Skólablaðið - 01.12.1960, Side 3
VARTASTA skammdegið stendur yfir.
Sólin nær ekki að senda mönnunum geisla sína og
veita birtu og yl. Yfir grufir svartnættið.
Eigi er þó myrkur í hugum manna, því að í nánd
er ljóssins hátíð. Jörðin er vafin hvítum voðum snævar, á
himni sindra stjörnur, og norðurljós leika sem fölvi slegnar
slæður um óravítt himinhvolfið. - Allt er vafið birtu.
í sveitinni er keppzt við að prýða Ijósum bæi og utihús.
í kaupstöðum fá menn glýju í augun, er þeir líta hina marg-
litu ljósadýrð. - Kaupmaðurinn skrýðir verzlun sxna hinum margvíslegasta varn-
ingi og fjölbreyttasta skrauti. Hann vinnur af öllu kappi, þar sem jólin færa feit-
asta busílagið. Bústinn ber hann ser á brjóst og blessar fæðingu Jesúbarnsins.
- Skólum er lokað um stund, og fær þá margur kærkomna hvíld, þó að aðrir þurfi
fremur að hugsa um auraráð sín. -
Börnin eira hvergi og bíða með óþreyju aðfangadagskvölds, þegar gjafa-
bögglar þeirra verða opnaðir. Eldra og lífsreyndara fólk styttir börnunum stund-
ir ir.ieð sögum. Ber þá margt á góma. Flest börn hafa mest gaman af fra-