Morgunblaðið - 21.12.2009, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 2009
Slökkvilið
Höfuðborgarsvæðisins
Eldspýtur og kveikjarar
eru ekki barna meðfæri.
Staðsetjið kveikjara og
eldspýtur ávallt þar sem
börn ná ekki til.
Til eru kveikjarar með
barnalæsingum sem eiga
að koma í veg fyrir að börn
geti kveikt á þeim
Munið að
slökkva á
kertunum
ÞEGAR starfsfólki og heimilisfólki
á Hulduhlíð, dvalarheimili aldraðra
á Eskifirði, var sagt að ekkert
jólatré yrði sett upp við heimilið
fyrir jólin trúði það ekki sínum eig-
in eyrum en uppsetning jólatrés
hafði verið skemmtileg hefð und-
anfarin 20 ár. Starfsfólkið ákvað þá
að grípa til sinna ráða og fór svo að
Skógrækt ríkisins gaf Hulduhlíð tré
og BYKO á Reyðarfirði gaf öll ljós-
in.
Starfsfólkið sá svo um að setja
upp tréð og skrautið með dyggri
aðstoð maka sinna og gat heim-
ilisfólkið því tekið gleði sína á ný.
Björguðu
jólum heim-
ilisfólksins
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Jólatré Nokkrar starfskonur Hulduhlíðar, ásamt börnum, við jólatréð góða.
Eftir Sigurð Aðalsteinsson
Egilsstaðir | „Við vorum búin að
leita að húsnæði undir starfsemina í
nokkra mánuði og vorum mjög
ánægð með að finna þetta og fengum
það afhent 1. nóvember. Síðan hafa
staðið yfir lagfæringar á húsinu og
það sniðið að okkar starfi,“ sagði
Peter en húsnæðið er þar sem apó-
tekið var til húsa þar til það var flutt
nú á haustdögum. Húsið byggðu
Hjálmar Jóelsson og Erla Salómons-
dóttir við Lagarás fyrir 30 árum og
þar hefur verið rekið apótek allar
götur síðan og apótekarinn bjó
lengst af á efri hæðinni.
„Það var nauðsynlegt að hafa líka
stað á Egilsstöðum fyrir helgihaldið.
Það er miðsvæðis auk þess sem erfitt
getur verið að fara yfir Fagradalinn
um vetrartímann. Við höfðum fyrir
litla kirkju á Kollaleiru við Reyðar-
fjörð. Þar eru þrír munkar sem einn-
ig eru prestar. Hér á Egilsstöðum
verða að staðaldri tvær systur, systir
Selestina og systir Benedette. Það
verða messur í húsinu alla sunnu-
daga og suma virka daga einnig,
ásamt barna- og fermingarfræðslu. Í
fyrradag þegar ég kom austur var
vont veður og erfitt að fara yfir
Fagradalinn en Guð var með okkur
og við nutum hjálpar hjálpsamra
vegfarenda, svo það er gott að koma
nú upp þessarri aðstöðu hér á Egils-
stöðum, ferðir yfir vetrartímann
geta verið torsóttar,“ sagði afmælis-
barnið biskup Peter sem er á þriðja
starfsári sínu hér á Íslandi en vígsl-
an fór einmitt fram á afmælisdegi
hans.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Gleðistund Biskupinn Peter Bürcher ásamt prestlærðu munkunum frá Kollaleiru og systrum sem dvelja
munu á Egilsstöðum fyrir altarinu í kapellu kaþólskra við Lagarás á Egilsstöðum.
Hús undir helgihaldið
Biskup kaþólskra á Íslandi, Peter Bürcher, vígði í gær
kapellu kaþólskra og nunnuklaustur á Egilsstöðum
KANADÍSKI þingmaðurinn Carol-
yn Bennett hefur farið þess á leit við
heilbrigðisráðherra landsins að sett-
ar verði reglur um hjálpartæki
ástarlífsins með tilliti til þeirra efna
sem notuð eru í plastinu í þeim.
Áhyggjur Bennett beinast fyrst
og fremst gegn efnasambandinu
bisphenol A en þar fer svonefndur
hormónaspillir sem rannsóknir
benda til að geti haft skaðleg áhrif á
hormónastarfsemi líkamans.
Kanadamenn hafa þegar bannað
notkun efnisins í drykkjarpelum fyr-
ir ungabörn og telur Bennett rétt að
sömu reglur gildi um hjálpartæki
ástarlífsins og leikföng.
Eins og fram hefur komið í
Morgunblaðið er efnið talið trufla
estrógenáhrif í fólki, röskun sem
talin er geta haft víðtæk áhrif.
Viðkvæmasta æviskeiðið er talið
vera fósturstigið og fyrsta æviárið.
Varasöm
hjálpartæki