Morgunblaðið - 22.10.2009, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 22.10.2009, Blaðsíða 22
22 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2009 ✝ Guðný Erla Jóns-dóttir fæddist á Skeggjastöðum á Jök- uldal 13. júlí 1937. Hún lést á Landspít- alanum við Hring- braut 17. október sl. Guðný Erla var dóttir Önnu Grímsdóttur og Jóns Björnssonar bónda á Skeggjastöð- um á Jökuldal og ólst þar upp ásamt fimm systrum. Systur Guð- nýjar eru: Áslaug, gift Ragnari Björnssyni, þau bjuggu á Höfn í Hornafirði og eru bæði látin, Guðríður, gift Hösk- uldi Jónssyni, búsett á Vopnafirði, Auður, gift Helga Árnasyni, búsett á Egilsstöðum, Sigríður, gift Þorvaldi Þorsteinssyni, búsett í Reykjavík, og Ásdís gift Hallbirni Jóhannssyni, bú- sett á Finnsstöðum í Eiðaþinghá. Eiginmaður Guðnýjar er Völundur Jóhannesson, húsasmíðameistari frá Haga í Aðaldal, f. 23. ágúst 1930. Þau byggðu sér myndarlegt hús með stórum garði við Hjarðarhlíð 5 á Egilsstöðum. Dætur þeirra eru tvær og eru báðar búsettar í Reykjavík: 1) Anna Ósk, f. 11. apríl 1956, gift Tryggva Ólafssyni, f. 1953, þau eiga a) Bjarna Óskar, f. 1979, kvæntur Mötju Dise, f. 1978, þau eiga Ólaf Gunnar, f. 2006, og Völund Inga, f. 2009, b) Guðnýju Völu, f. 1980, c) Elínu Láru og d) Eyrúnu Önnu, f. 1991. 2) Harpa, f. 12. janúar 1961, í sambúð með Kristjáni Guðmunds- syni, f. 1960. Harpa á Ív- ar Eyjólfsson, f. 1988. Kristján á sex börn og barnabörn hans eru Sigrún Björg, f. 2004, Ásgeir Örn, f. 2006, og Ólöf Harpa, f. 2007. Guðný fór í Alþýðuskólann á Eið- um og Húsmæðraskólann á Laugum. Hún vann ýmis störf utan heimilis, m.a. á prjónastofunni Dyngju, en lengst vann hún hjá Kaupfélagi Hér- aðsbúa á Egilsstöðum, síðar Sam- kaup. Útför Guðnýjar Erlu fer fram frá Árbæjarkirkju í dag, 22. október, kl 11. Komið er nú að kveðjustund. Margs er að minnast og margt að þakka eftir rúmlega 30 ára kynni. Mig langar að reyna að kveðja tengdamóður mína með nokkrum orðum. Fyrsta hugsun er óendanlegt þakklæti. Ég vil þakka fyrir hvað hún tók mér vel frá fyrstu kynnum og var góð við börnin mín, fyrir allt það sem hún gerði fyrir þau sem og alla fjöl- skylduna. Sérstaklega voru Bjarni og Guðný hænd að henni og afa sínum. Þau dvöldu hjá þeim oft heilu sumrin í svo góðu yfirlæti að erfitt var að telja þau á að koma heim á haustin. Í minningunni er alltaf sól í Hjarðar- hlíðinni úti og inni. Þar er fullt hús af fólki og Guðný tengdamóðir mín að dúka og leggja á borð fyrir alla. Þrátt fyrir að búa í öðrum lands- hluta tók hún mikinn þátt í lífi fjöl- skyldunnar í Reykjavík og fylgdist vel með öllu. Hún mætti í flesta merkisviðburði hjá okkur eins og skírnir, fermingar og aðrar stórar veislur og rétti alltaf fram hjálpar- hönd. Sérstaklega var mikil tilhlökk- un þegar stóri jólakassinn kom frá Egilsstöðum fullur af smákökum, laufabrauði, jólafötum á börnin og svo gjafirnar – þá voru jólin komin hjá okkur. Guðný var mér sannkölluð tengda- móðir í orðsins bestu merkingu. Ég vil þakka henni vináttu hennar við mig sem aldrei bar skugga á. Skyndi- legt fráfall hennar er mikið högg fyr- ir alla fjölskylduna. Tengdaföður mínum, systrum hennar svo og allri fjölskyldunni votta ég innilega sam- úð. Hvíl í friði. Tryggvi. Elsku Guðný tengdaamma! Fyrsta skiptið sem ég hitti þig var fyrir um 10 árum þegar Bjarni varð stúdent og þú komst suður í stúdentsveisluna hans. Komu „ömmu á Egilsstöðum“ var beðið með eftirvætingu og var ég rosalega hissa að sjá svona unga ömmu. Og þú varst ekki bara ung í útliti heldur líka í sálinni enda hafðir þú alltaf mikinn áhuga á hvað við „unga fólkið“ værum að gera. Þegar við heimsóttum ykkur Völ- und á Egilsstöðum var alltaf dekrað við okkur eftir bestu getu. Við Bjarni vorum oft að grínast með það að við fengum alveg nýtt magamál um leið og við stigum út úr flugvélinni fyrir austan. Það var nefnilega svo góður matur sem beið okkar og eftir matinn leið mér alltaf eins og ég þyrfti ekki að borða næstu vikuna. En viti menn, örfáum klukktímum síðar settist maður aftur við borðið og þá var borðað eins og maður hefði ekki séð mat í marga daga. En um leið og við fórum aftur í bæinn var magamálið aftur eins og það var vant. Það var líka mikið spjallað þegar við vorum fyrir austan og ósjaldan sýndir þú okkur hvaða bækur þú hefðir verið að lesa, og sérstaklega ef það voru skemmtileg ljóð eða vísur. Svo voru ófáar sýnisferðir um fallega garðinn ykkar sem mér fannst alltaf vera alveg til fyrirmyndar. Síðast heimsóttum við ykkur í sumar og vor- um í tæpa viku með strákunum okkar tveimur. Eins og venjulega var vel tekið á móti okkur og leið mér eins og ég væri á fimm stjörnu hóteli. Þú eld- aðir fyrir okkur og sást um þvottinn og passaðir börnin fyrir okkur. Við vorum nú stundum með smásam- viskubit yfir að láta þig hafa svona mikið fyrir okkur, en við vissum að þú vildir ekki hafa þetta öðruvísi, það kom ekki til greina að fá að hjálpa þér. En það er langt til Egilsstaða og því urðu heimsóknirnar færri en við vildum. Við reyndum að bæta það upp með símtölum. Þú varst alltaf hrein- skilin og sagðir hispurslaust þína skoðun á hlutunum og hafði ég mjög gaman af. Það var ávallt gaman að spjalla við þig og þú hafðir alltaf svo mikinn áhuga á því hvað strákarnir væru nú að bauka. Svo vantaði okkur stundum ráð við eldamennskuna eða uppskriftir og það stóð ekki á svarinu hjá þér. Ég sendi þér stöku sinnum myndir af strákunum og veit að þú skoðaðir myndirnar með stækkunar- gleri til þess að engin smáatriði varð- andi umhverfi og klæðaburð þeirra færu nú framhjá þér. Það er mjög sorglegt að hugsa til þess að þeir fái ekki að njóta þín lengur. Þar sem þú varst ennþá svo hress og ungleg þá var mikið áfall að frétta það þriðjudaginn 6. október að þú værir milli lífs og dauða. Ég er fegin að við fengum að kveðja þig á spít- alanum og er viss um að þú vissir af okkur þarna. Ég veit að þú kveiðst alltaf fyrir vetrinum og er fegin að þú sleppur við myrkrið og kuldann sem honum fylgir. Þú munt alltaf vera í hjarta okkar. Matja og fjölskylda. Elsku amma! Það er svo erfitt að kveðja, við hefðum viljað hafa þig svo miklu lengur hjá okkur. En sem bet- ur fer eigum við margar góðar minn- ingar. Sérstaklega var skemmtilegt á jólunum. Okkur fannst jólin ekki vera byrjuð fyrr en stóri jólakassinn frá Egilsstöðum var kominn í hús. Í hon- um voru laufabrauð, kleinur, kökur, flatbrauð og að sjálfsögðu langflott- ustu jólagjafirnar. Amma var mjög myndarleg í hönd- unum og öll barnabörnin komu heim af fæðingardeildinni í fötum sem hún hafði prjónað. Áður en við fæddumst saumaði hún mörg vöggusett handa okkur, heklaði milliverk í þau og merkti. Einnig saumaði hún gullfal- lega skírnarkjóla svo ekki sé minnst á jólakjólana flottu. Ömmu fannst allt fallegt sem við áttum. Hún skoðaði skartgripina okk- ar og fötin vel og vandlega. Hún sagð- ist öfunda okkur yfir að vera ungar í dag og eiga svona mikið fallegt, öfugt við þegar hún var á okkar aldri. Amma vildi hafa alltaf hreint og snyrtilegt í kringum sig. Alltaf þegar við fréttum að hún væri að koma til Reykjavíkur urðum við ofsa glaðar en þá var líka eins gott að allt væri hreint og fínt. Og þegar hún kom vor- um við búnar að gera okkar besta við að þrífa og pússa allt. En ekki hafði hún stoppað lengi þegar hún bauðst til að hjálpa okkur að þrífa í her- bergjunum – og þá sprungum við úr hlátri. Á Egilsstöðum var alltaf svo gott að vera. Amma hugsaði svo vel um okkur. Á kvöldin áður en við fórum að sofa bar hún alltaf krem á okkur og fór með bænirnar. Hvergi var betri matur en hjá ömmu, svo maður tali nú ekki um terturnar. Þær voru líka í öllum veislum hjá okkur. Elsku amma, við vorum búnar að tala um að fá góðu terturnar í útskriftarveisl- urnar okkar en það verður víst ekki. Það er óbærilegt að amma sé farin og hún taki ekki brosandi á móti okk- ur framar í Hjarðarhlíðinni. Þú varst alveg sérstök amma og viljum við þakka fyrir alla þá umhyggju og ást sem þú gafst okkur. Elín Lára og Eyrún Anna. Nú kveð ég þig elsku amma mín. Þegar ég hugsa til baka til þín sé ég hvað ég var heppin að hafa þig sem stóran hluta af minni barnæsku. Hjarðarhlíðin var mitt annað heimili og gat ég varla beðið eftir sem ung stelpa að skólanum mínum lyki á vorin svo ég gæti farið austur til þín og afa. Að vakna við morgunleikfimina í útvarpinu og borða ristað brauð og drekka heitt kakó með þér á morgn- ana var yndislegt, svo straukstu mér og kysstir áður en þú hélst til vinnu og ég tók við yfirvaldinu í Hjarðar- hlíðinni á meðan. Að sjálfsögðu var mikið brallað á sumrin hjá ömmu og afa en aldrei skammaðir þú mig fyrir hin ýmsu uppátæki sem mér duttu í hug, ekki einu sinni þegar ég stal dýrum úr öðrum húsum og kom með þau heim, – held að afi hafi í mesta lagi verið skammaður fyrir það. Matur og tertur voru alltaf dýrleg- ar hjá þér. Kakósúpu og rabarbar- agraut hef ég varla smakkað nema hjá þér og enginn komst með hælana þar sem þú varst með tærnar hvað varðar loftkökubaksturinn fyrir jólin og þunna laufabrauðið með stafnum mínum á. Mér finnst svo mikilvægt að hafa hitt þig í skírninni hans Völundar Inga í vor og fengið kossa þína og strokur, ég var svo heppin að eiga þig að elsku amma mín. Mér finnst erfitt að kveðja þig, erf- iðara núna en þegar ég flaug heim á haustin þegar ég var lítil, en það var oft erfitt þegar ég vildi varla fara. Ég verð alltaf nafna þín eins og þú kall- aðir mig svo oft. Ég mun alltaf varð- veita minningarnar um þig. Ég hefði viljað hafa þig svo miklu lengur hjá mér og mun alltaf sakna þín, elsku amma mín. Hvíldu í friði, elsku amma mín, lof- aðu mér að vera í sólinni núna eins og þú sagðist ætla að gera. Þín nafna, Guðný Vala Tryggvadóttir. Mig langar að minnast Guðnýjar Erlu móðursystur minnar með fáein- um orðum. Ég á erfitt með að trúa því að frænka sé dáin. Ég ætlaði að fara austur til Egilsstaða og heim- sækja hana núna í haust en þá veikt- ist hún allt í einu. Ég er fegin að hafa haft tækifæri til að heimsækja hana á spítalann. Ég á margar góðar minningar frá heimili frænku minnar og Völundar og dætra þeirra, Önnu Óskar og Hörpu. Þegar ég var yngri heimsótti ég oft fjölskylduna á sumrin og einn- ig ömmu mína sem bjó í kjallaranum í sama húsi. Ég á margar góðar minn- ingar frá þeim tíma. Við frænkurnar lékum okkur saman, fórum í feluleik og klæddum okkur í alls kyns bún- inga. Þegar ég var 13 ára dvaldi ég hjá Guðnýju frænku minni í mánuð og aðstoðaði hana við að passa Lindu. Þetta var sólríkt sumar og ég var mikið úti. Frænka mín hrósaði mér fyrir það hvað ég væri fallega sólbrún og sagði öllum hvað ég væri dugleg að vera úti. Þótti mér vænt um þessi orð. Við Harpa frænka mín fórum oft í berjamó þetta sumar og borðuðum svo ber með mjólk og sykri út á og drukkum Fresca. Guðný frænka mín var svo dugleg að tala við mig og segja mér fréttir úr daglega lífinu og mat ég það mikils. Árið 2001 fórum við fjölskyldan austur og heimsóttum þá Guðnýju frænku mína og Völund. Þorvaldur Freyr sonur minn horfði lengi á frænku sína og hélt um stund að hún væri amma sín, þar sem hún líktist henni mjög. Tinna mín, sem þá var tveggja ára, var ekki í neinum vafa og kallaði hana ömmu. Eftir heimsókn- ina var seðli laumað í lófa allra barnanna minna. Mér þótti vænt um frænku mína og er þakklát fyrir allar góðu minn- ingarnar frá þeim tíma þegar ég gisti hjá henni og fjölskyldu hennar fyrir austan. Blessuð sé minning hennar. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem) Steinunn Lovísa Þorvaldsdóttir. Mig langar í örfáum orðum að minnast elskulegrar móðursystur minnar, Guðnýjar Jónsdóttur, sem skyndilega og fyrirvaralaust var köll- uð héðan, langt fyrir aldur fram. Hugurinn hvarflar til samvista lið- inna ára og áratuga, allt frá því að ég, krakkinn, var í sveit á Skeggjastöð- um hjá afa og ömmu. Guðný bjó þá þar ásamt fjölskyldu sinni sín fyrstu búskaparár, meðan Völundur byggði framtíðarheimili þeirra í Hjarðarhlíð 5, Egilsstöðum. Fallegt heimili þeirra Völundar á Egilsstöðum stóð ætíð opið öllum þeim sem leið áttu um. Ósjaldan höfum ég og mitt fólk notið góðs af þeirri gestrisni og hlý- hug sem einkenndi Guðnýju. Ef von var á mér eldaði Guðný oft fyrir ömmu, svo hún gæti gefið „Skeggja sínum“ gott að borða þegar hann kæmi. Alla tíð helgaði Guðný sig heimili sínu og fjölskyldu, því þegar afi og amma brugðu búi á Skeggjastöðum fluttu þau til Guðnýjar og Völundar, og hugsaði Guðný um þau, þar til yfir lauk. Guðný var ósérhlífin, hláturmild og hafði ákveðnar skoðanir á hlutun- um og það var gaman að tala við hana. Síðustu árin töluðum við stund- um saman í síma, til að fá fréttir. Elsku Guðný, hafðu þökk fyrir allt og allt. Manni hennar, Völundi, börnum þeirra, Önnu Ósk og Hörpu, og fjöl- skyldum þeirra sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Skeggi Ragnarsson. Er ég lít yfir liðinn tíma, ljúf sú minning er. Ávallt bjartar allar stundir átti ég hjá þér. Góðvild ykkar, ást og yndi aldrei gleymist mér. (Þ.S.) Ég kynntist Guðnýju og Völundi er ég flutti í Hjarðarhlíðina fjögurra ára gömul. Ég var fljót að venja komur mínar á heimili þeirra hjóna en þar var mér alltaf vel tekið og þar hefur mér ætíð liðið vel. Ég komst fljótt að því hvað Guðný eldaði góðan mat og ég fór í tíða rannsóknarleiðangra þangað og valdi oft að borða hjá þeim frekar en heima. Þar kynntist ég hversdags- legum íslenskum mat á borð við grjónagraut, kakósúpu og pönnukök- ur og fleira góðgæti sem er gjarnan uppáhaldsmatur hjá krökkum. Mínar ljúfustu æskuminnningar eru samverustundir með þeim hjón- um, sveita- og fjallaferðir og hafa þau ávallt komið mér í ömmu og afa stað og það er ég þeim ævinlega þakklát fyrir. Ég bjó á heimili þeirra í eitt ár og leið afskaplega vel. Hjá Guðnýju heyrði ég Búkollusöguna í fyrsta sinn, Dýrin í Hálsaskógi, kynntist Öddu-bókunum og svona gæti ég lengi talið. Á unglings- og fullorðins- árum hélt ég tengslum við Guðnýju eftir bestu getu, hún hvatti mig ávallt til náms og ferðalaga og var alltaf góð í að halda tengslum með því að hringja og skrifa. Hún tók ekki annað í mál en að ég færi með dúnsæng með mér til Frakklands, en þar væru hús- in svo illa kynt. Alltaf var gott að koma í kaffi til þeirra hjóna og gátum við Guðný ávallt spjallað saman um bækur, upp- skriftir, handavinnu, garðinn og blómin. Mínar bestu uppskriftir eru frá Guðnýju, hjónabandssælan, af- mæliskringlan, brúntertan og svona gæti ég lengi talið. Allt sem Guðný tók sér fyrir hendur var vel gert og hún var góð fyrirmynd. Hún hafði líka sínar ákveðnu skoð- anir og gaman var að spjalla við hana um alla hluti. Guðný hefur ávallt hugsað vel um sína nánustu og lifði fyrir fjölskyldu sína. Hún var ákaflega stolt af barna- börnunum og barnabarnabörnum sínum og hafði gaman af að segja mér frá þeim og sýna mér myndir. Mér þótti ákaflega vænt um komu þeirra hjóna í skírn sonar míns Tóm- asar Franks, þá kom hún að sjálf- sögðu með blóm úr garðinum sínum, og heimsókn þeirra í Einarsstaði er við fjölskyldan dvöldum þar í bústað. Síðast heyrði ég í Guðnýju á af- mælisdaginn minn 21. ágúst, en mamma hennar og ég eigum sama af- mælisdag og hún hringdi í mig og spjölluðum við lengi saman. Já ég á margar ljúfar minningar um Guð- nýju sem munu lifa með mér og ylja um ókomin ár. Þín er sárt saknað. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Samverustundirnar sælar ég átti í samfélagi við þig. Sakna ég þess að örlögin hafi aðskilið okkar stig. Andvarinn blíður beri þér kveðju við blikandi sólarlag. Blómstri minning þín blíð og fögur um bjartan sumardag. (Þ.S.) Linda Elísabeth Pehrsson. Þakklæti er orðið sem fyrst kemur upp í hugann þegar ég hugsa til Guð- nýjar. Þakklæti fyrir það sem hún var fyrir mig og fjölskyldu mína. Við kynntumst þegar ég flutti til Egilsstaða haustið 1973. Dóttir henn- ar, Harpa, og Linda dóttir mín kynntust fyrst. Þegar Harpa fór svo að passa fyrir okkur kynntumst við Guðnýju og fjölskyldu smátt og smátt í gegnum hana. Guðný var mér svo hjálpleg með allt og gaf alltaf svo góð ráð, alveg sama hvað það var, og hún virtist alltaf hafa tíma. Ég var búin að búa í nokkur ár á Íslandi á þessum tíma og vantaði einhvern sem ég gat leitað til með ýmislegt. Guðný kenndi mér að sníða eftir Burda-blöðum sem og allt í sambandi við saumaskap – óteljandi uppskriftir að gómsætum kökum ásamt því að leiðbeina mér í sambandi við íslensk- an mat. Hún var því minn besti kenn- ari í þessu öllu og eins og amma fyrir börnin mín, Lindu og Thómas heit- inn, litlu systkinin eins og hún ávallt sagði. Þá sérstaklega fyrir Lindu sem var eins og þriðja dóttir hennar að mörgu leyti og ég leit alltaf á hana svolítið eins og stóru systur sem gat allt og vissi alltaf best. Guðný var mjög sérstök og hafði sínar skoðanir og var afar hreinskil- in, við vorum ekki alltaf sammála en virtum skoðanir hvor annarrar. Sam- bandið rofnaði þegar ég flutti suður eins og gengur og gerist, en þegar ég kom austur í heimsókn hittumst við í kaupfélaginu þar sem Guðný vann til fjölda ára eða heima hjá henni. Síðast hittumst við í skírnarveislu hjá Lindu. Guðný var glæsileg kona, smekk- leg í öllu og vel tilhöfð. Á kaffiborði hennar voru ávallt heimsins bestu kökur. Ég vil þakka þér fyrir allt, Guðný, með þessum fátæklegu orð- um og gangi þér vel á því nýja sviði sem þú ert nú flutt til. Guð fylgi þér í sínu ljósi. Ég sendi Völundi, Önnu Ósk og Hörpu og fjölskyldum þeirra mínar innilegustu samúðarkveðjur. Anne M. Pehrsson. Guðný Erla Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.