Morgunblaðið - 22.10.2009, Síða 25

Morgunblaðið - 22.10.2009, Síða 25
Ólafía Guðrún Blöndal ✝ Ólafía GuðrúnBlöndal (Lóa) fæddist á Melum á Skarðsströnd í Dala- sýslu 11. nóvember 1935. Hún lést 1. október síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Grafarvogskirkju 12. október- .Meira: mbl.is/minningar Minningar 25 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2009 Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sigurðardóttir) Ásdísi og fjölskyldu og tengda- mömmu og fjölskyldu votta ég mína dýpstu samúð og bið góðan Guð að styrkja þau. Blessuð sé minning Péturs Björnssonar. Díana Bergmann Valtýsdóttir. Elsku Pétur, nú þegar komið er að kveðjustund verður mér hugsað til þeirra tíma þegar ég bjó hjá afa og ömmu. Ég var lítil frænka og dáði þig og dýrkaði, enda varstu mér óendanlega góður. Þú varst undir tvítugu og varst þá þegar orðinn sjó- maður og sigldir til erlendra hafna. Ég man eftir spenningnum þegar von var á þér eftir langar ferðir og ekki brást að þú komst færandi hendi og voru gjafirnar oft stórkost- legar. Ætli ég hafi verið nema fjög- urra ára þegar þú gafst mér glæsi- legustu dúkku fyrr og síðar og var hún að sjálfsögðu skírð í höfuðið þér, hún Peta, og er hún enn í dag eins fín og þegar ég fékk hana. Þegar ég hugsa til þín þá kemur veiði upp í hugann, enda hafðirðu óþrjótandi áhuga á veiðimennsku og oft áttum við samtöl sem snerust um laxveiðar. Það varst reyndar þú sem smitaðir feðgana á heimilinu af veiði- bakteríunni og verða þeir þér ævin- lega þakklátir fyrir það enda átt góð- ar og skemmtilegar stundir við þá iðju sína. Guð geymi þig. Þín frænka Adda Lára. laganna í Breiðabliki. Halldór og Helga reyndust okkur svo sannar- lega haukar í horni og það má eigin- lega segja að þeirra heimili hafi verið okkar annað heimili og þau hafi tekið okkur í fóstur. En jafnframt því að opna heimilið fyrir okkur þá reynd- ust þau okkur sannir vinir og félagar, sem er sannarlega ekki sjálfgefið en að sama skapi dýrmætt. Það var eig- inlega sama hvað okkur datt í hug. Þau voru jafnan tilbúin að aðstoða eins og þau gátu og taka þátt í alls- konar bralli með okkur. Gilti þá einu hvort við vorum að halda stórbingó í gamla Sigtúni við Suðurlandsbraut eða diskótek í gamla íþróttasalnum í Hamraborginni til að afla fjár fyrir rekstur handboltadeildarinnar, sem þá var og hét. Alltaf voru Halldór og Helga tilbúin, og í minningunni eig- inlega alltaf brosandi og brennandi af áhuga, að leggja hönd á plóg ásamt því góða fólki sem með þeim starfaði í kringum handboltann og sá um rekstur deildarinnar á þessum árum. Þar fór ekki mikið fyrir kynslóða- bilinu. En lífið var ekki bara skóli, handbolti og saltfiskur á þessum ár- um. Það gat líka verið soðin lifrar- pylsa og steiktur blóðmör með róf- ustöppu, á haustkvöldum í eldhúsinu í Kjarrhólmanum eða velgjörðir á gamlársdag á sama stað. Þetta voru sannkallaðir sæludagar og það voru mikil forréttindi að eiga Dóra og Helgu að vinum og félögum. Fyrir það erum við félagarnir þakk- látir og eigum ekki betri ósk til handa ungu fólki en að það eigi vináttu slíkra í veraldarvafstrinu. Traust og lífsglatt fólk sem treysti okkur senni- lega betur en innstæða var fyrir. Hans Dóra verður saknað í get- raunakaffinu á laugardagsmorgnum í Smáranum. Hans verður líka sakn- að á Kópavogsvelli þar sem hann hef- ur ekki látið sig vanta á leikjum Breiðabliks frá því hann flutti í bæ- inn. Hann fylgdist líka spenntur með og gladdist á dögunum þegar Breiða- bliksmenn unnu sinn fyrsta stóra titil í karlafótboltanum . Halldór Heiðar Jónsson, þennan vörpulega og vel stillta sómamann, kveð ég með söknuði. Guð blessi minningu hans. Helgu og fjölskyldunni sendi ég samúðarkveðjur. Ólafur Björnsson. Elsku bróðir minn Ævar er fallinn frá, svo ungur eftir erfið veik- indi sem tóku stuttan tíma. Ævar var alltaf hress og var ekki að kvarta þótt lífið væri ekki alltaf dans á rósum. Hann átti sína ást í lífinu sem bar ávöxt, tvær myndarlegar dætur og sjö barnabörn. Dæturnar Linda og Þórunn voru hjá pabba sínum þegar hann lést og var hann mjög glaður að hafa þær hjá sér. Ævar var mjög mikil félagsvera og átti marga góða vini og var mjög barngóður. Hann var næst yngstur af 10 alsystkinum en ég elst, samt vor- um við miklir mátar. Hann bjó í Eyj- um í mörg ár og var daglegur gestur hjá okkur Rikka, þeir náðu svo vel saman og var oft gaman hjá okkur og Önnu og Pétri. Og nú er hann kominn til þeirra. Hann lá inni á sömu stofu og Anna dó á, þegar hann lést. Ég var búin að vera hjá honum á Líkn síðustu vikuna sem hann lifði því honum fannst gott að að hafa einhvern hjá sér. Dætur hans og Beggi bróðir voru líka hjá honum til skiptis á nóttinni, það fannst honum notalegt. Honum þótti mjög vænt um Begga og Huldu og þau voru honum mjög góð. Beggi var alltaf boðinn og búinn til að hjálpa honum, en það var bara eitt ár á milli þeirra bræðra, og áttu þeir báðir af- mæli í ágúst. Ég á eftir að sakna þín mikið og þó að þú hafir verið fluttur til Reykjavíkur töluðum við oft saman í síma á kvöldin til að fá fréttir af okkar fólki. Við systkinin erum mjög samrýmd og héldum við ættarmót í júlí í sumar á Reykjum í Hrútafirði. Ævar kom með okkur og hafði gaman af þó svo að hann hafi verið mjög lasinn því hann vildi ekki missa af neinu. Og þegar ég var að skipta mér af honum að honum fannst, þá svaraði hann allt- af „já mamma“. Elsku bróðir, ég veit að þér líður vel núna og ert búin að hitta systkinin okkar fimm og pabba og mömmu líka og svo færðu að hvíla við hliðina á Gerðu systur, hún hefur tekið vel á móti þér. Ég bið Guð að gæta þín og dætra þinna, og fjölskyldum þeirra votta ég innilega samúð. Þín systir, Þórdís. Kæri bróðir. Mig langar að minn- ast þín í nokkrum orðum. Af mörgu er að taka af þeim stundum sem við átt- um saman, hvort sem það er frá því að við vorum litlir pattar með pela sem við seldum í búðinni og keyptum steinolíu til að kveikja bál við vorum óttalegir prakkarar þá. Svo voru það ferðalögin sem við höfum farið saman í, við tveir, og líka þegar Hulda fór með okkur. Þú komst oft í heimsókn til okkar Huldu og spiluðum við oft langt fram á nótt og þegar þú varst alveg að tapa þá rakst þú mig oft inn í rúm því þá gastu farið með sigur af hólmi með því að spila aðeins lengur við Huldu. Ævar Sigfússon ✝ Ævar Sigfússonfæddist í Berg- holti á Raufarhöfn 26. ágúst 1953. Hann lést á líknardeild Land- spítalans 10. október sl. og var jarðsunginn frá Garðakirkju 19. október. Þú áttir oft erfitt með flogaveikina en þú tókst á henni eins og hetja. Við vorum mjög nánir bræður og ég undraðist oft hvernig þú tókst á við lífið, það var sama hvað gekk á hjá þér, alltaf var húm- orinn til staðar hjá þér. Alltaf þegar maður ætlaði að tala um veik- indin þá var svarið má ég koma heim til þín eða þegar þú vildir dansa, og þegar ég var að hjálpa þér undir það síðasta að fara upp úr hjólastólnum þá vildirðu dansa við mig þó þú gætir það ekki, svona varst þú, góða skapið alltaf til staðar. Ég vil þakka þér fyrir að vilja hafa mig ásamt dætrum þínum þegar þú kvaddir þennan heim. Ég veit að fólk- ið okkar hefur tekið vel á móti þér. Elsku frænkur mínar, Linda Björk og Þórunn Elfa og fjölskyldur, ykkur votta ég mína dýpstu samúð. Megi góður guð styrkja ykkur í sorginni. Hvíl í friði. Þinn bróðir, Bergþór Heiðar. Kæri frændi, þá er lokið þessari stuttu viðureign við manninn með ljá- inn. Hann hafði betur eins og oftast en var fullsnemma á ferðinni í þínu til- felli. Þær eru margar góðar minning- arnar sem við eigum eftir um þig. Mér fannst minningin um Hvammstanga- beygjuna okkar á leiðinni norður á bleiku Lödunni fyrir nokkuð mörgum árum alltaf standa upp úr og þegar ég kom til þín með mömmu minni fjórum dögum fyrir andlát þitt og sá þig taka danssporið við Begga bróður þinn, inni á Líkn, þá stendur hún upp úr. Beggi var að hjálpa þér úr hjólastóln- um uppí rúmið og þá greipst þú um hann og dansaðir við hann af veikum mætti síðasta dansinn. Þú varst mjög ættrækinn og heim- sóttir okkur oft þegar við bjuggum í Reykjavík og stakkst inn nefinu nokkrum sinnum hjá okkur fjölskyld- unni hér í Eyjum þegar við fluttum, og höfðu krakkarnir gaman af Ævari frænda, enda kunnir þú lagið á þeim. Þegar ég hugsa til þín þá dettur mér helst í hug textabrot sem ég heyrði fyrir stuttu „Það skiptir ekki máli hvað þú tekur með þér þegar þú ferð, heldur það sem þú skilur eftir“ og það eru góðu minningarnar, takk fyrir þær frændi. Lindu, Þórunni og þeirra fjölskyld- um sendum við innilegar samúðar- kveðjur og einnig Bergholtssystkin- um. Þorgeir,Þórdís og börn. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleym- ist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Elsku Beggi og Hulda, Linda, Þór- unn og fjölskyldur og aðrir ættingjar Ævars. Við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Guð blessi ykkur. Kæri Ævar, hvíl í friði. Birna Rut og Sverrir. Guðrún Lára Kjartansdóttir ✝ Guðrún LáraKjartansdóttir fæddist á Akureyri 28. júlí 1952. Hún lést á líknardeild Land- spítalans í Kópavogi 8. október síðastlið- inn og fór útför henn- ar fram frá Háteigskirkju 16. október. Meira: mbl.is/minningar                          ✝ Ástkær sambýliskona mín og móðir, HUGRÚN B. ÞÓRARINSDÓTTIR, Skarðsbraut 4, Akranesi, verður jarðsungin frá Akraneskirkju mánudaginn 26. október kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Sjúkrahús Akraness. Birgir S. Elínbergsson, Elísabet Jónatansdóttir. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTJÁN HAFLIÐASON frá Hergilsey, andaðist á dvalarheimilinu Hrafnistu í Reykjavík föstudaginn 16. október. Útförin fer fram frá Áskirkju föstudaginn 23. októ- ber kl. 11.00. Matthildur Kristjánsdóttir, Jón Már Jakobsson, Snæbjörn Kristjánsson, Gunnar Kristjánsson, afabörn og langafabörn. ✝ Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURBJÖRG SIGVALDADÓTTIR, Sjávargrund 4a, Garðabæ, verður jarðsungin frá Garðakirkju á morgun, föstudaginn 23. október, kl. 11.00. Hanna Stefánsdóttir, Jón Guðlaugsson, Sigrún Stefánsdóttir, Sigþór Sigurjónsson, Bylgja Eybjörg Stefánsdóttir, Stefán Sigurður Stefánsson, Guðfinna Baldvinsdóttir Guðný Stefánsdóttir, Agnar Agnarsson, ömmubörn og langömmubörn. Þökkum samúð og stuðning við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, sonar, föður, tengda- föður, afa og bróður, JÓNS VEIGARS ÞÓRÐARSONAR. Ragnhildur Þórðardóttir, Margrét Sigurpálsdóttir, Óskar, Gerða, Margrét, Símon, Bjarki Snær, barnabörn og systkini. ✝ Eiginkona mín, HELGA INGÓLFSDÓTTIR semballeikari, lést á Landspítalanum að morgni miðvikudagsins 21. október. Jarðarförin verður auglýst síðar. Þorkell Helgason. Minningar á mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.