegustu glæp- irnir sem leiða til gæsluvarðahalds og síðar þyngstu dómanna. Hættulegir glæpamenn Á 10 ára tímabili, frá 1998 til 2008, hefur úrskurðum í gæsluvarðahald fjölgað úr 47 á ári í 152 á ári. Þessa stundina sitja 26 manns í gæslu- varðhaldi, þar af eru 16 útlendingar. Íslenska fangelsiskerfið er illa undir það búið að sinna þessari fjölg- un erlendra gæsluvarðhaldsfanga, ekki síst þar sem yfirvöld vita oftar en ekki sáralítið um þá, að sögn Páls. „Það hefur núna ítrekað komið upp að þetta eru einstaklingar sem hafa strokið úr öryggisfangelsum, eru dæmdir fyrir manndráp, hafa ráðist á fangaverði og lögreglumenn og jafnvel slasað alvarlega, án þess að við höfum vitneskju um það þegar þeir eru teknir í brotum hér.“ Fyrir bæði fangaverði og aðra fanga getur verið hættulegt að þess- ir menn séu hafðir í gæsluvarðhaldi innan um aðra fanga sem engin hætta stafar af, en þannig er staðan einmitt í Hegningarhúsinu. Bundin af alþjóðalögum Páll segir stöðuna því bæði erfiða og flókna, mikilvægasta lausnin til framtíðar sé sú að reisa hér nýtt fangelsi til að anna ástandinu. Engin lausn felist hinsvegar í því að ætla að senda alla vafasama útlendinga úr landi, það sé einfaldlega ekki hægt. „Við erum auðvitað hluti af al- þjóðlegu samfélagi og búum í rétt- arríki þar sem verður einfaldlega að fara eftir lögum og alþjóðlegum samningum sem við höfum und- irgengist. Það er ekki hægt að láta heiftina ráða för og brjóta þar með lög. Við erum hér í vinnu við að framfylgja lögum.“ Ekki meira pláss  Átta fangar hafa bæst í troðfull fangelsi í mansalsmálinu  Hættulegir glæpamenn geymdir með öðrum föngum Í ÚTLENDINGALÖGUM er gerður greinarmunur á ríkisborgurum frá EES-svæðinu og frá löndum utan þess þegar kemur að brottvísun úr landi, þar sem mun strangari skilyrði gilda um brottvísun EES-borgara. Þessa stundina sitja eins og áður segir 16 útlendingar í gæsluvarðhaldi auk þess sem 16 til viðbótar sitja af sér dóma í fangelsum landsins. Af þess- um 32 mönnum eru aðeins 6 frá löndum utan EES. Mjög flókið og langt ferli fylgir því að senda fanga úr landi meðan á af- plánun stendur hafi þeir verið dæmdir fyrir glæp hér á landi. Auk þess þarf samþykki brotamannsins fyrir framsalinu. Algengara er að þeim sé vísað á brott eftir að afplánun lýkur, en það leysir þó ekki vanda fangelsa. Af hverju eru þeir ekki sendir burt? Morgunblaðið/Ómar Litla-Hraun Á síðustu 10 árum hafa 24 Íslendingar verið sendir hingað til lands til að afplána dóma sem þeir hlutu erlendis, en aðeins 10 útlendingar hafa verið sendir út. Flestir vilja frekar afplána dóminn hér en í heimalandi sínu. Þegar öll fangelsi eru yfirfull er svigrúmið til að eiga við um- fangsmikil glæpamál nánast ekk- ert, líkt og mansalsmálið sem nú er til rannsóknar hjá lögreglu Suðurnesja er gott dæmi um. Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is „ÞAÐ er gríðarlegt álag vegna bólu- setninganna og einnig vegna flensu- veikinda í samfélaginu,“ segir Lúð- vík Ólafsson, lækningaforstjóri Heilsugæslunnar á höfuðborg- arsvæðinu. Hann segir óhætt að segja að bólusetningar vegna svína- flensunnar séu þær umfangsmestu og mannaflafrekustu sem heilsu- gæslan hafi ráðist í. Hjúkrunarfræðingar heilsugæslu- stöðvanna hafa átt fullt í fangi við að sinna símaráðgjöf í tengslum við svínaflensuna. Byrjað var að taka við tímapöntunum vegna bólusetn- inga fólks með undirliggjandi sjúk- dóma og þungaðra kvenna í dag, en stefnt er á að hefja bólusetningar þess hóps 2. nóvember næstkom- andi. Sex manns á gjörgæslu Samkvæmt upplýsingum frá Landlæknisembættinu liggja nú sex manns alvarlega veikir á gjörgæslu Landspítalans en að sögn Haraldar Briem sóttvarnalæknis er líklegt að einn þeirra verði senn útskrifaður. „Við teljum okkur ekki vera farin að sjá fjallstoppinn ennþá,“ segir Har- aldur. Landlæknisembættið spáir því að faraldurinn gangi yfir á um 12 vikum. Lúðvík Ólafsson segir mikilvægt að fólk átti sig á því að bólusetningin sé hverfaskipt og því þurfi að panta tíma í heilsugæslustöð viðkomandi hverfis en ekki þar sem fólk eigi sinn heimilislækni. „Það fyrirkomulag auðveldar dreifingu bóluefnisins miðað við mannfjölda,“ segir Lúðvík. Hann segir bólusetningu vegna svínaflensu töluvert flóknari en bólusetningar við árlegri inflúensu. Bóluefnið við svínaflensunni fyrnist sólarhring eftir að það hefur verið blandað og því þurfi að ákvarða skammta, geyma það við kjör- aðstæður og passa að allt nýtist. „Þetta er því mun mannaflafrekari bólusetning en þegar bóluefnið kem- ur tilbúið í sprautum,“ segir Lúðvík. „Fólk hringir mikið og spyr og við erum með ýmsar ráðstafanir til að símkerfið gefi sig ekki. Við höfum bætt við símum til að taka við pönt- unum,“ segir Gísli Þórörn Júlíusson, yfirlæknir á heilsugæslustöð Graf- arvogs. Ef allir þiggja bólusetningu í Grafarvogi má búast við að um 15.000 verði bólusettir á vegum heilsugæslu hverfisins á næstu tólf vikum. Í því tilliti má benda á að sér- stök símanúmer til tímapantana er að finna á heimasíðum margra heilsugæslustöðva. „Við reynum að sinna hefðbund- inni starfsemi en verðum að draga aðeins úr tímaframboði meðan á bólusetningu stendur,“ segir Gísli Þórörn. Hann segir að aukið álag sé á bráðaþjónustu, dag- og síðdeg- isþjónustu í Grafarvogi vegna inflú- ensunnar og bólusetninganna. Umfangsmestu bólusetningar heilsugæslunnar Víðtækar bólusetningar undirbúnar Morgunblaðið/Ómar Stungið Bólusetningin er fljót- afgreidd og óþægindin lítil. Í HNOTSKURN »Stefnt er að því að bólu-setja 75.000 manns til loka nóvember. »Byrjað verður að bólusetjaþungaðar konur og sjúk- linga í forgangshópum. »Bent er á sérstök síma-númer til tímapantana á vefsvæðum heilsugæslustöðva á heilsugæsla.is. HELGA Ingólfsdóttir semballeikari lést í gær, 21. október, 67 ára að aldri, eftir langa sjúkdómslegu. Helga lauk einleik- araprófi í píanóleik frá Tónlistarskólanum í Reykjavík 1963 en í framhaldsnámi í Þýskalandi lagði hún fyrir sig semballeik og var brautryðjandi í þeirri grein á Íslandi. Aðalstarfsvettvangur Helgu varð í Skálholti þar sem hún stofnaði til Sumartónleika í Skálholtskirkju með dyggum stuðn- ingi eiginmanns síns og Manuelu Wiesler flautuleikara. Helga var list- rænn stjórnandi sumartónlist- arhátíðarinnar í þrjátíu ár, eða þar til hún dró sig í hlé vegna veikinda. Tónverk, sem hún lék eða tók þátt í, skipta hundruðum. Hún lagði sig og fram um að draga fram fornan ís- lenskan tónlistararf og fyrir hvatningu hennar lögðu mörg tónskáld út af þessum gamla söng- arfi. Helga hlaut margs konar viðurkenningu fyrir tónlistarstarf sitt, m.a. riddarakross ís- lensku fálkaorðunnar 2001 og heiðurs- verðlaun Íslensku tón- listarverðlaunanna árið 2004. Foreldrar Helgu voru Ingólfur Davíðsson grasafræðingur og Agnes Davíðsson (fædd Christensen ). Eft- irlifandi eiginmaður hennar er Þor- kell Helgason stærðfræðingur. Andlát Helga Ingólfsdóttir FIMMTÁN einstaklingar gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokks- ins á Seltjarnarnesi fyrir bæj- arstjórnarkosningarnar næsta vor. Framboðsfrestur rann út síðasta sunnudag, en prófkjörið fer fram laugardaginn 7. nóvember. Eftirtalin gefa kost á sér: Ás- gerður Halldórsdóttir, Bjargey Að- alsteinsdóttir, Bjarni Dagur Jóns- son, Bjarni Torfi Álfþórsson, Björg Fenger, Guðmundur Magnússon, Haraldur Eyvinds Þrastarson, Helgi Þórðarson, Katrín Pálsdóttir Lárus B. Lárusson, Magnús Mar- geirsson, Magnús Örn Guðmarsson, Ragnar Jónsson, Sigrún Edda Jóns- dóttir og Þór Sigurgeirsson. Prófkjörið fer fram í sal Sjálf- stæðisflokksins á Seltjarnarnesi frá kl. 10 til 18. Utankjörstaðarkosning hefst mánudaginn 26. október. Hægt verður að kjósa á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Valhöll á skrifstofutíma frá kl. 9 til 17 alla virka daga. Fimmtán í prófkjöri á Seltjarnarnesi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.