Organistablaðið - 01.10.1982, Page 14
Þarna var gott að koma. Einnig héldum við út í Ágústínerkirkju, þar sem organisti
kirkjunnar skýrði út fyrirokkur byggingu þessa stórkostlega orgels og spilaði fyrir
okkur.
Síðar um daginn fórum við (verzlanir að litast um eftir hljómplötum, nótum,
minjagripum o.fl. Meðal annars komum við í gríöarstóra verzlun á mörgum
hæðum, fórum þar upp og niður með rennistigum. Ég kunni ekkert of vel viðþað
ferðalag, þurfti að passa mig að stingast ekki á hausinn, þegarstiganumsleppti.
Um kvöldið fórum við í Staatsoper. - Óperusýning "Lucia de Lammermor".
Falleg sýning, söngur og tónlist. - Glæsileg húsakynni. - Ógleymanlegt kvöld.
Þriðjudagur 19. júní.
Ferð til Salzburgar, en þar var Mozartfæddur, og er húsþað, er hannfæddist í,
varðveitt sem minjasafn. Synir hans tveir gáfu húsið, þeir áttu enga afkomendur.
Við dvöldum þarna góða stund, létum hugann reika til daga hins ódauðlega
snillings. - Það er fallegt ( þessari borg, skógi vaxnar hæðir. Þarna fórum við í
gegnum göng, sem lágu gegnum fjall, bæði á bíl, og ígegnum önnurgöng, ætluð
gangandi fólki, voru þau vel upplýst. - Iþessariferðsáum viðtil Alpafjallanna, en
aðeins í móðu.
Á heimleiðinni er komið við ( Oberndorf, er það skammt frá Salzburg, en þar
var "Fleims um ból" samið og frumflutt. - Við komum (hús það, er Franz Gruber
(höfundur lagsins) starfaði og átti heima í. Áneðri hæðer kennslustofa, frá hans
dögum, óbreytt, og er kennt þar enn. Þar komum við fyrst inn. Skólastjórinn
þarna sýnir okkur hana fyrst, og segir okkur ýmislegt um höfunda lagsogsálms,
en þeir voru góðirvinirog samstarfsmenn. Mohr(höfundursálmsins)var prestur
þarna, en Gruber organisti. - A efri hæð er heimili Grubers, varðveitt óbreytt,
vinalegt og smekklegt heimili. Stofa, fremur rúmgóð, eldhús og borðstofa
sameiginlegt. Þarna ístofunni var "Fleims um ból"sungiðá íslenzku. - Viðsjáum
þetta lag í nýju Ijósi, hina djúpu kyrrð, erþarbýryfir. - Þetta varstund, erég hefði
ekki viljað missa af. - Enn hefur bæzt ( minningasafnið.
Á eftir fengum viö að koma (fjós á bóndabýli, þarna rétt hjá, sáum þar margar
fallegar kýr og kálfa, var þarna allt mjög snyrtilegt á að l(ta heima við bæinn.
María í Hrísdal talaöi við húsfreyjuna, spurði hana hvort hún mundi eigi koma til
Islands, en hún kvað nei við, kvaðst ekki hafa tíma til þess.
Miðvikudagur 20. júní. - Frjáls tími fram að hádegi.
Klukkan 13 var farið með bíl til Zentralfiedhof, að leiðum Beethovens,
Schuberts og Brahms. Einnig er þarna minnismerki Mozarts, en eigi er vitað
hvar hann var grafinn. Við leiði Beethovens og Schuberts voru sungin lög þeirra
á íslenzku, ,,Leið oss Ijúfi faðir', og ,,Þitt lof, ó Drottinn".
Djúp stemning er yfir þessari stund. Hugurinn flýgur aftur (timann, til 29.
marz 1827, að útför Beethovens. Mælt er að um 20 þúsund manns hafi fylgt
honum til grafar. Grillparzer mesta skáld Austurríkis f þann tíð samdi ræðu er
flutt var við gröfina. (Ég get ekki stillt mig um að láta kafla úr henni fylgja hér á
eftir).
„Þið hafið ekki misst hann. Nú fyrst hafið þið eignast hann. Enginn kemst
þessa lífs inn ( höll eilífðarinnar. Líkaminn verður ekki eilífur. Þegar hann er
14 ORGANISTABLAÐIÐ