SunnudagsMogginn - 08.11.2009, Síða 15
8. nóvember 2009 15
Veita á friðarverðlaunin karlieða konu sem hefur „unniðmest eða best að því að
stuðla að skilningi allra þjóða, að af-
námi fastaherja eða fækkun í þeim
og einnig á að veita þau fyrir að efna
til friðarráðstefna“. Þannig var þetta
orðað í erfðaskrá Alfreds Nobels
sem lést 1896. En er rétt og skyn-
samlegt að veita umeildum stjórn-
málaleiðtogum og jafnvel þjóðhöfð-
ingjum verðlaunin?
Nú er hart deilt um verðlaun Bar-
acks Obamas Bandaríkjaforseta og
hvort hann eigi þau skilið. Tveir af
fyrirrennurum hans í Hvíta húsinu,
Theodore Roosevelt og Woodrow
Wilson, fengu verðlaunin og einnig
Jimmy Carter, að vísu löngu eftir að
hann var horfinn úr embætti.
Vangaveltur hafa verið um að
Nóbelsnefndin í Ósló hafi veitt
Obama verðlaunin til að reyna að
blíðka Bandaríkjamenn en stirt hef-
ur verið á milli þeirra og Norðmanna
um nokkurra ára skeið. Athyglisverð
er í því sambandi atburðarásin
1906.
Roosevelt fékk þá verðlaunin fyrir
að miðla málum í stríði Rússa og
Japana 1904-1905 en einnig fyrir
að verða fyrstur til að leggja mál fyrir
Alþjóðadómstólinn í Haag. Ritari
norsku Nóbelsnefndarinnar, Geir
Lundestad, segir í grein frá 2001 að
Roosevelt hafi þó aðallega verið
þekktur fyrir nokkuð herskáa
stefnu. Þáverandi ritari nefnd-
arinnar og ráðgjafi hennar hafi verið
mjög á móti því að forsetinn fengi
verðlaunin.
„Það er því freistandi að velta því
fyrir sér hvort bandaríski forsetinn
hafi að nokkru leyti hreppt verðlaun-
in vegna þess að Noregur, sem var
þá nýtt ríki á alþjóðavettvangi [var
áður undir konungi Svíþjóðar og þar
áður dönskum yfirráðum], „þurfti
stóran, vinsamlegan granna - jafn-
vel þótt hann sé langt í burtu“, eins
og það var orðað í norsku dag-
blaði,“ segir Lundestad.
Herskáir friðarhöfðingjar
Anwar al-Sadat Egyptalandsforseti
og Menachem Begin, forsætisráð-
herra Ísraels, hlutu verðlaunin fyrir
að semja um frið milli ríkjanna
1978. Fannst sumum það undarleg
ákvörðun hjá nefndinni; ekki voru
þessir tvímenningar beinlínis þekkt-
ir friðarhöfðingjar.
Nokkrum sinnum hefur gengið
svo mikið á að liðsmenn nefnd-
arinnar hafa sagt sig úr henni, það
gerðist t.d. 1973 þegar utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, Henry
Kissinger og friðarsamningamaður
Norður-Víetnama, Le Duc Tho,
deildu verðlaunum. Og einn gekk úr
nefndinni 1994 þegar Ísraelarnir
Yitzhak Rabin forsætisráðherra og
Shimon Peres utanríkisráðherra
deildu verðlaununum með Yassir
Arafat, leiðtoga Palestínumanna, í
kjölfar Óslóarsamninganna.
Henry Kissinger Le Duc Tho Yassir ArafatJimmy CarterBarack Obama
Oft hefur verið deilt um veitingu friðarverðlauna Nóbels til stjórnmálaleiðtoga
Kristján Jónsson kjon@mbl.is
Theodore Roosevelt Yitzhak RabinAnwar al-SadatWoodrow WilsonMenachem Begin
Verðlaun fyrir frið eða til að friða einhverja?
Lúxusnámskeið NordicaSpa er hannað til
að koma þér af stað á mjög árangursríkan
og einfaldan hátt. Tilgangur námskeiðsins
er að koma þér á æðra stig hvað varðar
líkamlega og andlega heilsu.
Fimm tímar í viku – Brennsla og styrkur
3 öflugir brennslutímar
2 styrktartímar í sal undir handleiðslu þjálfara
Vikulegar mælingar
Ítarleg næringarráðgjöf
Fyrirlestur – Borðaðu til að léttast og auka orkuna
Slökun og herðanudd eftir hverja æfingu
Hollustudrykkur eftir hverja æfingu
Takmarkaður fjöldi
6:30, 7:30, 10:00, 16:30 og 18:30 fimm sinnum í viku
Þjálfari er Gunnar Már Sigfússon
1. vika – Orkuhleðsla
Í fyrstu vikunni byggir þú upp orku og kemur líkamanum í jafnvægi.
2. vika – Öflug melting – Aukin brennsla
Í viku tvö er verið að efla og bæta meltinguna til að þú fáir sem mest
út úr holla matnum sem þú ert að borða.
3. vika – Hormóna jafnvægi – Hreinsun
Þriðja vikan mun koma jafnvægi á hormónaflæði líkamanns sem mun
hafa áhrif á skap þitt, lífsorku og kraft.
4. vika – Ónæmiskerfi eflt – Jafnvægi
Í viku fjögur byggjum við upp ónæmiskerfið og hjálpum því að verja
líkamann á náttúrulegan hátt.
Ný námskeið hefjast 16. nóvember
Fyrirlestur 14. nóvember
Skráning er hafin í síma 444 5090 eða
nordicaspa@nordicaspa.is www.nordicaspa.is
Hilton Reykjavík Nordica Hotel
Suðurlandsbraut 2
Sími 444 5090
nordicaspa@nordicaspa.is
www.nordicaspa.is
fyrir konur og karla
Sjöfn Sigþórsdóttir hjúkrunarfræðingur
og María Kristjánsdóttir lögmaður
Námskeiðið er frábær
leið til að auka
styrk, úthald
og hreyfigetu. Við erum betur í stakk búnar
að takast á við krefjandi verkefni
Ég breytti um LÍFSSTÍL
og þú getur það líka.
Búinn að missa yfir 20 kíló
á tveimur og hálfum mánuði
og er enn að léttast
Gissur Ísleifsson tölvunarfræðingur