Morgunblaðið - 21.12.2009, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 21.12.2009, Blaðsíða 10
10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 2009 Jólagjöf fyrir þá sem „eiga allt“ Gefðu hlýju og samveru um jólin! Allir kunna að meta það að hafa tækifæri á að komast í gott frí í sólina eða annað. Gjafabréf Heimsferða er jólagjöf, sem er í senn hagnýt, skemmtileg og sveigjanleg og felur í sér hlýju og samveru með sínum nánustu. Lágmarksupphæðin er 3.000 kr. en annars ræður þú upphæðinni. Nánar á www.heimsferdir.is og í síma 595 1000. E N N E M M / S IA • N M 3 0 87 7 Indriði er á skattaskónum þvískammt er nú í jól. Og þetta geng- ur bara bærilega. Heimsmet féll í gær þegar virðisaukaskattur náði hæðum sem engin þjóð önnur hefur séð. Hingað til höfum við bara unnið sigra á smáþjóðaleikum, fengið brons og silfur á ólympíuleikum, en nú loksins gull.     Fjármagns-tekjuskattur hefur verið hækk- aður um 80 pró- sent og það trygg- ir að með aðstoð verðbólgu verður ávöxtun sparifjár- eigenda neikvæð. Ekki má gera lítið úr þessum áfanga.     Hagur hinna lægst launuðu vartryggður með því að lækka per- sónuafsláttinn með lögum. Eins og Steingrímur hefur bent á er það út- úrsnúningur að segja að lækkunin skili sér ekki sem hækkun, vegna þess að hann hefði getað lækkað persónu- afsláttinn miklu meira. Þeir sem ekki ná þessu hefðu allir með tölu verið óhæfir til að sitja í samninganefnd um Icesave, sem með glæsilegum samn- ingi tók á Íslendinga mörg hundruð milljarða skuldbindingu án lagastoð- ar og dómsúrlausnar. Það sér hver maður að samninganefndin hefði leik- andi getað tekið á sig enn meiri skuld- bindingu, bara ef hún hefði nennt því. Því er niðurstaðan augljóslega hreinn ávinningur fyrir íslenska skattborg- ara.     Ef Steingrímur og samninganefnd-armenn hans hefðu verið fyrir okkur í landhelgisstríðinu værum við aftur komnir með þriggja mílna land- helgi í stað tvö hundruð, sem væri ávinningur því Steingrímur hefði get- að samið okkur niður í eina mílu, sem væri aðeins þriðjungurinn af þeim ár- angri sem náðist     Ósköp yrðu Staksteinar fegnir efmenn hættu að snúa út úr fyrir Steingrími, hann er best fær um það sjálfur. Steingrímur J. Endalausir útúrsnúningar Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands Veður víða um heim kl. 9.00 í gærmorgun að ísl. tíma °C Veður Reykjavík -5 léttskýjað Lúxemborg -13 skýjað Algarve 12 heiðskírt Bolungarvík -3 heiðskírt Brussel -12 heiðskírt Madríd -1 heiðskírt Akureyri -3 skýjað Dublin -1 léttskýjað Barcelona 1 léttskýjað Egilsstaðir -5 snjóél Glasgow -5 léttskýjað Mallorca 6 skýjað Kirkjubæjarkl. -5 léttskýjað London -2 léttskýjað Róm 7 léttskýjað Nuuk -1 upplýsingar bárust ekkiParís -4 skýjað Aþena 8 léttskýjað Þórshöfn 1 skúrir Amsterdam -6 léttskýjað Winnipeg -10 alskýjað Ósló -18 snjókoma Hamborg -9 snjókoma Montreal -18 heiðskírt Kaupmannahöfn -4 heiðskírt Berlín -14 skýjað New York -3 léttskýjað Stokkhólmur -9 léttskýjað Vín -9 skýjað Chicago 1 snjókoma Helsinki -18 heiðskírt Moskva -20 heiðskírt Orlando 16 alskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR 20. desember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 2.18 0,8 8.34 3,8 14.53 0,8 20.53 3,5 11:22 15:30 ÍSAFJÖRÐUR 4.08 0,5 10.19 2,0 16.55 0,4 22.36 1,7 12:09 14:53 SIGLUFJÖRÐUR 0.48 1,0 6.30 0,3 12.49 1,2 19.14 0,2 11:54 14:34 DJÚPIVOGUR 5.43 1,9 12.02 0,5 17.48 1,7 23.56 0,4 11:01 14:50 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið Á þriðjudag Norðan 8-15 m/s og él eða snjókoma norðan- og aust- anlands, en léttskýjað annars staðar. Frost 2 til 10 stig. Á miðvikudag (Þorláks- messa) Norðlæg átt, víða 5-13 m/s með éljum, en bjart á sunn- anverðu landinu. Áfram kalt í veðri. Á fimmtudag (aðfangadagur jóla) Norðan- og norðaustanátt, víða fremur hæg, með éljum á Norð- urlandi, en heldur hvassara og snjókoma á Vestfjörðum. Yf- irleitt úrkomulaust og bjart í öðrum landshlutum. Frost um allt land. Á föstudag (jóladagur) og laugardag (annar í jólum) Útlit fyrir austlæga átt með dá- lítilli snjókomu sunnan- og austanlands og jafnvel slyddu syðst. Annars staðar úrkomulít- ið. Hlýnar heldur í veðri. VEÐRIÐ NÆSTU DAGA SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan 8-15 m/s, og sums staðar hvassar vindhviður suð- austanlands. Léttskýjað að mestu á Suður- og Vesturlandi, en annars él, einkum á norð- austanverðu landinu. Frost 1 til 8 stig. EINN maður slasaðist er tveir bílar rákust saman á Moldhaugahálsi, rétt fyrir utan Akureyri, um kvöld- matarleytið á laugardag. Slæmt skyggni og veður var á slysstað. Meiðsl mannsins reyndust ekki lífshættuleg en hann gat sjálfur hringt í Neyðarlínuna og beðið um hjálp. Loka þurfi veginum um tíma svo að lögreglan gæti athafnað sig á vettvangi. Slysið varð þannig að pallbíll og fólksbíll komu hvor á móti öðrum og rákust saman. Bílarnir eru báðir talsvert mikið skemmdir. Skullu saman við Akureyri STÓRMEISTARINN Héðinn Steingrímsson sigraði á Friðriks- móti Landsbankans sem fram fór í aðalútibúi bankans í Austurstræti í gær. Um árlegt mót er að ræða til heiðurs Friðriki Ólafssyni stórmeist- ara. Héðinn leiddi mótið allan tímann, tapaði ekki skák, og hlaut 9,5 vinn- inga í ellefu skákum. Mikil spenna var fyrir lokaumferðina en þá tefldi Héðinn við Braga Þorfinnsson úr- slitaskák þar sem Bragi þurfti að vinna skákina til að sigra á mótinu en Héðni dugði jafntefli. Héðinn hafði sigur eftir mikla baráttu. Annar varð Jóhann Hjartarson með 8,5 vinning. Í 3.-5. sæti, með 8 vinning, urðu Bragi, Helgi Ólafsson og Davíð Ólafsson. Friðrik Ólafsson var mest allt mótið meðal efstu manna og endaði með 6,5 vinning. Héðinn sigraði á Friðriksmótinu í skák Morgunblaðið/Árni Sæberg Skák Friðrik Ólafsson teflir við Omar Salama. Í forgrunni eru þeir Sigur- björn Björnsson og Arnar Gunnarsson, er kepptu síðar í úrslitum atskákmóts.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.