Morgunblaðið - 22.10.2009, Blaðsíða 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2009
ÓLAFUR F. Magnússon borgarfulltrúi
Frjálslynda flokksins var duglegur að
bóka á fundi borgarstjórnar Reykjavík-
ur á þriðjudaginn. Átta mál voru á dag-
skrá fundarins og lagði Ólafur fram
alls sex bókanir við þessu mál og í
þeim flestum var ekki töluð nein tæpi-
tunga.
Fyrsta mál á dagskrá voru siðaregl-
ur kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkur,
sem samþykktar voru með 14 atkvæð-
um gegn atkvæði Ólafs. Um þetta mál óskaði
Ólafur bókað m.a.: „Undirritun borg-
arfulltrúa á siðareglum fyrir kjörna
fulltrúa er ekki pappírsins virði í ljósi
þeirrar staðreyndar að fimm af sjö
borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokks sem
undirrituðu málefnasamning árið 2008
um meirihlutamyndun með F-listanum,
meintu ekki eitt einasta orð af því sem
þeir undirrituðu. Miðað við það upp-
lausnarástand, blandað mannorðsveið-
um, sem ríkt hefur á þessu kjörtímabili
og hefur ekki síst verið kynt undir af borg-
arfulltrúum Sjálfstæðisflokksins, að undan-
skildum Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni og Kjartani
Magnússyni, verður það að teljast bíræfni af
hálfu borgarfulltrúa að ætla að setja fögur orð
á blað og kalla það siðareglur.“
Um forgangsröðun hjá borginni lét hann
m.a. bóka:
„Sú ákvörðun borgaryfirvalda að halda
áfram á hraðferð með framkvæmdir við tónlist-
ar- og ráðstefnuhús á sama tíma og skorið er
niður í velferðarþjónustunni í borginni, er tekin
með vitund alls fjórflokksins.“ sisi@mbl.is
Bókunarglaður í borgarstjórn
Ólafur F. Magnússon bókaði sex sinnum um átta mál sem voru til umræðu
Ólafur F.
Magnússon
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 6 skýjað Lúxemborg 13 heiðskírt Algarve 21 skýjað
Bolungarvík 4 skýjað Brussel 16 heiðskírt Madríd 9 súld
Akureyri 2 alskýjað Dublin 12 léttskýjað Barcelona 20 léttskýjað
Egilsstaðir 4 alskýjað Glasgow 13 léttskýjað Mallorca 19 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 8 skýjað London 14 léttskýjað Róm 21 heiðskírt
Nuuk 0 snjókoma París 12 skúrir Aþena 20 léttskýjað
Þórshöfn 10 þoka Amsterdam 14 heiðskírt Winnipeg 4 léttskýjað
Ósló 5 skúrir Hamborg 7 skýjað Montreal 9 alskýjað
Kaupmannahöfn 9 léttskýjað Berlín 7 skýjað New York 18 skýjað
Stokkhólmur 8 skýjað Vín 8 léttskýjað Chicago 16 léttskýjað
Helsinki 5 alskýjað Moskva 6 alskýjað Orlando 27 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
22. október Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 2.16 0,7 8.34 3,9 14.51 0,8 20.53 3,4 8:41 17:45
ÍSAFJÖRÐUR 4.16 0,4 10.28 2,1 16.59 0,5 22.41 1,8 8:54 17:41
SIGLUFJÖRÐUR 0.46 1,2 6.27 0,4 12.44 1,3 19.04 0,2 8:38 17:23
DJÚPIVOGUR 5.41 2,2 12.04 0,5 17.45 1,8 23.58 0,5 8:12 17:12
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á föstudag
Norðaustan 10-15 m/s um
landið norðvestanvert, en ann-
ars hægari vindur. Rigning eða
slydda og snjókoma til fjalla, en
skýjað og þurrt suðvest-
anlands. Hiti nálægt frostmarki
fyrir norðan, en annars 2 til 6
stig.
Á laugardag og sunnudag
Norðaustlæg átt, 5-10 m/s og
dálítil rigning eða slydda með
köflum, en þurrt að mestu
sunnan- og vestanlands. Hiti 1
til 6 stig, mildast sunnan til.
Á mánudag og þriðjudag
Austlæg eða breytileg átt og
skúrir á víð og dreif. Heldur
kólnandi veður.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Norðaustan 8-15 m/s um land-
ið norðvestanvert, en annars
hægari vindur. Rigning eða súld
með köflum, en úrkomulítið
sunnanlands eftir hádegi. Hiti 2
til 8 stig, mildast sunnan til.
Hvers vegna skyldi Icesave-umræðan vera jafn löng og
ruglingsleg og raun ber vitni? Það
skyldi þó ekki vera vegna þess að
stjórnvöld hafa talað út og suður
svo enginn sem hlustar veit sitt
rjúkandi ráð.
Hinn 29. júlí sl.sagði Jón
Sigurðsson, sem
samdi um lán við
Norðurlöndin, til
að mynda: „Eng-
in skilyrði voru
fyrir því í lána-
samningum við
Norðurlöndin að
Alþingi sam-
þykkti Icesave.“
Hinn 31. júlí sl. sagði SteingrímurJ. Sigfússon, fjármálaráðherra,
að Norðurlöndin myndu ekki af-
greiða lán sitt fyrr en Icesave-
samkomulag lægi fyrir. Þetta hefði
hann vitað í nokkrar vikur.
Hinn 10. ágúst sl. sagði JóhannaSigurðardóttir, forsætisráð-
herra, á Alþingi: „Ég held að það sé
alveg skýrt og klárt að norrænu
lánin eru ekki tengd Icesave-
samningnum að neinu leyti öðru en
því að norrænu lánin eru liður í
þeirri áætlun sem við höfum gert
með Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Það er ekkert annað sem þar býr að
baki að mínu viti.“
Fjölda annarra dæma um misvís-andi málflutning ráðamanna
mætti nefna í þessu sambandi. Aug-
ljóst er að miðað við þann fjölda
upplýsingafulltrúa og aðstoð-
armanna sem stjórnvöld hafa ráðið
til sín getur svo misvísandi upplýs-
ingagjöf ekki verið óviljaverk.
Þá stendur eftir spurningin:Hvers vegna vilja stjórnvöld að
umræðan um Icesave og AGS sé
ruglingsleg og óskiljanleg almenn-
ingi? Getur verið að staðreyndir
málsins kæmu stjórnvöldum illa?
Jóhanna
Sigurðardóttir
Vísvitandi ruglingur um Icesave