Organistablaðið - 01.12.1994, Síða 25
Hörður Áskelsson bar upp eftirtarandi tillö^u:
Aðalfundur F.Í.O. felur stjórninni að undirbúa stofnun styrktarsjóðs, sem kenndur
verði við Pál ísólfsson. Stofnskrá sjóðsins verði lögð fyrir félagsfund áður en til
samþykktar komi.
Tillagan var samþykkt.
Bjarni, organisti í Reykholti, æskti álits fundarmanna á því hvort þeir teldu áðurnefnt
orgel úr Dómkirkjunni hafa minjagildi, hvort eigi að gera það upp í sama formi og
áður og hvort menn hefðu yfirleitt áhuga á þessu máli. Ýmsir tóku til máls.
Hörður lagði til að þessu máli yrði vísað til félagsfundar vegna tímaskorts og féllst
Bjarni á það.
Formaður benti á að það væri einstakt í íslenskri orgelsögu að í Reykholti hefði verið
byrjað á því að kaupa orgelið og síðan hefði kirkjan verið byggð utan um það.
7. STJÓRNARKJÖR
Formaður las úr lagagrein um stjórn og lengd stjórnarsetu. Fyrir lá að kjósa ritara,
gjaldkera og meðstjórnanda. Björn Steinar Sólbergsson. Kristín Jóhannesdóttir og
Hörður Áskelsson sem sátu í stjórn, gáfu kost á sér til endurkjörs og voru þau
endurkjörin nreð lófaklappi. Marteinn H. Friðriksson var endurkjörinn varamaður.
Endurskoðendur voru endurkjörnir Smári Olason og Kristján Sigtryggsson. Smári
benti á, að skv. landslögum mega þeir ekki heita endurskoðendur, heldur
félagskjörnir skoðendur reikninga.
8. ÖNNUR MÁL
Glúmur lagði lil að stjórnendum barnakóra við kirkjur verði boðið að ganga í félag-
ið, Björn Steinar benti á að skv. lögum geti þeir orðið aukafélagar og hafa þá mál-
frelsi og tillögurétt. Glúmur sagði að launamismunur væri milli þeirra sem væru
starfandi organistar og væru einnig með barnakór og hinna sem væru sérráðnir sem
barnakórstjórar.
Eftirfarandi tillaga um málið var samþykkt með einu mótatkvæði:
Aðalfundur F.Í.O. veitir formanni umboð til að semja við barnakórstjóra sem starfa
við kirkjur um aðild þeirra að félainu. Formaður hefur samráð við stjórn um fyrir-
komulag sérmála svo sem launamál og námskeiðahald.
Önnur tillaga frá Glúmi var einnig samþykkt. Var hún svohljóðandi:
Aðall'undur F.Í.O. felur stjórninni að fjalla um þörf á aukinni kirkjutónlistarmenntun
fyrir guðfræðinema.
25 ORGANISTABLAÐIÐ