Morgunblaðið - 21.12.2009, Síða 33
Dagbók 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 2009
Sudoku
Frumstig
7 1 2 8
5 4
9 3 8 5 7
5 2
7
2 4 5 9
2 9
3 4 1
7 9 4 8
9 8 7 4 3
5
3 9 5 4
2 4 8
1 3 5
1 5 3 4 8 9
8 9 7
9 4
4 6 1 8
6 8 5
3
6 3 8
7 2
5 4 1
8 7 3
8 1 6
2 1 6 9 5 8 3 7 4
4 5 9 1 7 3 2 8 6
8 3 7 4 2 6 9 1 5
7 6 4 5 3 2 8 9 1
1 8 3 7 6 9 4 5 2
9 2 5 8 1 4 7 6 3
6 4 8 2 9 1 5 3 7
5 9 1 3 4 7 6 2 8
3 7 2 6 8 5 1 4 9
2 3 5 4 8 9 6 1 7
4 6 8 2 7 1 5 9 3
1 7 9 5 6 3 8 4 2
7 1 6 8 3 2 4 5 9
8 9 3 7 5 4 1 2 6
5 2 4 9 1 6 3 7 8
3 4 2 1 9 8 7 6 5
6 5 1 3 2 7 9 8 4
9 8 7 6 4 5 2 3 1
2 1 8 6 4 5 9 3 7
9 5 6 3 7 2 4 8 1
4 7 3 1 9 8 2 5 6
8 9 1 4 3 6 7 2 5
7 4 2 8 5 1 6 9 3
3 6 5 7 2 9 8 1 4
5 8 7 9 6 3 1 4 2
6 2 9 5 1 4 3 7 8
1 3 4 2 8 7 5 6 9
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er mánudagur 21. desember,
355. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Á þeim degi munuð þér skilja, að
ég er í föður mínum og þér í mér og ég í yður.
(Jóh. 14,20.)
Þau sitja fimm í heitum potti viðkalda laug og bera saman for-
tíð og samtíð. Stefið er endurtekið.
Allt var betra í gamla daga. Svo er
hnykkt á alkunnum sannindum.
Unga fólkið er óalandi og óferj-
andi. Það er latt, fyrirhyggjulaust
og kann ekki að þrífa hús. Þessu
var öðruvísi farið áður fyrr. Þá var
allt betra.
x x x
Um 400 árum fyrir Krist varágætur maður yfir sig
hneykslaður á unga fólkinu sem
stefndi í glötun: „Hvað hefur hent
börnin okkar? Þau vanvirða eldra
fólk og hlýða ekki foreldrum sín-
um. Þau fara ekki að lögum og
efna til uppþota á götunum.“
x x x
Þessi ágæti maður átti heima íAþenu. Þar skrifaði hann
frægar bækur, Ríkið þar á meðal,
sem margir Íslendingar börðust í
gegnum í forspjallinu forðum.
Víkverji er nokkuð viss um að
pottafólkið sé búið að gleyma
Plató.
Önnur viðfangsefni hafa tekið
yfir andlegu sviðin. Rósrauð fortíð-
arsýn gengur þar í efnasamband
við þá andlegu tísku að keppast við
að yfirbjóða næsta mann í svart-
sýni og almennu röfli um stöðu
mála.
x x x
Íslendingar ættu að horfa íkringum sig. Það þarf ekki að
fara lengra í suður en til Bret-
landseyja til að finna fyrir land þar
sem fólk króknar úr kulda í vetr-
arhörkum. Frostið sem hefur sett
ferðir lestanna undir Ermarsund-
sgöngin úr skorðum mun reynast
þeim sem eiga erfitt með að borga
fyrir jarðgasið heldur slæm jóla-
gjöf. Það er ekki lengur til að
dreifa kolunum sem að Bretar iðn-
væddust með forðum.
Hitt er svo annað mál að skulda-
byrðin sem hvílir á hitaveitunni
hér í nyrstu höfuðborg heims fær
stjarnfræðilegar tölur til að sýnast
smáar.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 dökk, 4 sveia,
7 kvenmannsnafn, 8
trylltur, 9 guð, 11 skip,
13 stafn á skipi, 14
huldumaður, 15 brún, 17
landsvæði, 20 ástæður,
22 gleðjast, 23 mergð, 24
skartgripurinn, 25 sefur.
Lóðrétt | 1 kvenvarg, 2
erfið, 3 hreint, 4 í fjósi, 5
samtala, 6 ákveð, 10
góla, 12
mathák, 13 augnalok, 15
ójafnan, 16 krók, 18 ber,
19 með tölu, 20 fornafn,
21 málmur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 fársjúkur, 8 leiði, 9 gadds, 10 gái, 11 tugga, 13
renna, 15 músar, 18 sigur, 21 ólm, 22 gjall, 23 ellin, 24
flugeldur.
Lóðrétt: 2 áning, 3 seiga, 4 úrgir, 5 undin, 6 glit, 7 aska,
12 góa, 14 efi, 15 megn, 16 stall, 17 róleg, 18 smell, 19
guldu, 20 rann.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Rf6 4. Bg5 Be7
5. e5 Rfd7 6. Bxe7 Dxe7 7. f4 Rb6 8.
Rf3 Bd7 9. Bd3 a6 10. O-O c5 11. De1
Rc6 12. Df2 c4 13. Be2 Hc8 14. Rd1 f6
15. exf6 gxf6 16. c3 f5 17. Dg3 Kd8 18.
b3 cxb3 19. axb3 Kc7 20. Rb2 Hcg8 21.
De1 Rc8 22. Hf2 Rd6 23. Bf1 Re4 24.
Hc2 Hg7 25. Rd3 Hhg8 26. c4 Kb8 27.
c5 Kc7 28. Rde5 Hc8 29. b4 Kd8 30. b5
axb5 31. Bxb5 Rxe5 32. Rxe5 Bxb5 33.
Da5+ Ke8 34. Dxb5+ Kf8 35. Db6 h6
36. Hac1 Kg8 37. c6 bxc6 38. Rxc6 Da3
39. He1 Kh7 40. Hce2 Dc3 41. Re5
Staðan kom upp í keppni eldri og
reyndari meistara gegn liði kvenna í
Marienbad í Tékklandi. Gamla brýnið,
Viktor Kortsnoj (2567) hafði svart
gegn Jönu Jackovu (2388) frá Tékk-
landi. 41… Hxg2+! og hvítur gafst upp
enda yrði hann mát eftir 42. Kxg2
Hg8+ 43. Kh1 Dxe1+! 44. Hxe1 Rf2#.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Hugsað með Reese.
Norður
♠D10
♥KD1064
♦Á943
♣Á3
Vestur Austur
♠G9752 ♠K3
♥83 ♥G752
♦10 ♦DG6
♣G8765 ♣D942
Suður
♠Á864
♥Á9
♦K8752
♣K10
Suður spilar 6♦.
„Sagt er að menn spili frekar út frá
kóng en gosa gegn slemmu,“ hugsaði
Terence Reese (1913-1996) og stakk
upp ♠D. Hann hafði fengið út smáan
spaða gegn slemmunni, en hitti sem
sagt ekki í litinn. Reese drap kóng
austurs og lagði á ráðin.
Ef trompið er 3-1 verður snarlega
að henda niður spöðunum heima. Sem
þýðir að sá með þriðja trompið þarf
að fylgja fjórum sinnum lit í hjarta.
Spilið er úr hinni þekktu bók Reese,
Play Bridge with Me, þar sem hann
leiðir lesandann stig af stigi í gegnum
eigin þankagang. Hér er nauðsynlegt
að taka hátrompin í réttri röð – enda í
borði til að geta svínað ♥9 ef austur
reynist eiga þrílitinn í tígli. Fram-
haldið er einfalt: ♥Á tekinn, laufi spil-
að á ás og þremur spöðum hent niður
í hjarta.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Tíminn er auðlind sem þú hefur
ekki ráð á því að sólunda. Ekki efast
um þig, þú ert á réttri hillu. Ástarsam-
band rennur út í sandinn.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Einhver ókunnugur leitar til þín.
Taktu við gjöfunum með bros á vör,
sérstaklega þeim sem virðast hafa
blendin skilaboð.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Eitthvað sem þú framkvæmir
vekur athygli á þér. Aðeins vel upp-
lýstur einstaklingur getur innt þau
störf af hendi, sem þér eru falin.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Stuttar ferðir, skriftir, kennsla
og tengsl við systkini veita þér mikla
ánægju á komandi ári. Þú ert á báðum
áttum í vissu máli. Sumir eru úti á
þekju.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þó að hugmynd þinni sé ekki sér-
lega vel tekið er ekki þar með sagt að
hún sé vond. Aðdráttarafl þitt er mik-
ið.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Búðu þig undir fleiri samræður
um fjármál og hvaðeina sem þú átt í
félagi við aðra. Það grær um heilt í
deilu við ættingja.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú þarft að finna upp á einhverju
til að brjóta upp rútínu dagsins. Efist
þú er best að fá álit sem flestra. Ætt-
ingi kemur í heimsókn.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú þarft á einveru og hvíld
að halda. Með því að fylgjast betur
með tíðarandanum mun skilningur
milli þín og ungs fólks aukast. Göngu-
túr gerir þér gott.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Mundu að sá sem nýtur
góðrar vináttu verður að vera reiðubú-
inn til þess að leggja sitt á móti. Tæki-
færi til menntunar lofa góðu og hið
sama gildir um útgáfumál.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Samræður við vini, systkini
eða fjölskyldu eru þér ákaflega mik-
ilvægar. Stattu fast á þínu.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú ert ákveðinn í að komast
til botns í ákveðnu máli í dag. Láttu
gagnrýni sem vind um eyru þjóta, hún
á ekki rétt á sér.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú ert vel upplagður/lögð og allt
virðist ganga upp hjá þér. Í dag muntu
græða á því að staldra við og íhuga það
sem þú hefur orðið vitni að.
Stjörnuspá
21. desember 1935
Bílstjórar í Reykjavík hófu
verkfall til að mótmæla hækk-
un á bensínskatti. Lítil sem
engin bílaumferð var í bænum
í tíu daga.
21. desember 1945
Ölfusárbrú við Selfoss var
opnuð til umferðar, „stærsta
og mesta brú sem byggð hefur
verið hér á landi“ að sögn Al-
þýðublaðsins. Þetta er 134
metra löng hengibrú sem
leysti af hólmi brú sem tekin
var í notkun árið 1891 en
skemmdist haustið 1944.
21. desember 1952
Kveikt var á fimmtán metra
háu jólatré á Austurvelli í
Reykjavík. Þetta var fyrsta
tréð sem Oslóarbúar gáfu
Reykvíkingum. Lýsingin á
trénu var „með afbrigðum til-
komumikil,“ sagði í Morg-
unblaðinu.
21. desember 1972
Háspennulínan frá Búrfelli til
höfuðborgarsvæðisins slitnaði
í óveðri. Rafmagnslaust var í
marga daga og ker í álverinu í
Straumsvík skemmdust.
21. desember 1999
Þingsályktun um fram-
kvæmdir við Fljótsdalsvirkjun
var samþykkt á Alþingi með
39 atkvæðum gegn 22. Sjón-
varpið sagði þetta „eitt um-
deildasta mál síðari ára“. Síð-
ar var fallið frá áformum um
þessa virkjun, sem kennd var
við Eyjabakka.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
SANNKÖLLUÐ jólastemning var um helgina í jólaþorpinu á Hljóma-
lindarreitnum við Laugaveg. Á laugardeginum var jólapakkarall með
tveimur mjólkurbílum í fararbroddi, sem enduðu í jólaþorpinu.
Stemning á Hljómalindarreitnum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is