Morgunblaðið - 22.10.2009, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2009
Jóhannes kl. 4 - 6 - 8 - 10 LEYFÐ Jóhannes kl. 4 - 6 - 8 - 10 Lúxus
9 kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i.10 ára The Ugly Truth kl. 10:15 B.i.14 ára
Guð blessi Ísland kl. 5:45 LEYFÐ Ísöld 3 (ísl. tal) kl. 3:45 LEYFÐ
Stúlkan sem lék sér að eldinum kl. 5:20 - 8 - 10:40 B.i.16 ára
HHH
T.V. – Kvikmyndir.is
HHHH
– ÞÞ, DV
HHH
MMJ – kvikmyndir.com
HHHH
– VJV, FBL
HHH
–S.V., MBL
HHH
„...frumleg og fyndin
í bland við óhugnaðinn“
– S.V., MBL
„Kyntröllið Fox plumar
sig vel sem hin djöfulóða
Jennifer!“
– S.V., MBL
SÝND Í REGNBOGANUM
Ekki fyrir
viðkvæma
HHHH
„Verður vafalaust
titluð meistarverk...“
– H.S., Mbl
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
HHHH
„Gainsbourg er rosaleg...“
– E.E., DV
Fyndnasta rómantíska gamanmynd ársins
Sýnd kl. 6, 8 og 10
Sýnd kl. 8Sýnd kl. 6, 9 og 10:10
HHH
„Ef þú sást fyrstu myndina
og fílaðir hana, þá máttu
alls ekki sleppa þessari!“
T.V. – Kvikmyndir.is
Mikil grimmd og logandi
frásögn. Lisbeth Salander
er orðin klassísk og ein
eftirminnilegasta persóna
glæpabókmenntana.
F.E. Rás 2
HHH
„Skylduáhorf fyrir alla
aðdáendur Larssons,
– sannarlega eldfim
spennumynd.”
MMJ – kvikmyndir.com
HHHH
„Öllu því svalasta,
magnaðasta og flottasta
úr þykkri spennusögu er
þjappað saman í alveg
hreint frábæra
spennumynd.“
– ÞÞ, DV Sýnd kl. 6
HHH
„9 er fyrirtaks samansuða af
spennu, ævintýrum og óhugnaði
í réttum hlutföllum”
B.I. – kvikmyndir.com
HHH
„9 er með þeim frumlegri – og
drungalegri – teiknimyndum sem
ég hef séð í langan tíma. Grafíkin
er augnakonfekt í orðsins fyllstu
merkingu.”
T.V. – Kvikmyndir.is
HHH
„Teikningarnar og
tölvugrafíkin ber vott
um hugmyndaauðgi
og er afar vönduð,
sannkallað konfekt
fyrir augað.”
-S.V., MBL
„9 er allt að því
fram-andi verk í
fábreytilegri kvik-
myndaflórunni, mynd
sem skilur við mann
dálítið sleginn út af
laginu og jákvæðan”
-S.V., MBL
SUMIR
DAGAR...
NÝ ÍSLENSK GAMANMYND
HHH
„Jóhannes er myndin
hans Ladda, hún er
röð af bráðfyndnum
uppákomum sem
hann og pottþétt
aukaleikaralið koma
frábærlega til skila
svo úr verður
ósvikin skemmtun.
...Sannkölluð
„feelgood”-mynd,
ekki veitir af.”
– S.V., MBL
HHHHH
„Þetta er alvöru
tær snilld.”
A.K., Útvarpi Sögu
HHH
-Empire
„10 ára sonur minn hafði mun meira
gaman af því að horfa á þessa mynd
en hina sykursætu Wall-E“
-K.G., Ynja.net
HHHHH
„Æðisleg. Þetta er
það besta síðan
Sódóma Reykjavík“
A.G., Bylgjan
VINSÆLASTA
MYNDIN Á ÍSLANDI
Í DAG!
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI,
REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI
SÝND Í SMÁRABÍÓI
SÝND Í REGNBOGANUM
Þú færð 5%
endurgreitt
í Smárabíó
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
-bara lúxus
Sími 553 2075
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónumwww.laugarasbio.isðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
2 FYRIR 1 EF GREITT ER
MEÐ MASTERCARD
FORSÝNING
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
ÞAÐ verður svaka partí í Búðardal um
helgina þegar Haustfagnaður Dala-
manna fer fram. Meðal viðburða er
rokktónleikahátíðin Slátur sem fer
fram í Dalabúð annað kvöld. Þar koma
fram ekki ómerkari bönd en Dr.
Gunni, Retro Stefson, FM Belfast,
Rass, Agent Fresco, Reykjavík!,
Grjóthrun í Hólshreppi og Black
Sheep.
„Bændur hafa haldið Haustfagnað í
Dölum í nokkur ár og rokkhátíðin er
haldin í tengslum við hann,“ segir
Grímur Atlason, sveitarstjóri Dala-
byggðar og tónleikahaldari. „Bændur
töluðu við mig, vissu að ég hefði komið
að rokkinu og vildu nýta sér meinta
hæfileika mína til að halda tónleika í
Dölunum. Ég ræddi við hljómsveitir
sem mér þykir ferskar og skemmti-
legar og það voru
allir til.“
Eiga þessar
hljómsveitir erindi
til sauðfjárbænda?
„Já klárlega og
sauðfjárbændur
eiga erindi til
þeirra. Það er
mjög mikilvægt að
Ísland sé opið í
báða enda í staðinn fyrir að landamær-
in séu Hvalfjarðargöng. Þegar maður
horfir á tónlistarhátíðir eins og Aldrei
fór ég suður og Bræðsluna má sjá að
það er pláss fyrir menningu út um allt
land,“ segir Grímur.
Er Búðardalur næsti rokkbær?
„Hér hefur alltaf verið rokk. Það
gleymist oft að einn fyrsti dægurlaga-
textahöfundur þjóðarinnar, Stefán frá
Hvítadal, var úr Dölunum. Áður en
hann samdi ljóðið „Erla, góða Erla“
voru örfáar konur á Íslandi sem báru
nafnið Erla, nokkrum árum síðar
skiptu þær hundruðum og það má
þakka Stefáni. Friðrik Sturluson,
bassaleikari Sálarinnar, er
héðan og það hefur lengi
verið rekinn öflugur tón-
listarskóli á staðnum.
Ég vil hafa líf í
kringum mig og þess
vegna legg ég mig
fram um að koma svona hlut-
um á koppinn enda segi ég að
það séu ekki aðeins vegirnir
sem skipta máli heldur líka
menning og menntun. Ef það er
ekki menning deyja mennirnir
út.“
Greitt í dilkum og kjömmum
Það verður meira um að vera í Döl-
unum um helgina en rokktónleikar því
dagskrá Haustfagnaðarins er þétt-
skipuð frá föstudegi fram á laug-
ardagskvöld.
„Forsetinn kemur hingað á föstu-
daginn og vígir Guðrúnarlaug sem við
erum búin að hlaða upp í Sælingsdal.
Hann verður líka heiðursgestur á
stofnfundi landssamtaka ungra bænda
á föstudaginn. Svo verður hagyrð-
ingakvöld og sviðaveisla, Íslands-
meistaramótið í rúningi, hrútasýning,
fótboltamót og ball með Pöpunum.
Dagskráin er fjölbreytt þótt sauðféð
sé í aðalhlutverki. Við erum að hylla
sauðkindina og þess vegna höldum við
hljómleika,“ segir Grímur og bætir við
að haustið sé skemmtilegur tími í
sveitinni og bændur upp á sitt hress-
asta. „Við stefnum að því að tónleik-
arnir verði árlegur viðburður hjá okk-
ur í tengslum við Haustfagnaðinn ef
hljómsveitir eru til í að koma, en í
þetta skipti fá allar hljómsveitir greitt
í dilkum og sviðakjömmum eins og
hver maður torgar. Þetta eru vöru-
skipti. Ef ég ætti að bera saman krón-
ur og dilka eru dilkar miklu betri
gjaldmiðill en íslenska krónan núna,
þetta eru gríðarlega góð laun,“ segir
Grímur kankvís.
Mun eitthvert brúðarval bíða þeirra
sem koma í Búðardal um helgina?
„Það er allt hér, bæði brúðarval og
brúðgumaval.“
Rokktónleikar í lok
sláturtíðar í Dölunum
Retro Stefson og FM Belfast meðal hljómsveita sem spila
á Rokkhátíðinni Slátri í Dalabúð á föstudagskvöldið
„Hér hefur alltaf verið rokk,“ segir sveitarstjórinn
Morgunblaðið/Eggert
Sláturkeppir FM Belfast sló í gegn á Airwaves um síðustu helgi.
Grímur Atlason
Nánari dagskrá Haustfagnaðar í
Dölum má finn á www.dalir.is.