Morgunblaðið - 21.12.2009, Qupperneq 17
Fréttir 17ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 2009
GJAFAKORT | landsbankinn.is | 410 4000
Ein gjöf sem
hentar öllum
Gjafakort Landsbankans er greiðslukort sem býður uppá að
gefandinn ákveði upphæðina og viðtakandinn velji gjöfina.
Þú færð gjafakortið í næsta útibúi Landsbankans.
N
B
Ih
f.
(L
an
d
sb
an
ki
n
n)
,k
t.
4
71
0
0
8
-0
2
8
0
.
E
N
N
E
M
M
/S
ÍA
/N
M
39
89
1
JÓLALEGT er um að litast í Wash-
ington og er garðurinn við Hvíta
húsið sem kenndur er við rósir nú
þakinn snjó eftir óvenjulegt fann-
fergi á austurströnd Bandaríkjanna.
Fregnir hafa borist af hátt í 60 sm
djúpum snjó og hafa ríkisstjórar í
nokkrum ríkjum og borgarstjórar
lýst yfir neyðarástandi, meðal ann-
ars í Virginíu þar sem 500 manns
leituðu í neyðarskýli í gær.
Minnst fimm hafa farist í hríðinni
vestanhafs, en þetta er mesti snjó-
bylur á austurströndinni í áratugi.
Hætt var við 1.200 áætlunarflug
vegna veðursins, meðal annars frá
Reagan-alþjóðaflugvellinum í Wash-
ington þar sem 40 sm af snjó féllu á
laugardag. Það er mesta fannfergi á
einum degi í desember frá því að
mælingar hófust árið 1885.
Miklar vetrarhörkur voru einnig
víða í Evrópu um helgina en talið er
að minnst 19 hafi týnt lífi. Þar af
frusu 15 í hel í Póllandi. Þá féllu
ferðir Eurostar-lestarinnar undir
Ermarsund niður í dag en bilun á
föstudag setti þær úr skorðum.
Reuters
SNJÓNUM KYNGIR NIÐUR
STJÓRN
Mahmouds Ah-
madinejads
Íransforseta er í
viðbragðsstöðu
vegna fyrirhug-
aðra minningar-
athafna vegna
dauða klerksins
Hoseyn Ali
Montazeri, sem
féll frá á laugar-
dag. Montazeri gagnrýndi stjórnina
opinberlega og lét meðal annars
hafa eftir sér að stjórnkerfið kynni
að riða til falls eftir mótmælin fjöl-
mennu gegn meintu svindli í for-
setakosningunum í sumar.
Hann var einn að feðrum írönsku
byltingarinnar árið 1979 en gerðist
síðan gagnrýninn á kerfið sem
hann taldi hafa þróast út í einræði í
nafni íslamstrúar.
Íransstjórn
við öllu búin
Hoseyn Ali
Montazeri
STERKAR vísbendingar hafa verið
um að her stjórnarinnar á Srí Lanka
hafi framið stríðsglæpi eftir að hann
braut uppreisnarhreyfingu tamíl
tígranna endanlega á bak aftur í maí
eftir 26 ára blóðugt borgarastríð.
Ásakanir um grimmdarverk hafa
öðrum þræði snúist um meðferð
hersins á sigruðum sveitum tamíla
og óbreyttum borgurum en það er
líklega fyrst nú sem fram er kominn
vitnisburður um kerfisbundnar
nauðganir á tamílskum konum.
Fjallað er um ódæðin á vef breska
blaðsins The Guardian en þar er haft
eftir sjúkraliðanum Vany Kumar að
verðir í flóttamannabúðunum í Men-
ik hafi þvingað konur til að hafa við
sig samfarir gegn því að fá mat.
Lýst sem útrýmingarbúðum
Kumar var sjálf í haldi í búðunum í
fjóra mánuði og gengur svo langt að
lýsa þeim sem útrýmingarbúðum.
Fangar hafi verið látnir krjúpa úti
við í steikjandi sólskini og konur sem
grunur hafi leikið á að tengdust tígr-
unum horfið sporlaust.
Misþyrmdu konum óvinarins
Reuters
Tamílar Frá búðunum alræmdu.
Nöturleg frásögn sjúkraliða bendir til
grimmdarverka hersins á Srí Lanka
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
NOKKUR helstu ríki fjölmennustu álfunnar, Asíu, lýstu
í gær yfir ánægju sinni með niðurstöðu loftslagsráðstefn-
unnar í Kaupmannahöfn á laugardag og sagði Yang
Jiechi, utanríkisráðherra Kína, útkomuna í senn mikil-
væga og jákvæða. Rajendra Pachauri, formaður lofts-
lagsnefndar Sameinuðu þjóðanna, tók ekki jafn djúpt í
árinni og sagði samkomulagið, sem felur í sér sátt um að
hlýnun af mannavöldum verði ekki meiri en 2 gráður á
Celsíus, ekki lokaáfanga heldur skref á langri vegferð.
Dagblöð víða um heim hafa mörg hver ekki farið jafn
mildum orðum um ráðstefnuna og má nefna að danska
blaðið Berlingske Tidende túlkaði niðurstöðuna sem
mikinn ósigur. Hið hægrisinnaða Washington Times tók í
sama streng og sagði fundinn hafa mistekist.
Þýska dagblaðið Frankfurter Allgemeine Zeitung
gerði framgöngu nokkurra þróunarríkja að umtalsefni,
með þeim orðum að hún hefði sýnt fram á hvernig þau
notuðu loftslagsmál til að sækja fé til ríkra þjóða.
Vísaði blaðið þar með til þess að þróuð ríki hétu háum
fjárhæðum til þróunarlandanna til að aðstoða þau við að
laga sig að breytingum á loftslaginu.
Obama segir lendinguna „án fordæmis“
Barack Obama Bandaríkjaforseti sagði niðurstöðuna
„án fordæmis“ og brjóta blað í loftslagsmálum, en hann
lagði sem kunnugt er verulega áherslu á þennan mála-
flokk í kosningabaráttu sinni í fyrrahaust.
Dagblaðið The New York Times sagði útkomuna í
Kaupmannahöfn og í heilbrigðismálunum vestanhafs,
þar sem gert er ráð fyrir að öldungadeildin greiði at-
kvæði um heilbrigðisfrumvarpið í vikunni, hins vegar
sýna að forsetinn hafi þurft að sættast á málamiðlanir
eftir hástemmd loforð á hvorum tveggja vígstöðvunum.
Fulltrúar nokkurra þróunarríkja voru á öndverðum
meiði við forsetann og töldu samkomulagið lítils virði og
ólýðræðislegt, en samningamenn nokkurra valinna ríkja
komu sér saman um það fyrir hádegi á laugardag eftir
stíf fundahöld á lokasprettinum.
Ian Fry, fulltrúi smáeyjunnar Tuvalu í Kyrrahafi, er í
hópi gagnrýnenda en að hans mati er málamiðlunin svik
við bæði almenning og framtíðina.
Almennt orðalag
Orðalag samkomulagsins er almennt en þar segir að
ríkar þjóðir skuldbindi sig til að draga úr losun gróður-
húsalofttegunda um leið og þróunarríki skuli stemma
stigu við stigvaxandi losun. Þar er hins vegar ekki að
finna skuldbindandi markmið um hversu mikill sam-
drátturinn skuli verða og horfa umhverfisverndarsinnar
því til næstu loftslagsráðstefnu að ári liðnu í Mexíkó.
Asíuríkin fagna
samkomulaginu
Umdeild útkoma í Kaupmannahöfn Óljós markmið
Reuters
Törn Einn fulltrúi Kínverja fær sér hænublund aðfara-
nótt laugardags eftir langa og stranga samningalotu.