Organistablaðið - 02.06.1973, Qupperneq 7
nótur. Þar með var kominn fram hinn svonefndi viðhengdipedal,
sem iþeklcist í litlum nútíma orgelum, sem ekki hafa sjálfstæða pedal-
rödd.
Pedal með sjálfstæðum röddum og sjálfstæðu nótnaborði var
Iþegar 'kominn á 14. öld eins og leifarnar frá Gotlandi (Sundre og
Norrlanda) (bera með sér.
'C) Á Miðöldum þróuðust þrjár gerðir orgela. 1. Hið tiltölulega
stóra Mixtur-Blok'korgel, sem ‘hafði sinn fasta samastað í kirkjunni.
2. Svokallað Positiv (ponera - stilla upp), orgel sem var lítið og
færanlegt, oft staðsett í kór til notkunar við liturgiska iþætti. 3. Regal-
ar, lítil Ihijóðfæri með tunguröddum.
Á Síð-Miðöldum varð sú þróun að iþessar þrjár gerðir orgcla
uxu saman, ef svo mætti komast að orði. Positifinu var komið fyrir
fremst á orgelpallinum, þannig að spilaborðið lenti milli þess og
Aðalorgelsins (Hauptwerk). Þetta orgel fékk því nafnið Bak-
positif (Riickpositiv). Regalorgelinu var komið fyrir í húsi Aðal-
orgelsins, annað hvort milli spila'borðsins og vindblöðu þess og
nofndist þá Brjóstverk (Brustwerk) eða fyrir ofan það og hét þá
Yfirverk (Oberwerk).
Nótnaborð Bakpositifsin® var staðsett undir nótnaborði Aðalorg-
elsins en nótnaborð Regalsins fyrir ofan það. Með þessu móti gat
einn og sami maður leikið á öll þessi hljóðfæri frá sama sæti.
D) Á timabilinu fék'k orgelið aftur registratur. Þannig var á ný
unnt að leika á hinar ýmsu pípuraðir hverja fyrir sig eða fleiri
saman. 1 upphafi voru eingöngu dýpstu pípuraðirnar skildar frá,
hinn hluti orgelsins var áfram Mixtur-Blokkorgel. Smám saman þró-
aðist |)etta síðan í þá átt að allar raddir urðu sjálfstæðar.
E) Á Miðöldum var farið að byggja liús utan um orgelverkið, þessi
orgelhús voru eingöngu gerð í því augnamiði að verja orgelið fyrir
ryki og öðrum óhreinindum. Það var fyrst á 20. öldinni að menn
fóru að gera sér grein fyrir þvá að orgelhúsin gátu haft verulega
þýðingu í „akustisku" tilliti.
Saga orgelhússins helzt í hendur við orgelprospektið, þ. e. a. s.
hinar sýnilegu pípur, sem mynduðu framhlið orgelhússins. Saga þess
er merkileg og verður e. t. v. drepið á hana síðar.
Þau orgelhús sem farið var að smíða á Miðöldum voru oft gerð
ORGANISTABLAÐIÐ 7