Morgunblaðið - 21.12.2009, Side 1
M Á N U D A G U R 2 1. D E S E M B E R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
338. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
Sjáums
t! ;)
Kveðja, Gluggagægir
*Nánar um skilmála á flytjandi.is
PIPAA
R
\
TBWW
A
•
SÍA
•
918
81
Faxafeni 5 • S. 588 8477
Opið í dag kl. 10-22
Orginal heilsukoddi
Kr. 15.120,-
«DANSCENTRUM OPNAR Í REYKJANESBÆ
MIKILL DANSÁHUGI
MEÐAL DRENGJA
«INGVELDUR GAGNRÝNIR BARNABÆKUR
Arngrímur apaskott,
Lubbi og flugvélakossar
6
Íþróttir
Þórir Hergeirsson, landsliðsþjálfari
Noregs í handknattleik, kemur
heim með bronsverðlaun frá heims-
meistaramótinu en fær enga skötu
á Þorláksmessu að þessu sinni.
Hlaut brons á HM
en fær enga skötu
Ítalinn Roberto Mancini, maður
sem er ekki vanur öðru en að vinna,
er mættur til leiks hjá ríkasta
knattspyrnufélagi heims og hefur
tekið við stjórninni.
Maðurinn sem
kann ekki að tapa
Eftir Ívar Pál Jónsson
ivarpall@mbl.is
REGLUR Seðlabanka Íslands um
veðlánaviðskipti við fjármálafyrir-
tæki tóku mið af reglum Evrópska
seðlabankans (ECB) en voru samt
sem áður þrengri en reglur evrópska
bankans þar sem að þær heimiluðu
ekki veðsetningu krafna sem ekki
voru markaðsskráðar. Við hrun
bankakerfisins voru öll veð í sam-
ræmi við reglur bankans.
Þetta kemur fram í skriflegu svari
Más Guðmundssonar seðlabanka-
stjóra við spurningum Morgunblaðs-
ins um slík viðskipti.
Í svarinu kemur einnig fram að
Seðlabankinn hafi átt aðild að sam-
ráðshópi sem í voru ráðuneytis-
stjórar forsætis-, fjármála- og við-
skiptaráðuneyta. Hópurinn hittist
vikulega í tæpt ár fyrir hrun og á
þeim fundum upplýstu fulltrúar
Seðlabankans aðra fundarmenn um
stöðu og þróun veðlána bankans.
Már segir einnig að lán Seðla-
bankans hafi verið veitt á þeirri for-
sendu að bankarnir uppfylltu reglur
um eigið fé. Aðspurður hvort að
neyðarlögin hafi verið þess valdandi
að tap Seðlabankans vegna lána með
veð í skuldabréfum bankanna hafi
verið meira en ella segir Már að það
segi sig sjálft að forgangur innlána
dragi úr væntum endurheimtum
vegna annarra krafna.
Þrengri reglur um
veðlán en í Evrópu
Öll veð Seðlabankans voru í samræmi við reglur bankans
Seðlabankinn kynnti | 16
FIMLEIKAFÉLAG Hafnarfjarðar, FH, bauð fólki að koma
saman í Kaplakrika í gærkvöldi og senda Hrafnkeli Kristjáns-
syni, íþróttafréttamanni á RÚV, styrk og hlýjar hugsanir en
hann liggur nú þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítalans
eftir alvarlegt bílslys á Hafnarfjarðarvegi á föstudag. Hrafn-
kell er fyrrverandi leikmaður knattspyrnuliðs FH.
Ólafur Kristjánsson, bróðir Hrafnkels, ávarpaði viðstadda og
fólk kveikti á friðarkertum til að sýna samstöðu sína og von í
verki. skulias@mbl.is
FH-INGAR SENDU FÉLAGA SÍNUM STYRK OG HLÝJAR HUGSANIR
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Íbúasamtök Grafarholts hafa lýst
yfir áhyggjum sínum af mikilli
drykkju og reykingum unglinga í
hverfinu. Í bréfi, sem samtökin
sendu borgaryfirvöldum, greina
þau jafnframt frá óánægju sinni
með lítið framboð skipulagðrar
frístundastarfsemi í Grafarholti.
Tafir hafi orðið á uppbyggingu
íþróttaaðstöðu Fram í Úlfarsárdal
en að auki er gagnrýnt að mögu-
leikar Ingunnarskóla séu ekki nýtt-
ir. Í nýlegri könnun Rannsóknar og
greiningar kom fram að 40% nem-
enda í 9. og 10. bekkjum í Grafar-
holti drekki og 20% reyki. »8
Áhyggjufull vegna drykkju
og reykinga unglinganna
Fyrirhugaðar
breytingar á
skattkerfinu hlífa
alls ekki þeim
sem tekjulægri
eru eins og ríkis-
stjórnin heldur
fram, segir Pétur
H. Blöndal þing-
maður. Afnám
vísitölubindingar
persónuafsláttarins, eins og meiri-
hlutinn leggur til, muni hafa í för
með sér að hinir tekjulægstu greiði
3.600 krónum meira í skatt frá ára-
mótum en þeir hefðu gert miðað við
núverandi lög. ASÍ gagnrýnir einnig
afnám vísitölubindingar harðlega, og
segir Gylfi Arnbjörnsson ríkis-
stjórnina hafa leynt þjóðinni hug-
myndunum. | 4
Allir greiða
hærri skatt
Pétur H. Blöndal