Saga - 1984, Page 136
134
PÉTUR PÉTURSSON
eðli fyrirbrigðanna, en hann mun hafa talið mikilsvert að rannsaka
þau. Hann var félagi í Breska sálarrannsóknafélaginu,1 og er
athyglisvert, að félagið sneri sér til hans, en ekki einhvers úr Til-
raunafélaginu, með beiðni um skýrslur um draumspeki og fjar-
skyggni Jóhannesar nokkurs Jónssonar, er kallaður var Drauma-
Jói. Niðurstöður sínar og ályktanir birti Ágúst síðan í bók, sem
gefin var út árið 1915.2
Rannsóknir á dularfullum fyrirbrigðum höfðu vakið athygli
sálfræðinga í sambandi við athuganir þeirra á dáleiðslu og undir-
meðvitund eða dulvitund. Sálarrannsóknamenn lögðu einnig
mikla áherslu á þessi atriði; einkum má hér nefna Myers þann, er
skrifaði bók þá, er hratt hreyfingu spíritista afstað á íslandi. Myers
var upphaflega málfræðingur, en aflaði sér mikillar þekkingar í
sálarfræði, og William James, sem telja má einn af upphafs-
mönnum nútíma sálarfræði, taldi bók hans (Human Personality and
its Survival ofBodiIy Death) tímamótaframlag til skilnings á dulvit-
und mannsins. Myers varð fyrstur til að kynna kenningar Freuds í
hinum enskumælandi hcimi.3
Ein af grundvallarspurningunum, sem Myers fjallaði urn, var,
hvort persónuleiki mannsins (sálin) gæti yfirgefið líkamann og
starfað utan hans, og taldi hann slíkt vera sannað. Næsta atriði var
spurningin um, hvort sálin gæti lifað af líkamsdauðann.
Grundvallaratriði í kenningum Myers var, að dulvitundin væri
í sambandi við æðri heim, andlegan, og íbúar og kraftar þess til-
verustigs gerðu vart við sig í gegnum dulvitund manna.4 í riti sínu
fjallaði Myers einnig um náðargáfu ofúrmenna, þ.e.a.s. inn-
blástur snillinga. Taldi hann, að slíkir menn, sem bæru aföðrum
í einhverju tilliti, hefðu sérgáfu til að virkja krafta, sem byggj111
1. Brynleifur Tobíasson, Hver cr maðurinn? ísletidingaœvir I, Rvík 1944, bls. 16-
2. Ágúst H. Bjarnason, Drauma-Jói. SaimarsagtiirafJóhatmcsiJónssynifráÁrsdu
Rvík 1915.
3. Pál Sarlén, William James och parapsykologin. í IVilliam James dá och nu, úc6'
O. Pettersson og H. Ákerberg, Lund 1980, bls. 182.
4. F.W.H. Myers, Huitian Personality and its Survival ofBodily Death I, bls.16. W-
James virðist hafa haft svipaða tilgátu um samband hins yfirmannlega (highcr
spiritual agencies) og dulvitundarinnar (subconsciousness). Pað kemur franl 1
bók hans Varieties of Religious Experience. A Study in Human Nature, Longma'15’
London og fl. stöðum 1904, bls. 242.