Organistablaðið - 01.12.1994, Page 31

Organistablaðið - 01.12.1994, Page 31
Tillaga 3. Kristín Jóhannesdóttir gjaldkeri lagði til að félagsgjöld yrðu óbreytt. Það var samþykkt. Tillaga 4 var einnig saniþykkt og hljóðar svo: „Aðalfundur F.Í.O. haldinn í safnaðarheimili Dómkirkjunnar 14.10. 1994 beinir því til stjórnar að hún beiti sér fyrir sumartónleikun á Hólum í Hjaltadal. Rætt var um hvort menn tækju 40% meira fyrir að spila við útfarir á laugardögum en aðra daga eins og gjaldskrá gerir ráð fyrir. Oddný benti á að þar sent ekki allir organ- istar treystu sér til þess að fara eftir þessu væri jafnvel betra að reikna þetta út og hafa sem sérstakan lið í gjaldskrá. Björn Steinar tók undir þetta og beindi því enn l'remur til stjórnar hvort ekki væri hægt að samræma taxta einsöngvara, einleikara og organ- ista. Marteinn dró í efa að jarðarfarartaxti á laugardegi stæðist og gagnrýndi gjaldtöku einsöngvara. Kristján Sigtryggsson spurði hvort einhver vissi hversu mikið popptónlistarmenn tækju fyrir tónlistarflutning við kirkjulegar athafnir. Ýmsir höfðu sitthvað um málið að segja og heyrðust tölur allt frá 25-50.000,- kr. Marteinn lagði á það áherslu að organistar væru teknir fram yfir popptónlistarmenn við athafnir í kirkjunni. Vernda þyrfti starf þeirra. Umræður héldu áfram um 40% álagninguna á laugardegi. Glúmur sagðist undrandi á þessari viðkvæmni og spurði Olaf Sigurjónsson hvort hann myndi leggja frá sér hamarinn til þess að spila við útför á laugardegi án helgidagataxta. Endaði þessi umræða með gríni, glensi og hlátrasköllum. Að lokum benti Jóhann á það að dýralæknar tækju 60% meira urn helgar og skipli þá engu hvort gripurinn sem þeir meðhöndluðu héldi lífi eða ekki. Helgi Bragason kynnti okkur þá vinnu sem unnin var vegna kjarasamninga organista í Kjalarnesprófastdæmi og lagði fram drög að skema fyrir organista og sóknarneliidir við gerð starfssamnings. Björn Steinar talaði um aðsóknina á aðalfundinn og hvort ekki væri hægt að vinna að því enn betur að söngmálafulltrúar hvettu organista til að mæta á fundinn. Hann sagði frá því að í Noregi stæði aðalfundurinn í 3 daga og í tengslun við hann væru bæði fyrirlestrar og tónleikar. Hann beindi því til stjórnar hvort ekki væri athugandi að gera eitthvað svipað hér, það myndi e.t.v. draga að. Helgi Bragason gerði að tillögu sinni að byrjað yrði með 1 1/2 degi. Björn Steinar benti einnig á að ekkert stæði í lögum um það að aðalfundurinn skyldi alltaf haldinn í Reykjavík. Kristín Jóhannesdóltir vildi að aðalfundur væri haldinn í lok ágúst, áður en vetrarstarfið hæfist. 31 ORGANISTABLAÐIÐ

x

Organistablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.