Morgunblaðið - 21.12.2009, Page 18

Morgunblaðið - 21.12.2009, Page 18
DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 2009 J ó l a s ö f n u n Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur er hafin Oft var þörf en nú er nauðsyn Þeir sem vilja leggja nefndinni lið vinsamlega hafið samband á skrifstofutíma í síma 551 4349 eða á netfangið maedur@simnet.is. Einnig er hægt að leggja framlög inn á reikning nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119. Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Hátúni 12b. – meira fyrir áskrifendur Skólar og námskeið Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift Í blaðinu verður fjallað um menntun og þá fjölbreyttu flóru sem í boði er fyrir þá sem vilja auðga líf sitt og möguleika með því að afla sér nýrrar þekkingar og stefna því á nám og námskeið. Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað um menntun, skóla og námskeið þriðjudaginn 5. janúar 2010. Meðal efnis verður: Háskólanám og endurmenntun. Fjarmenntun á háskólastigi. Verklegt nám/iðnnám á framhalds- og háskólastigi. Endurmenntun. Símenntun. Listanám. Sérhæft nám. Námsráðgjöf og nám erlendis. Kennsluefni. Tómstundanámskeið og almenn námskeið. Lánamöguleikar til náms. Ásamt fullt af öðru spennandi efni. Pöntunartími auglýsinga er fyrir klukkan 16.00 mánudaginn 21. desember Nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105, kata@mbl.is Eftir Svanhildi Eiríksdóttur Reykjanesbær | „Það sem stendur upp úr hér er áhugi stráka á dansi. 20 strákar hafa nú þegar skráð sig og það er hæsta hlutfall stráka í íslenskum dansskóla. Ég er búin að ráða sérstakan kennara fyrir þá, enda vil ég gera allt til að halda þeim inni,“ sagði Ásta Bærings danskennari og eigandi dansskólans Dans Centrum sem opnar í Reykja- nesbæ í janúar. Ásta hefur verið dansandi allt sitt líf, byrjaði 4 ára í Jazzballettskóla Báru, útskrifaðist með dansaradiplómu árið 2001 og hefur kennt við skólann undanfarin ár. Ásta sagðist eiginlega alin upp þar. Ferilinn er því orðin langur og dansreynslan mikil. Á árunum 2001 til 2004 kom Ásta reglulega til Suðurnesja til þess að kenna við Jazzd- ansskóla Emelíu sem starfræktur var í Reykjanesbæ í mörg ár. Ásta er nú komin aftur en nú til þess að stofna eigin dansskóla. Hún sagðist vera að svara köllun. „Þannig er að það er svo oft búið að skora á mig að koma hingað og stofna skóla, að ég ákvað að slá til. Fólk þekkir mig bæði af kennslu minni hjá Emelíu Dröfn en ekki síður í kennslu hjá fimleikastelpunum í Keflavík,“ sagði Ásta. Auk dans- reynslunnar er Ásta viðskiptafræðingur að mennt og hef- ur gefið vellaunað starf hjá hugbúnaðarfyrirtæki upp á bátinn til að stofna skólann. „Það er mikil vinna að reka dansskóla. Ég þarf að finna viðeigandi tónlist fyrir alla aldurshópa, semja dansa og þjálfa sjálf. Þessu sinnir mað- ur ekki í aukavinnu.“ Mikil eftirspurn frá hjónum og pörum Ásta leggur áherslu á að um heilsárs dansskóla sé að ræða þar sem nemendur hafa kost á því að þroskast sem dansarar í annarskiptu námi. „Ég skipti starfsemi skólans annars vegar upp í dansnám sem spannar heila önn og er hugsað fyrir börn frá 4 ára aldri og til 16 ára aldurs og hins vegar 12 vikna námskeið sem hugsuð eru fyrir framhalds- skólanema, 16-20 ára og 20+, þar sem námskeið henta betur fólki sem er í námi eða starfi.“ Ásta tók fram að allir nemendur muni taka þátt í reglulegum nemendasýn- ingum og þeim muni gefast kostur á að taka þátt í smiðj- um. Yfir sumarið verða gestakennarar og draumurinn er, sagði Ásta, að koma á samstarfi við aðra dansskóla, líkt og hún þekkir sjálf frá sinni dansnámstíð, þar sem nemendur ýmissa skóla komu saman og kynntust nýjum kennurum, ásamt því að læra hver af öðrum. „Þá mun ég að sjálfsögðu svara eftirspurn og jafnvel þróa dansnám fyrir framhalds- skólanema eftir því sem skólinn eflist. Þá hef ég fengið margar fyrirspurnir frá pörum og hjónum varðandi para- námskeið, svo sem í salsa. Draumurinn er að bjóða upp á smiðjur fyrir þessa hópa.“ Dauði Michael Jackson áhrifavaldur Ásta sagði viðbrögð íbúa Reykjanesbæjar við nýja dansskólanum vera frábær, nú þegar væru 100 nemendur búnir að skrá sig og markmið Ástu er að þeir verði fjöl- hæfir dansarar með marga dansstíla á hreinu, svo sem jazz, street og modern. Af þessum hópi eru 20 drengir og Ásta er mjög hrifin af þessum dansáhuga drengja í Reykjanesbæ. Hún er með tvær tilgátur varðandi skýr- ingu á þessum mikla áhuga, sem hún sagði einstakan á Ís- landi utan samkvæmisdansa. „Mér dettur fyrst í hug sjón- varpsþátturinn „So you think you can dance“ á Stöð 2 og svo andlát Michaels Jackson. Ég hef fengið þó nokkuð margar fyrirspurnir þess efnis hvort ég muni ekki kenna dansana hans.“ Ásta sagðist meðal annars ætla að svara þessu mikla áhuga með því að hafa sérstakan strákahóp með karlkyns kennara, en sagði stráka og stelpur yfirleitt hafða saman í dansnámi, enda þeir í miklum minnihluta. Hún nefndi sem dæmi að af 700 nemendum Jazzball- ettskóla Báru væru 2 strákar. „Ég er rosalega ánægð með þetta og mér finnst eins og þetta geti orðið magnað.“ Ásta bætti við að reynsla hennar af sýningum hafi sýnt að dans- reynsla stráka sé oftast of einhæf og yfirleitt bundna við samkvæmisdansa. Þessu vilji hún breyta. Sjálf hefur Ásta tekið þátt í fjölda sýninga, m.a. í Grease, Hafinu Bláa og Fame á undanförnum árum. Hún hefur starfaði sem dansari í leikhúsi í 13 ár og verið dans- höfundur í ótal sýningum, myndböndum og auglýsingum. Hún er félagi í FILD, Félagi íslenskra listdansara. Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Dansað allt sitt líf Ásta Bærings ætlar að miðla kunn- áttu sinni og ástríðu á dansi til ungs fólks í Dans- Centrum í Reykjanesbæ á komandi ári. „Rosalega ánægð með dansáhuga drengja“  Ásta Bærings hefur verið dansandi frá fjögurra ára aldri  Opnar DansCentrum í Reykjanesbæ í næsta mánuði Hvaða kennarar munu starfa við Dans Centrum? Ásta Bærings verður aðalkennarinn en hún mun njóta aðstoðar Guðríðar Hafsteinsdóttur, Óskar Björnsdóttur og Leifs Eiríkssonar. Munu nemendur geta náð sér í gráður? Eftir margra ára samfellt nám munu nemendur geta tekið próf. Ef eftirspurn verður eftir dansnámi fyrir 16 ára og eldri mun skólinn svara þeim þörfum. Hvar er skólinn til húsa? Fyrst um sinn verður skólinn starfræktur í Hafnargötu 31, 3. hæð, en draumurinn er að skólinn fái eigið hús- næði eftir því sem hann dafnar og vex. S&S HÚN er loks komin fram pill- an sem fram- lengir æsku- blómann, ef marka má loforð fyrirtækja- risanna Nestlé og L’Oréal sem þróuðu hana í sameiningu. En pillan hægir á öldrun húðar- innar og hrukkumyndun þar með. Galdurinn liggur í efnasambandi sem finna má í tómötum og talið er vernda eldri frumur gegn skemmd- um og stuðla að aukinni nýmyndun húðfrumna. Rannsókn á samanburðarhópum bendir til að pillan auki mýkt húð- arinnar um 8,7%. Hún verður þó dýr – mánaðarskammturinn mun kosta sem svarar 15.000 krónum. Töfrapillan komin fram Æskublómi www.danscentrum.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.