Morgunblaðið - 22.10.2009, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 22.10.2009, Blaðsíða 34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2009 Sími 462 3500 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Sími 551 9000 Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum Jóhannes kl. 6 - 8 - 10 LEYFÐ Stúlkan sem lék sér að eldinum kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára Guð blessi Ísland kl. 6 Síðasta sýning LEYFÐ Broken Embraces kl. 5:20 - 8 - 10:40 B.i.12 ára Stúlkan sem lék sér að eldinum kl. 5:20 - 8 - 10:40 B.i.16 ára Jennifer‘s Body kl. 10:20 B.i.16 ára The Ugly Truth kl. 5:45 - 8 B.i.14 ára Inglorious Bastards kl. 6 - 9 B.i.16 ára Capitalism MASTERCARD forsýn. kl. 8 B.i. 7 ára Jóhannes kl. 7 - 9 - 11 LEYFÐ Guð blessi Ísland kl. 5:45 - 8 - 10:15 LEYFÐ Stúlkan sem lék sér að eldinum kl. 6 - 9 B.i.16 ára The Ugly Truth kl. 5:45 B.i.14 ára Antichrist ATH. ótextuð kl. 10:30 B.i.18 ára SÝND Í REGNBOGANUM SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG REGNBOGANUM HHH „Tímamótamynd!” – Erpur Eyvindarson, DV HHH – Sæbjörn Valdimarsson, Mbl „Áhugaverð og skemmtileg.” – Dr. Gunni, Fréttablaðið SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI HHH „9 er með þeim frumlegri – og drungalegri – teiknimyndum sem ég hef séð í langan tíma. Grafíkin er augnakonfekt í orðsins fyllstu merkingu.” T.V. – Kvikmyndir.is HHH „Teikningarnar og tölvu- grafíkin ber vott um hugmyndaauðgi og er afar vönduð, sannkallað konfekt fyrir augað.” -S.V., MBL „9 er allt að því framandi verk í fábreytilegri kvikmyndaflórunni, mynd sem skilur við mann dálítið sleginn út af laginu og jákvæðan” -S.V., MBL SUMIR DAGAR... NÝ ÍSLENSK GAMANMYND www.facebook.com/graenaljosid HHH „Jóhannes er myndin hans Ladda, hún er röð af bráðfyndnum uppákomum sem hann og pottþétt aukaleikaralið koma frábærlega til skila svo úr verður ósvikin skemmtun. ...Sann- kölluð „feelgood”- mynd, ekki veitir af.” – S.V., MBL HHHHH „Þetta er alvöru tær snilld.” A.K., Útvarpi Sögu HHH -Empire „10 ára sonur minn hafði mun meira gaman af því að horfa á þessa mynd en hina sykursætu Wall-E“ -K.G., Ynja.net HHH “Afþreyingargildi myndarinnar er hámarkað... vekur sjónræna nautn...öll leikumgjörð, kvikmyndataka og lýsing er stórfengleg.” – H.S., MBL HHHHH „Æðisleg. Þetta er það besta síðan Sódóma Reykjavík“ A.G., Bylgjan SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG! Þú færð 5% endurgreitt í Háskólabíó Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómið Nú flæðir pappír um landið affullum þunga, borð gagn-rýnenda svigna undan ólesnum bókum og vongóðir versl- unareigendur hlaða í kesti. Pappír og aftur pappír, enginn er að lesa á skjá, enn sem komið er í það minnsta, og menn sífra um það að aldrei verði hægt að yfirgefa papp- írinn. Hafa það fyrir sér í því að lít- ið hefur miðað í þá átt á und- anförnum árum.    Í samsæti fyrir stuttu hitti égþýskan mann sem rekur hljóð- bókaútgáfu í heimalandi sínu. Flestir skilja orðið hljóðbók vænt- anlega svo að það sé bók sem ein- hver les fyrir mann, en þessi Þjóð- verji, sem ég veit því miður ekki hvað heitir, lagði aðra og meiri merkingu í orðið. Hver hljóðbók sem hann tekur upp er nefnilega heilmikil uppsetning, því ekki er bara að fundinn sé sætraddaður lesandi, heldur er líka músík, áhrifshljóð og tilheyrandi. Eins og hann lýsti því settu menn nánast upp leikrit með einum leikara, einni rödd, og svo miklum umbúðum.    Fleiri hafa reynt fyrir sér meðáþekkar lausnir, sjá til að mynda prýðilegar hljóðbækur Nax- os-útgáfunnar þar sem klassísk tón- list er notuð til að skreyta lest- urinn, gjarna milli kafla, og þá valin tónlist frá svipuðum tíma og sagan á að gerast. Eins og ég skildi viðmælanda minn var annað og meira uppi á teningnum í hans vinnslu aukinheldur sem meira var lagt í lesturinn sjálfan; gekk kannski ekki svo langt að kalla mætti sprechgesang, en kannski sprechstimme.    Fyrir áratug eða svo var líf meðmönnum í hljóðbókaútgáfu hér á landi og þá meira að segja starfandi klúbbar á því sviði, einn hjá Máli og menningu en hinn hjá Veröld. Þá voru bækurnar gefnar út á snældum og svo mikill hugur í mönnum að bækur voru jafnvel frumútgefnar á snældu; þannig kom Draumur þinn rætist tvisvar eftir Kjartan Árnason út þannig og þá hljóðskreytt eins og það var kall- að og rímar ágætlega við ofan- greinda iðju þýska útgefandans. Þessi útgáfualda hné aftur og þóenn séu gefnar út hljóðbækur, til að mynda hjá Hljóðbók.is (hljod- bok.is), þá eru önnur fyrirtæki ró- legri í tíðinni. Það er þó ekki langt síðan Forlagið tók rispu í hljóð- bókaútgáfu, gaf út helstu titla sem hljóðbók um leið og prentútgáfan kom út, en síðan kipptu þeir flestir að sér hendinni. Af hverju er ekki gott að segja, en líklegasta skýr- ingin er að bækurnar hafi ekki selst nóg til að standa undir kostnaði við að gera þær og dreifa.    Eins og ég nefni í upphafi eruþýskir að smíða hljóðbækur af miklum metnaði og eins gerist hér á landi. Áður er getið Hljóðbókar.is og Dimma hefur líka gefið út tón- skreyttar bækur, ljóðabækur þar sem höfundar lesa ljóðin en ýmsir sjá um tónlistina. Nú hyggst Sena feta sömu slóð, gefa út tónskreytta hljóðbók, þar sem er ævisaga Vil- hjálms Vilhjálmssonar. Jón Ólafs- son skrifaði bókina og les verk sitt, en fléttuð saman við lesturinn verða lög eftir Vilhjálm og þar á meðal upptökur sem ekki hafa áður heyrst. Þessi útgáfa af bókinni verður seld á vefsetri Tónlistar.is frá 5. nóvember, tveimur vikum áð- ur en bókin kemur út á pappír. Tímanna tákn? arnim@mbl.is Tónskreyttar bækur AF LISTUM Árni Matthíasson » Pappír og afturpappír, enginn er að lesa á skjá, enn sem komið er í það minnsta, og menn sífra um það að aldrei verði hægt að yfirgefa pappírinn. Ljósmynd/Úr einkasafni Óútgefið Myndir í bókinni um Vilhjálm skipta tugum og þar á meðal þessi. MÓÐIR Simons Cowells segir að hann hafi verið ákveðið og oft erfitt barn. „Eitt sinn er hann var lítill keypti ég nýjan hatt og spurði hann hvort ég væri ekki fín með hann. Hann svaraði að ég liti út eins og kjölturakki,“ sagði Julie Cowell, sem er 82 ára fyrrverandi dansari, í við- tali við breska Yours-tímaritið. Þrátt fyrir þetta segir frú Cowell að sonur hennar sé ekki eins illgjarn og hann virðist vera í hæfileikaþátt- unum The X Factor og American Idol. „Ég yrði virkilega leið ef hann væri í alvörunni slæm manneskja. Simon er ekki vondur, hann er bara hreinskilinn. Ég ól hann upp í kurt- eisi. Burtséð frá sjónvarpinu er Sim- on bara Simon, hann er sama per- sónan og hann hefur alltaf verið.“ Julie Cowell sagði líka að Simon hefði heitið því að giftast aldrei þeg- ar hann var ungur maður. „Nítján ára sagðist hann aldrei ætla að gifta sig. Ég hélt að hann myndi skipta um skoðun, en núna er hann 50 ára og það lítur ekki út fyrir að það muni gerast.“ Cowell Móðir og sonur. Cowell var erfitt barn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.