Morgunblaðið - 06.11.2009, Side 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn
Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór
Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Bílaapótek Hæðarsmára
Mjódd • Álftamýri
Eftir Þórð Gunnarsson
thg@mbl.is
LÖGMANNSSTOFAN Logos þjón-
ustaði félag á vegum Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar þann 23. september
síðastliðinn. Þetta kemur fram í
gögnum frá fyrirtækjaskrá Bret-
lands sem Morgunblaðið hefur undir
höndum. Á sama tíma hafði lögmað-
ur frá Logos, Erlendur Gíslason,
umsjón með uppgjöri þrotabús
Baugs, sem var einnig í eigu Jóns
Ásgeirs og fjölskyldu. Baugur var
lýstur gjaldþrota í mars sl.
Í kjölfar fyrirspurnar Morgun-
blaðsins um málið hjá Logos sendi
stjórn lögmannsstofunnar frá sér yf-
irlýsingu. Í henni segir að mistök
hafi verið að senda út tilkynningu
fyrir félagið sem um ræðir. „Ekki
vegna þess að við teljum að um
hagsmunaárekstur hafi verið að
ræða eða brot á siðareglum, sem var
ekki, heldur vegna þess að þetta er
óheppilegt í ljósi þess að starfsmenn
okkar annast skiptastjórn Baugs.
Ástæðu þessa má rekja til sjálf-
stæðs verkskráningarkerfis í Lond-
on sem gerði það að verkum að við á
skrifstofunni í Reykjavík áttuðum
okkur ekki á því hverjir eru eigend-
ur félagsins.“ Stjórn Logos lýsir því
yfir að henni þyki þetta miður, og að
betur verði hugað að þessum málum
í framtíðinni.
Jón Ásgeir framkvæmdastjóri
Um er að ræða tilkynningu vegna
breytinga á framkvæmdastjórn
hlutafélagsins JMS Partners, en þar
settist Jón Ásgeir Jóhannesson í
stól framkvæmdastjóra. Logos hafði
umsjón með breytingum á fram-
kvæmdastjórn JMS Partners Limi-
ted og skilaði inn viðeigandi skjölum
til fyrirtækjaskrár í Bretlandi.
Hluthafar í JMS Partners eru
Gunnar Sigurðsson, Piano Holding
og Donald McCarthy. Gunnar er
fyrrverandi forstjóri Baugs. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
var Piano Holding skráð eigandi
snekkjunnar 101, sem sögð var hafa
kostað tæpa fimm milljarða króna.
Piano er skráð á Cayman-eyjum.
Hluthafarnir þrír eiga u.þ.b. jafnan
hlut í JMS Partners. Þar sem Piano
Holding er með heimilisfesti á Cay-
man-eyjum er erfitt að afla frekari
upplýsinga um það, eða hversu mik-
ið fé það leggur inn í JMS.
Logos viðurkennir mistök
Logos í London innti af hendi þjónustu fyrir fyrirtæki tengd Baugi í september
Lögmannsstofan Logos á Íslandi gerði upp þrotabú Baugs á sama tíma
VEL fiskast í Flóanum og vonandi hafa báts-
verjar á Bjargfuglinum verið ánægðir með dag-
inn þegar báturinn renndi sér með inn á Reykja-
víkurhöfn síðdegis í gær. Næstu daga er spáð
ágætu veðri við vestanvert landið og ætti að gefa
á sjóinn og vísast verða gæftirnar góðar.
BJARGFUGLINN SIGLIR UM SÆINN
Morgunblaðið/RAX
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar var
ræst út um kvöldmatarleytið í gær-
kvöld vegna alvarlegs bílslyss í
Langadal í Húnavatnssýslu.
Karl og kona slösuðust þegar
jeppi þeirra valt út af veginum við
bæinn Auðólfsstaði í Langadal. Ekki
voru fleiri en þau tvö í bílnum. Fljúg-
andi hálka var á slysstaðnum.
Útkallið barst frá Neyðarlínunni
til Landhelgisgæslunnar kl. 18:58 og
var þyrlan Líf komin í loftið 18 mín-
útum síðar, kl. 19:16, og lenti hún á
slysstað í Húnavatnssýslu kl. 20:10.
Tuttugu mínútum síðar fór þyrlan
á loft að nýju með hin slösuðu innan-
borðs og voru þau flutt á slysadeild
Landspítalans í Fossvogi.
Þá fór annar jeppi út af veginum í
Blönduhlíð um kl. 18 í gærkvöldi.
Einn maður var í bílnum og slasaðist
hann ekki. Hálka og hálkublettir
voru á Norður- og Norðausturlandi
og á Vestfjörðum í gærkvöld.
Flutt með þyrlu eft-
ir slys í Langadal
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Líf Hin slösuðu voru komin á LSH
um einni og hálfri klst. eftir útkall.
Mikil hálka var á vegum í gær og nótt
Í NOKKUR
skipti á síðustu
vikum hefur hent
að fresta hafi
þurft aðgerðum á
Landspítala
vegna mikils
álags af völdum
svínaflensunnar.
„Þetta eru nokk-
ur tilfelli en í öll-
um tilvikum er
um að ræða valaðgerðir sem við
metum sem svo að geti þá beðið ein-
hverja daga eða vikur og megi að
meinalausu hnika til. Hins vegar
hafa engar krabbameinsaðgerðir
beðið eða bráðaaðgerðir,“ sagði
Björn Zoëga forstjóri Landspít-
alans.
Mikið álag hefur verið á allri
starfsemi Landspítalans að und-
anförnu af völdum svínaflensu. „Nú
er ástandið hins vegar með skásta
móti,“ sagði Björn í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi. Átta
svínaflensusjúklingar voru í gær á
gjörgæslu og um 30 á almennum
deildum.
Reiknað er með að almenn bólu-
setning gegn svínainflúensunni hefj-
ist á höfuðborgarsvæðinu 16. nóv-
ember, en bólusetning forgangshópa
gekk greitt fyrir sig. sbs@mbl.is
Frestað
vegna
flensunnar
Björn
Zoëga
Almenn bólusetning
hefst 16. nóvember
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness úr-
skurðaði í gær að útgerðarfyrir-
tækið Festi ehf. í Hafnarfirði yrði
tekið til gjaldþrotaskipta, en Lands-
bankinn óskaði gjaldþrotaskipta á
fyrirtækinu fyrir um mánuði. Jón
Auðunn Jónsson hefur verið skip-
aður skiptastjóri fyrirtækisins. Um
100 manns hafa starfað hjá Festi.
Úrskurðurinn verður kærður til
Hæstaréttar. Á fyrri stigum hafði
Festi ehf. farið fram á að gjaldþrota-
skiptabeiðni Landsbankans á hend-
ur fyrirtækinu yrði afturkölluð.
Sagði lögfræðingur Festar for-
sendur fyrir slíku eftir að lög um að-
gerðir í þágu fólks og fyrirtækja
vegna bankahrunsins tóku gildi.
Þetta samþykkti Landsbankinn ekki
og bar því við að erfiðleikar Festar
væru að mestu ótengdir banka-
hruninu. sbs@mbl.is
Festi ehf. er
farin í þrot
Donald McCarthy er þekkt nafn á
Bretlandseyjum, en hann var hlut-
hafi í House of Fraser á sama tíma
og Baugur, og gegndi stjórnarfor-
mennsku í fyrrnefnda fyrirtækinu.
McCarthy hefur verið nokkuð um-
svifamikill á sviði smásölu í Bret-
landi.
Árið 2007 keypti McCarthy 3%
hlut í Baugi. Jafnframt tók hann
sæti í stjórn Baugs, auk tengdra
fyrirtækja, til dæmis Moss Bros.
Við vinnslu fréttar var reynt að
afla upplýsinga um hvort Donald
McCarthy væri einn þeirra erlendu
fjárfesta sem sagðir eru ætla að
fjárfesta í rekstri 1998 ehf., en það
fékkst ekki staðfest.
Sat í stjórn Baugs og tengdra fyrirtækja
SÍÐUSTU sólarhringa hafa amma
og afi þriggja ára drengs verið með
hann á flótta undan barnavernd-
aryfirvöldum. Nokkur misseri eru
frá því að móðir barnsins var svipt
forræði vegna vímuefnaneyslu.
Barnið hefur að mestu alist upp í
skjóli ömmu sinnar og afa síðan þá
en þau hafa verið í samstarfi við
barnavernd í sinni heimabyggð.
Fólkinu hefur ekki tekist að
halda móður drengsins frá heimili
hans og vill barnavernd því að
drengurinn fari í fóstur til vanda-
lausra. Þegar sækja átti drenginn
gripu barnaverndaryfirvöld og lög-
regla hins vegar í tómt. Barna-
verndaryfirvöld líta málið alvar-
legum augum.
sbs@mbl.is
Með dreng
á flótta
Á að setja í fóstur