Morgunblaðið - 21.12.2009, Side 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 2009
Hebron-Vinnufatnaður
Smiðjuvegi 1, Grá gata
www.hebron.is
s. 567-6000
WORKWEAR
FÆST Í HEBRON
KLÆDDU ÞIG VEL!
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynurorri@mbl.is
ÍBÚASAMTÖK Grafarholts hafa
sent borgaryfirvöldum bréf, þar sem
þau lýsa áhyggjum sínum af mikilli
drykkju og hve margir unglingar í
hverfinu reyki. Jafnframt greina þau
frá óánægju sinni með það að lítið
framboð sé af skipulagðri frístunda-
starfsemi í Grafarholti.
Guðmundur Hrafn Arngrímsson,
formaður íbúasamtakanna, gagn-
rýnir sérstaklega að Ingunnarskóli,
„sem átti að heita fjölnotahús, er í
raun venjulegur grunnskóli auk
íþróttahúss.“ Möguleikar hússins
séu alls ekki nýttir. Þá hefur hann
áhyggjur af töfum á uppbyggingu
íþróttaaðstöðu Fram í Úlfarsárdal.
Í bréfi íbúasamtakanna vísa þau í
könnun Rannsóknar og greiningar,
þar sem fram kemur að 40% 9. og 10.
bekkingja í Grafarholti drekka og
20% reykja, sem er hærra hlutfall en
í öðrum hlutum borgarinnar. Jafn-
framt vísa þau í rannsóknir sem
benda til að samband sé á milli
áhættuhegðunar unglinga og þess að
lítið sé um skipulagða íþrótta- frí-
stundastarfsemi í hverfum.
Kjartan Magnússon, formaður
Íþrótta- og tómstundaráðs, segir að í
nýsamþykktri fjárhagsáætlun borg-
arinnar komi fram ýmsar úrbætur í
málefnum Grafarholts. Sem dæmi
verði settar 570 milljónir í fram-
kvæmdir við Sæmundarskóla, sem
þýðir t.d. að hægt verður að taka
íþróttahús við skólann í notkun á
næsta ári. Auk þess verður íþrótta-
svæði í Leirdal stækkað á næsta ári.
Mikil drykkja í Grafarholti
Íbúasamtök Grafarholts hafa áhyggjur af því að lítið sé um að vera fyrir ung-
linga í hverfinu Hærra hlutfall unglinga reykir og drekkur en í öðrum hverfum
Í HNOTSKURN
» Íbúasamtökin vísa í tölursem sýna að fleiri ungling-
ar reykja og drekka í Grafar-
holti en í öðrum hverfum
borgarinnar.
» Einnig kvarta þau yfir þvíað lítið sé um að vera fyrir
unglingana, sem geti orsakað
háa tíðni áhættuhegðunar.
Eftir Örn Arnarson
ornarnar@mbl.is
VESTMANNAEYJABÆR hefur
greitt niður lán fyrir ríflega tvo millj-
arða króna á síðustu þremur árum.
Að sögn Elliða Vignissonar bæjar-
stjóra er bærinn í sterkri stöðu til
þess að takast á við samdráttarskeið í
þjóðfélaginu og mun ráðast í viða-
miklar framkvæmdir á komandi ári.
Bæjarstjórn Vestmannaeyja sam-
þykkti á dögunum fjárhagsáætlun
fyrir næsta ár. Hún miðast við að A-
hluti sveitarsjóðsins muni skila
rekstrarafgangi upp á 132 milljónir
og að heildarfjárfestingar bæjar-
félagsins verði um 890 milljónir. Ekki
þarf að taka lán fyrir þessum fram-
kvæmdum heldur verða þær að fullu
fjármagnaðar með veltufé frá rekstri
og handbæru fé sveitarfélagsins.
Stærstu einstöku framkvæmdirnar
verða endurgerð upptökumannvirkis
hafnarinnar og bygging fjölnota
íþróttahúss. Þrátt fyrir þessar fram-
kvæmdir er áætlað að handbært fé
bæjarsjóðs verði ríflega 3,5 milljarðar
við lok næsta ár.
Elliði Vignisson segir að bæjar-
félagið hafi farið sterkt inn í krepp-
una. Það hafi haldið að sér höndum í
framkvæmdum á góðæristímanum og
greitt niður skuldir, þá sérstaklega
erlendar skuldir, í stað þess að stofna
til nýrra. Verðmætar eignir á borð við
fasteignir og hlut bæjarins í Hitaveitu
Suðurnesja voru seldar og það sem
ekki var notað í að greiða niður skuld-
ir var ávaxtað. Sparnaður bæjarins
var að mestu bundinn við innlán þeg-
ar bankakerfið hrundi í fyrra.
Að sögn Elliða gerir þetta að verk-
um að bærinn hefur nú svigrúm og
bolmagn til þess að ráðast í nauðsyn-
legar framkvæmdir og að næsta ár
verða ár uppbyggingar í Vestmanna-
eyjum.
Sterk staða þrátt
fyrir kreppuna
Vestmannaeyjabær hyggur á fram-
kvæmdir 2010 án skuldsetningar
Morgunblaðið/ÞÖK
Eyjar Næsta ár verður fram-
kvæmdaár í Vestmannaeyjum.
ILLA viðraði víða um land um helgina og sinntu björg-
unarsveitir nokkrum minniháttar útköllum. Meðal ann-
ars var björgunarsveitin Geisli á Fáskrúðsfirði kölluð
út þegar þak fauk í heilu lagi af garðhúsi í bænum á
laugardag. Á Seyðisfirði sinnti björgunarsveitin Ísólfur
útkalli vegna foks og þakskyggnis sem losnaði.
Í gærmorgun þurfti lögregla í Vestmannaeyjum að
sinna nokkrum útköllum vegna veðurs. Fiskkar fauk á
bíl í morgunsárið og braut í honum rúðu. Þá fauk
vinnupallur en það olli ekki skemmdum. Einnig fauk
hraðbátur af kerru og skemmdist.
Voru Eyjamenn varaðir við að lausir munir gætu
fokið, það gengi á með sterkum hviðum. Veðrið gekk
niður þegar leið á daginn og hæglætisveður var undir
kvöld.
Samkvæmt upplýsingum frá spádeild Veðurstofu Ís-
lands er búist við að veðrið gangi lítið eitt niður á Norð-
austur- og Austurlandi en þó verði áfram nokkur úr-
koma og hvasst, allt að 15 metrum á sekúndu. Reiknað
er með áframhaldandi hvassviðri fyrir sunnan en lítilli
eða jafnvel engri úrkomu. Þá er spáð rólegu veðri á
Vestfjörðum. skulias@mbl.is
Fok, rok og smáútköll
Áfram leiðindaveður víða um land en skánar þó
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
UNG kona vopn-
uð sprautunál
rændi söluturn
við Bústaðaveg
skömmu eftir há-
degi í gær. Hót-
aði hún af-
greiðslustúlku
um tvítugt með
nálinni og hafði
upp úr krafsinu um 20 þúsund
krónur í peningum.
Konan hafði ekki náðst í gær-
kvöldi en málið er í rannsókn hjá
lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Við leit skammt frá söluturninum
fannst sprautunálin sem konan not-
aði í ráninu.
Hótaði með
sprautunál