Morgunblaðið - 06.11.2009, Qupperneq 46
46 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2009
TÓNLISTARFÉLAG
Akureyrar í samstarfi við
Menningarmiðstöðina
Listagili og RUB23 býð-
ur til Föstudagsfreist-
inga í Ketilhúsinu í dag
kl. 12.15. Málmblás-
aratríó leikur verk eftir
Jóhann Sebastian Bach,
Georg Friedrich Händel og Francis Poulenc.
Tríóið skipa þeir Vilhjálmur Ingi Sigurðarson
trompetleikari, Helgi Þ. Svavarsson hornleikari
og Kaldo Kiis básúnuleikari. Boðið verður upp á
súpu frá RUB23 og er hún innifalin í miðaverðinu.
Föstudagsfreistingarnar eru hádegistónleikaröð
Tónlistarfélags Akureyrar og fara tónleikarnir
fram í Listagilinu.
Tónlist
Föstudagsfreist-
ingar úr málmi
Málmblásaratríóið
HEKLA Dögg Jónsdóttir,
Daníel Björnsson, Sirra Sigrún
Sigurðardóttir og Ásdís Sif
Gunnarsdóttir sýna saman á
dimmasta tíma ársins og opna
sýningu í Skaftfelli á Seyð-
isfirði á morgun. Listamenn-
irnir eiga það sameiginlegt að
búa til verk sem eiga best
heima í myrkri. Fyrsta sýning
þeirra saman, í desember 2006,
hét Ljósaskipti. Þau gáfu frá
sér nokkurs konar yfirlýsingu um að þau tengdust
í gegnum sjónrænt tungumál, ákveðna rómantík
gagnvart ljósum í myrkri, viðkvæmum efnum og
myndvörpum; – rata á stjörnuhrap af því að skiln-
ingarvitin finna að það er eitthvað í loftinu.
Myndlist
Myrkraverk
í stjörnuhrapi
Hekla Dögg
Jónsdóttir
TÍMARITIÐ Orð og tunga, í
samvinnu við Stofnun Árna
Magnússonar í íslenskum
fræðum boðar til málþings
undir yfirskriftinni Orð af orði
í fyrirlestrasal Þjóðarbókhlöð-
unnar á morgun kl. 10 –16.15.
Erlendir fyrirlesarar verða
Arne Torp, prófessor við Há-
skólann í Osló, og Bente Holm-
berg, lektor og forstöðumaður
Norrænu rannsóknarstofnunarinnar við Kaup-
mannahafnarháskóla. Aðrir fyrirlesarar verða
Guðrún Kvaran, Guðrún Þórhallsdóttir, Gunn-
laugur Ingólfsson, Haraldur Bernharðsson, Jón
Axel Harðarson, Margrét Jónsdóttir og Mörður
Árnason.
Hugvísindi
Málþing um
orð og orðsifjar
Guðrún Kvaran
[L]itli heili er kall-
aður hnykill en
þetta vissum við nú ekkert
fyrr en við vorum komin
aðeins lengra. 49
»
EINHVER þekktasta safnbygging
heims hönnunarlega séð er án efa
útibú Guggenheim-safnsins í Bilbao
eftir arkitektinn Frank Gehry,
helsta kennileiti borgarinnar.
Nú muni uppi áform um að
byggja annað Guggenheim-safn í
eða við bæinn Guernica í Baska-
landi, sem Picasso nefndi eitt sitt
þekktasta verk eftir en yrkisefnið
var loftárás þýska og ítalska hers-
ins á bæinn árið 1937.
Samkvæmt upplýsingum frá list-
ritinu Art Newspaper er Guggen-
heim í Bilbao að kanna málið en Gu-
ernica er aðeins um 40 km frá
Bilbao. Safnið yrði ekki jafnstórt og
safnið í Bilbao og reist á svæði sem
Menningarmálastofnun Sameinuðu
þjóðanna, UNESCO, hefur friðað.
Tímabundnar sýningar yrðu
haldnar í safninu auk hvers konar
sýninga listamanna utandyra.
Skiptir skoðanir eru um hugsanlegt
safn, sveitarstjórn svæðisins sem
Guernica heyrir til er hlynnt því að
það rísi og hefur lagt fé í verkefnið.
Ríkisstjórn sjálfstjórnarhéraðsins
Baskalands er ekki eins spennt fyr-
ir þessu, að leggjast í kostnaðar-
samar byggingarframkvæmdir fyr-
ir Guggenheim í miðri kreppu.
Juan Vidarte, forstöðumaður
Guggenheim í Bilbao, er þó bjart-
sýnn á að safnið rísi og segir mögu-
legt að það verði opnað árið 2013
eða 2014. Menn geta þá heimsótt
tvö Guggenheim-söfn í Baskalandi.
Guggenheim í Bilbao Sjálfsagt
þekktasta mannvirki Baskalands.
Guernica-
Guggen-
heim?
Mögulegt að annað
safn rísi í Guernica
skammt frá Bilbao
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
UNDANFARIN ár hefur Jazzhátíð
Reykjavíkur haldið gítarveislu þar
sem Björn Thoroddsen hefur verið
gestgjafi og stjórnandi, en nú ber
svo við að Björn býður til veislu í
Kópavogi í kvöld þar sem boðið
verður upp á gítarfimleika úr öllum
áttum, ef svo má segja.
Gítarveislan á Jazzhátíðinni hefur
jafnan gengið undir nafninu Gítar-
veisla Bjössa Thor., en Björn segir
að það hafi verið nánast fyrir slysni,
menn hafi vantað nafn á hana og því
gripu þeir hans nafn, „eiginlega
óvart“, segir hann „og síðan hefur
það verið viðloðandi.“
Björn Thoroddsen segir að gítar-
veislan hafi gengið vel á Jazzhátíð-
inni, en svo hafi komið að hann lang-
aði að halda slíka hátíð á eigin
forsendum og þá blasti við að hafa
hana í Kópavoginum, enda býr hann
þar. „Ég valdi svo rjómann af þeim
gítarleikurum sem hafa haft áhrif á
mig í gegnum tíðina, mín gítargoð,
og missti mig aðeins í því,“ segir
Björn, en alls munu þrettán gít-
arleikarar koma við sögu í kvöld,
auk Björns sjálfs: Tryggvi Hübner,
Vilhjálmur Guðjónsson, Ólafur
Gaukur Þórhallsson, Þorsteinn „Sta-
nya“ Magnússon, Halldór Bragason,
Jón Páll Bjarnason, Sigurgeir Sig-
mundsson, Sævar Árnason, Gunnar
Ringsted, Eðvarð Lárusson, Hjört-
ur Steinarsson og Þórður Árnason.
Að lokinni þessari upptalningu segir
hann að þeir séu vissulega fleiri sem
haft hafi áhrif á hann sem hljóðfæra-
leikara, en þeir verði bara með næst.
Ekki er bara að Björn valdi sér
meðspilara, heldur valdi hann líka
lög sem þeir myndu spila, eða eins
og hann orðar það: „Ég benti mönn-
um á þau lög sem mér fannst helst
einkennandi fyrir þá og þeir féllust á
að spila þau, eitt til tvö lög hver og
stundum í syrpum. Gítarinn er rödd-
in en ég held það sé óhætt að segja
að fólk eigi eftir að þekkja öll þau lög
sem það fær að heyra,“ segir Björn,
en á bassa og trommur verða síðan
þeir Jón Rafnsson á bassa og Jó-
hann Hjörleifsson á trommur en
þeir skipa Blúshljómsveit Kópavogs
með Birni.
Að þessu sögðu er ljóst að gítar-
músíkin verður í fjölbreyttara lagi,
enda ólíkir gítarleikarar, og svo má
telja. Björn segist ekki hafa áhyggj-
ur af því að flóran verði of fjöl-
skrúðug. „Það má segja að við séum
að segja gítarsögu og tengist líka
gítarsýningu sem sett var upp í tón-
listarsafni Kópavogs í vikunni.“
Ekki er bara að menn ætla að
spila sem mest þeir mega í kvöld,
heldur stendur til að heiðra gítar-
leikara með grip sem Björn kallar
gylltu gítarnöglina. Hann vill ekki
gefa upp hver það verður, en segir
að það verði ekki endilega einhver
þeirra sem spila í kvöld: „Það koma
margir til greina og ég bendi þér á
að vera ekki langt frá símanum, ef
ske kynni að ég þurfi að ná í þig …“
Veislan verður haldin í Salnum í
Kópavogi í kvöld og hefst kl. 21.
Björn Thoroddsen býður til gítarveislu
Morgunblaðið/Valdís Thor
Gítarsaga Björn Thoroddsen kallaði saman tólf áhrifavalda sína.
Í HNOTSKURN
»Gítarveisla Bjössa Thor.hefur verið fastur liður á
Jazzhátíð Reykjavíkur en nú
haldin í Kópavogi.
»Gítarleikarar kvöldsinskoma úr ýmsum áttum: bí-
bopi, sveifludægurtónlist,
þungarokki, blús, djassi, fram-
úrstefnufönki, sveifludjassi,
poppi og svo má telja.
»Gullna gítarnöglin verðurveitt í fyrsta sinn í kvöld.
Gítarinn
er röddin
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
ÍSLENSK Grafík fagnar 40 ára af-
mæli sínu í ár, og hefur hver við-
burðurinn rekið annan af því tilefni.
Hápunktur afmælisársins er opnun
sýningar í Norræna húsinu kl. 16 á
morgun, en sýningin ber einfaldlega
yfirskriftina Íslensk grafík 40 ára.
Að sögn Gunnhildar Þórðardóttur
sem sæti á í sýningarnefndinni eru
félagar Íslenskrar grafíkur 76, og á
sýningunni verða ný verk eftir 40
þeirra. Öll eru verkin unnin við hug-
takið „þrykk“. Þar má nefna sjá
hefðbundna grafík á pappír en einn-
ig framsækna nútímavædda þrykk-
tækni með nýjum útfærslum og
framsetningu. Megintilgangur sýn-
ingarinnar er að sögn Gunnhildar að
gefa mynd af því sem er í deiglunni í
íslenskri grafík í dag. „Verkin mjög
fjölbreytt og ekki öll í hefðbundinni
grafík; þarna er allt frá steinþrykki
til stafræns prents. Þau spanna allt
litróf þess sem kallast grafík.“
Verkstæðið er vel notað
Mikil og öflug starfsemi fer fram á
vegum félagsins að sögn Gunn-
hildar. „Fólkið okkar vinnur mikið á
verkstæði félagsins í Hafnarhúsinu
og sýningahaldið er stór þáttur í
starfseminni, þar sem bæði íslenskir
listamenn og erlendir sýna.“
Gunnhildur segir stærsta hitamál
grafíklistamanna alltaf það að vekja
athygli á grafíkinni sem listmiðli.
„Þetta er það sem við ræddum hvað
mest á málþingi sem við stóðum fyrir
nú fyrir skömmu. Grafíklistin er fjöl-
breytt og það sem hefur helst breyst
á þessum 40 árum er það hvað graf-
íkin er sýnilegri í dag en áður. Félag-
ið hefur vaxið og dafnað. Það er svo-
lítið síðan farið var að tala um grafík
sem list, en sú hugmynd hefur stund-
um notið minni skilnings. Á síðustu
árum hefur grafíkin rifið sig upp aft-
ur sem listgrein.“
Tíu ár eru síðan hætt var að kenna
grafík sem listgrein á Íslandi. Gunn-
hildur er einn þeirra grafíklista-
manna sem lærðu erlendis. „Í Bret-
landi, þar sem ég lærði, er litið á
grafíkina sem listform og hún nýtur
virðingar. En grafíkin á sér ýmsar
hliðar. Hún er til dæmis nátengd
myndskreytingum. Það hefur verið
mjög gaman hvað margir slíkir lista-
menn hafa sýnt hjá okkur; eins og
Gisp!-hópurinn.
Grafíkin stendur sterk í dag og
hún á eftir að verða enn sterkari,
ekki síst með unga fólkinu.“
Sýningarstjóri afmælissýning-
arinnar er Aðalsteinn Ingólfsson.
Íslensk grafík fagnar 40 ára afmæli með sýningu í Norræna húsinu
Verkin spanna allt frá
steinþrykki til stafrænu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Íslensk grafík Unnið var að uppsetningu sýningarinnar í gær.