Morgunblaðið - 22.10.2009, Síða 40
FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 295. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
FÓLK Í FRÉTTUM»
Heimild: Seðlabanki Íslands
DOLLARI
STERLINGSPUND
KANADADOLLARI
DÖNSK KRÓNA
NORSK KRÓNA
SÆNSK KRÓNA
SVISSN. FRANKI
JAPANSKT JEN
SDR
EVRA
MEÐALGENGI/VIÐSKIPTAVOG ÞRÖNG
122,31
202,74
116,12
24,539
21,961
17,696
121,0
1,3465
195,21
182,68
Gengisskráning 21. október 2009
122,6
203,23
116,46
24,611
22,026
17,748
121,34
1,3504
195,79
183,19
235,0912
MiðKaup Sala
122,89
203,72
116,8
24,683
22,091
17,8
121,68
1,3543
196,37
183,7
Heitast 8°C | Kaldast 2°C
NA 8-15 m/s á NV-
landi, annars hægari.
Rigning eða súld með
köflum, en úrkomulítið
sunnanlands. » 10
Hinn 5. nóvember
fer fram stutt-
myndakeppni fyrir
ungt fólk í Norræna
húsinu. Keppt verð-
ur í 3 flokkum. »37
KVIKMYNDIR»
Stuttmynda-
keppni
TÓNLIST»
Grímur Atla rokkar upp
Dalina. »35
Wild Beasts er ein
forvitnilegasta sveit
sem frá Bretlandi
hefur komið í langan
tíma að mati Árna
Matt. »36
TÓNLIST»
Wild Beasts
heillar Árna
KVIKMYNDIR»
Gamer þykir ekki upp á
marga fiska. »37
TÓNLIST»
Bók um Villa Vill kemur
og út sem hljóðbók. »34
Menning
VEÐUR»
1. 6 á gjörgæslu með H1N1
2. Fordæmir ræðu Árna Johnsen
3. Hvað er þetta annað en …?
4. Fær bætur vegna …slyss
Íslenska krónan styrktist um 0,6%
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Sigurður
Helgason, stjórn-
arformaður Ice-
landair Group, hef-
ur afsalað sér rétti
sínum til stjórn-
arlauna. Stjórn fé-
lagsins samþykkti,
að ósk Sigurðar, að styrkja Vild-
arbörn um fjárhæð sem svaraði til
þeirra launa sem hann afsalar sér.
Alls hafa um 260 fjölskyldur lang-
veikra barna notið stuðnings frá
sjóðnum frá upphafi, en starfsemi
Vildarbarna Icelandair byggist á
hugmyndum og starfi Peggy Helga-
son, eiginkonu Sigurðar.
MANNÚÐARMÁL
Sigurður afsalar sér stjórn-
arlaunum til Vildarbarna
Ástralinn Ben
Frost hefur verið
búsettur hérlendis
lengi vel og hefur
sinnt tónsköpun af
ýmsu tagi. Hann á
t.d. tónlistina í
Hamrinum sem er
nú sýndur á RÚV. Væntanleg er og
mynd frá heimalandi hans, In Her
Skin, með stórleikurunum Sam Neill
og Guy Pearce í burðarrullum. Frost
samdi tónlistina þar en Amiina sá
um strengjaleik. Um sannsögulegan
spennuhrylli er að ræða sem fjallar
um unglingsstúlku sem myrt var af
barnapíunni sinni.
TÓNLIST
Ben Frost semur fyrir mynd
með Sam Neill og Guy Pearce
Á síðasta fundi
borgarstjórnar
flutti Samfylkingin
tillögu um að
kanna möguleika á
að haldnir verði al-
þjóðlegir stór-
tónleikar tileink-
aðir friði í tengslum við tendrun
ljóssins á friðarsúlu Yoko Ono á
næsta ári, þegar 70 ár verða liðin frá
fæðingu Johns Lennon. Ef áhugi
sé á málinu hjá listakonunni Yoko
Ono skuli þegar hafist handa við að
kanna áhuga þekktra innlendra og
alþjóðlegra tónlistarmanna á þátt-
töku í slíkum tónleikum.
TÓNLIST
Stórtónleikar á 70 ára
afmæli Johns Lennon?
GUNNAR Eyjólfsson leikari las brot úr bókinni
Elsku besta Binna mín eftir Kristínu Helgu
Gunnarsdóttur fyrir nemendur 4. bekkjar Fella-
skóla í gær. „Ég fékk mjög góðar undirtektir en
ég notaði líka tækifærið til að vara börnin við því
að byrja að reykja því við viljum ekki eyðileggja
það sem við kunnum ekki að búa til,“ segir Gunn-
ar og á þar við lungun. Upplesturinn markaði
upphaf átaks á vegum borgarinnar og Fé-
lagsstarfs eldri borgara þar sem æskan og ellin
vinna saman að því að auka lestraráhuga grunn-
skólanema og örva málvitund. jmv@mbl.is
Gunnar Eyjólfsson leikari les fyrir ungu kynslóðina
Gaf börnunum góð ráð í leiðinni
Morgunblaðið/Kristinn
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
„VIÐ byrjuðum 5. september og
hingað koma allt að 15 manns á
morgnana,“ segir systir Piotra, ein
Teresusystranna sem hafa nú að-
stöðu á Sólvallagötu 27 til að taka á
móti nauðstöddum.
Nunnurnar fundu sjálfar húsnæði
og greiðir Teresureglan húsaleig-
una. Systir Piotra segir að upp-
haflega hafi nunnurnar hugsað sér
að koma á fót súpueldhúsi en fengið
þau svör frá borginni að matarhjálp
Samhjálpar sinnti þörfinni fyrir
slíka þjónustu nægilega vel.
„Við reynum að hafa góðan morg-
unmat eins og egg, beikon eða jafn-
vel fisk svo fólk fái næga næringu,“
segir systir Piotra. Hún segir fólki
jafnframt frjálst að fá mat með sér
heim óski það eftir því.
Systir Piotra segir að íbúar í ná-
grenninu hafi tekið vel í starfsemi
þeirra og boðist til að liðsinna þeim.
„Hingað kemur til dæmis maður
einu sinni í viku með nokkra poka af
kleinum,“ segir systir Piotra ánægð.
Hún segir marga sem leita til
þeirra aðeins sækjast eftir andlegri
hjálp. „Margir sjá krossinn inn um
gluggann þegar þeir ganga framhjá
og biðja um fyrirbænir og andlega
hjálp,“ segir systir Piotra sem segist
finna fyrir aukinni þörf fyrir aðstoð
á Íslandi eftir bankahrunið í fyrra.
Óvíst er hinsvegar um framhald
starfseminnar. „Við höfum húsnæðið
á leigu til sex mánaða en það er frek-
ar dýrt svo ef við ætlum að halda
áfram getur verið að við þurfum að
leita að einhverju ódýrara,“ segir
systir Piotra sem segir húsnæðið á
Sólvallagötu mjög gott og henta
þeim vel.
Maginn fylltur
Teresusystur bjóða upp á beikon, egg
og fisk í morgunmat við Sólvallagötu
Morgunblaðið/Kristinn
Fátækt Teresusystur bjóða mat.
Eftir Sigurð Boga Sævarsson
sbs@mbl.is
KÁRI Stefánsson, forstjóri Ís-
lenskrar erfðagreiningar, fær And-
ers Jahres-verðlaunin í læknavís-
indum sem afhent verða í Osló í
næstu viku. Þetta eru ein virtustu
vísindaverðlaun Evrópu og nokkurs
konar Nóbelsverðlaun Norður-
landanna í læknisfræðum. Verð-
launaupphæðin er ein milljón
norskra króna eða rúmar 22 millj. ís-
lenskra króna.
Kári verður fyrstur Íslendinga til
að hljóta verðlaunin frá upphafi sem
voru fyrst veitt í kringum 1960
Framlag til erfðafræði
Verðlaunin verða afhent við hátíð-
lega athöfn að Noregskonungi við-
stöddum. Kári Stefánsson fær að-
alverðlaunin að þessu sinni, fyrir
framlag Íslenskrar erfðagreiningar
til rannsókna á erfðafræði algengra
sjúkdóma. Aðrir sem fá verðlaun að
þessu sinni eru Svíinn Anders Teng-
holm og Finninn Jukka Wester-
marck, báðir fyrir rannsóknir á sviði
frumulíffræði.
„Ég get lítið um þetta sagt. Menn
hafa einfaldlega ákveðið að veita
okkur þessi verðlaun og ég fer til
Osló í næstu viku og veiti þeim við-
töku,“ segir Kári Stefánsson. Hann
bætir við að í raun haldist við-
urkenningin í hendur við ágætan vís-
indaárangur sem starfsfólk Ís-
lenskrar erfðagreiningar hefur náð
að undanförnu.
„Síðustu ár hefur verið mikil
gróska í öllu okkar vísindastarfi og á
næstunni mun okkar fólk birta fjölda
vísindagreina í virtum alþjóðlegum
tímaritum,“ segir Kári Stefánsson.
Kári fær norræn
læknaverðlaun
Viðurkenning Kári Stefánsson fær
Anders Jahres-verðlaunin.