Organistablaðið - 01.01.1989, Page 6
G: - Harmonikuna eignaðist ég 1940.
Æ: - Hafðirðu spilað eitthvað áður en þú eignaðist hana?
G: - Já, pabbi átti einfalda harmoniku og ég lærði á hana því að hann
spilaði.
Æ: - Spilaöi hann á þá harmoniku á dansleikjum?
G: - Nei, hún var svo lítil, það gekk ekki, en ég eignaðist tvöfalda harm-
oniku og fékk tilsögn hjá Hallgrími Kristjánssyni á Kringlu. Hann kom í heim-
sókn á vegum sauðfjárveikivarna og var að hlusta féð í sambandi við mæði-
veikina og meðan hann drakk kaffið þá sýndi hann mér þetta og það þurfti
ekki meira, ég hafði það af eftir það.
Harmonikudansleikir
Æ: - Spilaðir þú þá eftir nótum?
G: - Nei, bara eftir eyranu. Árið 1941 fór ég svo að spila á harmonikuna
á böllum fyrst í samkomuhúsinu í Bólstaðarhlíð. Á næstu árum spilaði ég
talsvert á böllum og mest í Bólstaöarhlíð, Engihlíð eða í Dalsmynni í Svína-
vatnshreppi. Svo spilaði ég oft á Efri-Mýrum og spilaði þar á balli lengst í 14
klukkutíma og til gamans má geta þess að kaupið fyrir allan tímann voru 10
krónur. Það var árið 1942. Eftir að ég flutti til Skagastrandar hélt ég áfram aö
spila á harmonikuna á böllum og skemmtunum, og spilaði m.a. oft út í Kálfs-
hamarsvík, en þar voru haldnar skemmtanir einu sinni til tvisvar á ári. Þetta
voru sumarskemmtanir, sem ég held að Kvenfélagiö hafi staðið fyrir, en ein-
hventíma stóð Lestrarfélagið fyrir skemmtun. Hér á Skagaströnd spilaði ég
líka oft á jólatrésskemmtunum.
Æ: - Spilarðu enn á harmonikuna?
G: - Nei, núáégöngva. Þaðerusjálfsagtyfir20ársíðanégseldiþásíð-
ustu.
Æ: - En hvenær kynnistu orgelinu fyrst?
G: - Það var veturinn 1944. Ég var í einn mánuð hjá Guðmundi Sigfús-
syni á Eiríksstöðum í Svartárdal og það var öll tilsögnin, sem ég hef fengið.
Æ: - Kenndi hann þér að lesa nótur og kannske fingraæfingar?
G: - Já, nóturnar, en það varð nú lítið um fingraæfingarnar.
Æ: - Nú veit ég að þú hefur verið í kunningsskap viðýmsa kunnaorgan-
ista eins og Sigurð ísólfsson, fyrrum Fríkirkjuorganista, þú hefur ekkert feng-
ið tilsögn hjá honum?
G: - Nei.þegarviðkynntumstsagðisthannalvegverahætturaðkenna.
Organisti á Hofi og Höskuldsstöðum
Æ: - Oghvenærspilarþúfyrstíkirkju?
G: - Það er fyrst í Hofskirkju 1965, þá tók ég þar við af Páli Jónssyni
skólastjóra, en var búinn að spila þar eitthvað tvisvar sinnum áður í forföllum.
6 ORGANISTABLAÐIÐ