Morgunblaðið - 06.11.2009, Side 18
18 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2009
Áhugaverðar bækur!
holar@simnet.is
Kafbátasagan
Frá köfun í klukkum eða stömpum með
öndunarlofti til kjarnorkukafbáta. Inn í
söguna fléttast tvær heimsstyrjaldir með til-
heyrandi mannfórnum, hernaðarlegri snilld
og mistökum.
Orrustan um Spán
Spænska borgarastríðið. Herforingjarnir
ætla að ná völdum á Spáni sama hvað
það kostar. Eitt af meistaraverkum
Antony Beevor.
HRUN Berlínarmúrsins fyrir tuttugu árum hefur orðið
mörgum tilefni til að rifja upp hvernig líf fólks var í
kommúnistaríkjum Austur-Evrópu. Eitt af því sem al-
menningur notaði til að hefna fyrir ritskoðun og annað
ófrelsi var að skiptast á bröndurum sem oft þóttu lýsa
afburða vel raunveruleikanum á bak við fögur orð
ráðamanna og fjölmiðla um sæluna í alræðinu austan
járntjaldsins. Þessar gömu skopsögur sameina enn þá
sem nú búa á þessum slóðum og oft er hægt að heim-
færa, með smábreytingum, háðið upp á núverandi
ráðamenn.
,,Anekdotí“ kölluðu Rússar sögur af þessu tagi á
sínu tungumáli og stundum var gálgahúmorinn svart-
ur. Austur-Þjóðverjar töluðu um „3-7 brandara“ og var
þá vísað til þess að menn fengju þriggja ára fangelsi
væru þeir staðnir að því að hlusta á sögur af þessu
tagi, sem taldar voru grafa undan ríkinu, en sjö ár fyr-
ir að segja þær.
„Hvers vegna ákváðu ráðamenn Sovétríkjanna að
senda ekki menn til tunglsins? Þeir voru hræddir um
að þeir myndu heimta pólitískt hæli.“
Erich Honecker, leiðtogi Austur-Þýskalands, skip-
ar ráðherra einum að rífa niður Berlínarmúrinn. Furðu
lostinn ráðherrann spyr um ástæðuna. „Ég vil fá að
vera alveg einn,“ svarar Honecker.“
Á níunda áratugnum töldu flestir A-Þjóðverjar að
kommúnistaflokknum væri stýrt af elliærum og spillt-
um embættismönnum. „Hvað er með 70 tennur og
fjóra fætur? Krókódíll. Hvað er með fjórar tennur og
70 fætur? Miðstjórn Kommúnistaflokksins.“
Oft var gert gys að kennisetningum kommúnista.
„Kapítalismi merkir að maður arðrænir annan mann.
Kommúnismi merkir að þessu er algerlega snúið við.“
Og hvort var betra að vera í helvíti kommúnist-
anna eða kapítalistanna? „Kommúnistanna, að sjálf-
sögðu! þar er alltaf skortur á eldspýtum og eldiviði,
ofnarnir eru alltaf bilaðir og djöfullinn og handlangarar
hans alltaf uppteknir á flokksfundum.“ kjon@mbl.is
Vel tenntur krókódíll og illa
tennt miðstjórn flokksins
Leynilegar háðsögur í kommúnistaríkjunum rifjaðar upp
Neysla á
kókaíni
jókst enn
Evrópuþjóðum
tókst ekki að
draga úr neyslu á
kókaíni og her-
óíni á síðasta ári,
að því er fram
kemur í árs-
skýrslu sem
Eftirlitsmiðstöð
Evrópu með lyfj-
um og lyfjafíkn
(EMCDDA) birti í gær.
Kókaínneyslan jókst eða hélst
óbreytt meðal fólks á aldrinum 15-34
ára á síðasta ári. Áætlað er að fjórar
milljónir manna hafi þá neytt kók-
aíns í löndum Evrópusambandsins
og Noregi.
Heróínneyslan hélst óbreytt og
áætlað er að 1,2-1,5 milljónir manna
hafi neytt heróíns á síðasta ári.
Dauðsföllum, sem rakin eru til fíkni-
efnaneyslu, fjölgaði í 13 af 18 löndum
sem fjallað er um í skýrslunni. Flest
dauðsfallanna voru af völdum
heróíns.
Neysla kannabisefna minnkaði
hins vegar, einkum meðal unglinga á
aldrinum 15-16 ára, að því er fram
kemur í skýrslunni.
Hald lagt á kókaín í
Kólumbíu.
Kannabisneysla
minnkaði í Evrópu
FRÉTTASKÝRING
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
RÁÐHERRA Evrópumála í frönsku ríkis-
stjórninni, Pierre Lellouche, hefur gagnrýnt
harðlega nýja Evrópustefnu breskra íhaldsmanna
sem leiðtogi þeirra, David Cameron, kynnti í
fyrradag. Ráðherrann sagði stefnuna „hörmu-
lega“ og til marks um „sjálfhverfu“.
Cameron staðfesti að ef hann yrði forsætisráð-
herra eftir þingkosningar í Bretlandi á næsta ári
myndi hann ekki standa við tveggja ára gamalt
loforð sitt um að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu
um Lissabon-sáttmálann. Hann sagði að óhjá-
kvæmilegt væri að falla frá slíku þjóðaratkvæði
nú þegar öll ESB-ríkin hafa fullgilt sáttmálann.
Cameron hafnaði einnig þeirri hugmynd að
efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um tengsl Bret-
lands og Evrópusambandsins til að styrkja stöðu
breskra stjórnvalda í samningaviðræðum við
ESB. Hann sagði að aðgerðir til að minnka fjár-
lagahallann yrðu forgangsverkefni sitt og kvaðst
vilja forðast hörð átök við Evrópusambandið.
Æðsta valdið í höndum þingsins
Cameron sagðist ætla að gefa sér fimm ár til að
semja um að Bretar endurheimtu völd sem hafa
verið færð til ESB. Hann boðaði sérstök
„fullveldislög“ sem kvæðu skýrt á um að „æðsta
valdið“ væri í höndum breska þingsins.
Cameron sagði að Íhaldsflokkurinn myndi
tryggja með lagabreytingum að allir sáttmálar,
sem fælu í sér frekara valdaafsal til ESB, yrðu
bornir undir þjóðaratkvæði í Bretlandi.
Að sögn breskra dagblaða virðast flestir þing-
menn Íhaldsflokksins vera sáttir við þessa stefnu
Camerons þótt hann hafi ekki orðið við kröfum
hörðustu andstæðinga Lissabon-sáttmálans.
Tveir forystumanna Íhaldsflokksins á Evrópu-
þinginu – Daniel Hannan og Roger Helmer –
ákváðu þó að víkja úr forystusveit flokksins vegna
málsins. Roger Helmer kvaðst hafa sagt af sér
sem talsmaður flokksins í atvinnumálum á
Evrópuþinginu vegna þess að nýja Evrópustefnan
væri ruglingsleg og yfirborðskennd.
Þótt Cameron segðist vilja forðast hörð átök við
ESB gagnrýndi Pierre Lellouche stefnu breskra
íhaldsmanna harkalega og sakaði þá um „afkára-
lega sjálfhverfu“. „Þetta er hörmulegt. Það er
mjög sorglegt að Bretland, sem er svo mikilvægt í
Evrópu, skuli einangra sig með þessum hætti og
hverfa af ratsjárkortinu,“ sagði hann.
Þessi harkalegu viðbrögð komu á óvart þar sem
Lellouche hefur verið „einn af helstu Bretavin-
unum í frönsku stjórninni“, eins og The Guardian
orðaði það. Ráðherrann sagði orð sín endurspegla
viðhorf Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta. Willi-
am Hague, talsmaður breskra íhaldsmanna í ut-
anríkismálum, kvaðst þó ekki telja að gagnrýni
Lellouche væri „dæmigerð fyrir viðbrögð stjórn-
valda í París eða öðrum höfuðborgum Evrópu“.
Lýst sem „afkáralegri sjálfhverfu“
Franskur ráðherra gagnrýnir harðlega nýja stefnu breskra íhaldsmanna í
Evrópumálum David Cameron kveðst vilja forðast átök við Evrópusambandið
Reuters
Ný stefna Cameron hyggst gefa sér
fimm ár til að semja við ESB.
Flestir þingmenn breska Íhaldsflokksins virð-
ast vera sáttir við stefnu Camerons í Evrópu-
málum en tveir talsmenn flokksins á Evrópu-
þinginu sögðu þó af sér vegna deilunnar.
MAHMOUD Abbas, forseti
Palestínumanna, kvaðst í gær ekki
ætla að sækjast eftir endurkjöri í
kosningum, sem ráðgerðar eru 24.
janúar, vegna óánægju með afstöðu
stjórnar Baracks Obama Banda-
ríkjaforseta til landtökubyggða gyð-
inga á Vesturbakkanum.
Abbas skýrði framkvæmdastjórn
Frelsissamtaka Palestínumanna
(PLO) frá því að hann hefði ákveðið
að sækjast ekki eftir endurkjöri en
stjórnin hafnaði strax ákvörðun
hans. Talsmaður PLO sagði að
flokkur Abbas, Fatah, styddi enn
framboð hans í forsetakosningunum.
Vill ekki í
framboð
KIRA, fimm daga gamall bavíani, fær hér pela í Rojev
Rútsej-dýragarðinum í borginni Krasnojarsk í Síberíu.
Móðir Kiru neitar að gefa henni brjóst og starfsmenn
dýragarðsins þurfa því að gefa henni pelamjólk.
Reuters
FÆR PELA Í STAÐ BRJÓSTAMJÓLKUR
FJÖLSKYLDU 59 ára Brasilíu-
manns rak í rogastans á dögunum
þegar hann birtist í eigin jarðarför.
Fjölskyldan hafði talið að hann hefði
dáið í bílslysi.
Frænka og fjórir vinir múrarans
Ademirs Jorge Goncalves höfðu
ranglega borið kennsl á hann þegar
lögreglan fékk þau til að skoða lík
mannsins sem dó. Í ljós kom að mað-
urinn hafði setið að drykkju með fé-
lögum sínum og ekki frétt af útför
sinni fyrr en hún hafði hafist.
Lögreglan kvaðst hafa komist að
réttu nafni mannsins sem dó.
Mætti í eigin
jarðarför