Morgunblaðið - 21.12.2009, Page 34
34 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 2009
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÁSTANDIÐ Í HEIMINUM
ANGRAR MIG
ÞETTA ER
BETRA
KLÓR
KLÓR
ÞEIM SEM DETTUR Í HUG
AÐ LIGGJA Á ÞAKINU Á
KOFANUM SÍNUM Í ÞESSUM
HITA ERU VITLEYSINGAR
ÞAÐ ER EKKI SVO HEITT
ALVEG FRÁ ÞVÍ ÉG
VAR BARN HEF ÉG VERIÐ
LÍTIÐ GEFINN FYRIR
ATHYGLI
FYRST VIÐ
ERUM ÖLL
DÆGURFLUGUR
ÆTLA ÉG AÐ HAFA
ÞETTA STUTT
FYRSTA PARIÐ
SEM VIÐ FUNDUM Á
ÞESSARI SÍÐU VAR
NÚ MEIRA KLÚÐRIÐ
HVAÐ MEÐ ÞESSI TVÖ?
ÞAU LÍTA ÚT FYRIR AÐ
VERA ANSI ÁHUGAVERÐ
NEIBBÞAÐ GÆTI
VERIÐ ERFITT
AÐ FINNA PAR
SEM VIÐ
EIGUM SAM-
LEIÐ MEÐ
HVERNIG
DIRFIST
JAMESON AÐ
SEGJA AÐ
KÓNGULÓAR-
MAÐURINN
STARFI MEÐ
VULTURE?
HANN MYNDI SEGJA AÐ ÉG
VÆRI OSAMA BIN LADEN EF
HONUM DITTI ÞAÐ Í HUG
BÍDDU
ÞAR TIL
ÞÚ SÉRÐ
ÞETTA
ER KÓNGULÓAR-
MAÐURINN OG
VULTURE SAMI
EINSTAKLINGURINN?
HEFUR ÞÚ
NOKKURN TÍMANN
SÉÐ ÞÁ SAMAN?
Athugasemd vegna
fatahönnunar-
sýningar
Á SÍÐARI árum hafa
íslenskir hönnuðir í æ
ríkara mæli kappkost-
að að standa vörð um
höfundarétt sinn og
sæmd á opinberum
vettvangi. Því skýtur
það skökku við að vin-
sæll íslenskur fata-
hönnuður, Steinunn
Sigurðardóttir, skuli
nú ganga á þennan
rétt kollega sinna með
því að nota verk nokk-
urra þeirra sem hluta
af sviðsmynd utan um eigin verk á
sýningu sinni að Kjarvalsstöðum –
eins konar „props,“ – án þess að
geta um höfunda þeirra. Eru hús-
gögn þeirra þó höfundaverk, engu
síður en kjólar hennar. Hér er m.a.
um að ræða stóla eftir Þórdísi
Zoëga, Halldór Hjálmarsson, Sig-
urð Gústafsson og legubekk eftir
Guðmund Kr. Krist-
insson. Á sama tíma
er skilmerkilega hald-
ið til haga nöfnum
allra annarra sem
komu að sýningunni.
Þessu er hér með
komið á framfæri, þar
sem bæði hönnuði og
sýningarstjóra var
bent á þessa ávöntun
meðan á undirbúningi
sýningarinnar stóð, en
kusu að hunsa ábend-
inguna.
Virðingarfyllst,
Aðalsteinn Ingólfsson,
listfræðingur.
Tapað/fundið
LEÐURLÚFFA fannst í Þingholt-
unum. Eigandi getur vitjað hennar
í síma 847-1507.
Ást er…
… að vera á réttum tíma.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9-
16.30, útskurður kl. 13, félagsvist kl.
13.30.
Árskógar 4 | Bað kl. 8-15-16, handa-
vinna og smíði/útskurður kl. 9-16.30,
félagsvist kl. 13.30, myndlist kl. 16.
Bólstaðarhlíð 43 | Jólatrésskemmtun
kl. 14, handavinnustofa opin.
Dalbraut 18-20 | Myndlist og postulín
kl. 9-16, leikfimi kl. 10, brids kl. 13.
Félagsheimilið Gjábakki | Leiðbein-
andi í handavinnu við til hádegis,
botsía kl. 9.30 og lomber kl. 13. Skrán-
ing í skötu á Þorláksmessu stendur yf-
ir.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Postu-
línshópur kl. 9, ganga kl. 10, handa-
vinna kl. 13 og félagsvist kl. 20.30.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Gönguhópur kl. 11, matur og kaffi.
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur
opnar kl. 9-16.30, handavinna og tréút-
skurður, spilasalur opinn frá hádegi.
Gerðubergskór fer í heimsókn í Víðines
kl. 14.30. Á morgun er opið kl. 9-16.30,
stafaganga kl. 10.30. Opið á Þorláks-
messu kl. 9-16.30, leiðsögn fellur niður.
Háteigskirkja | Félagsvist í Setrinu kl.
13, síðasti spiladagur fyrir jól, kaffi.
Næst verður spilað miðvikud. 6. janúar.
Hraunsel | Jólafrí í Hraunseli, húsið
opnar aftur 11. janúar. Áramóta-
dansleikur 29. des. kl. 20.30-24, Papa
Jazz leikur fyrir dansi, verð 1.000 kr.
Sjá febh.is.
Hvassaleiti 56-58 | Félagsmiðstöðin er
opin virka daga frá 8.30-16.30. Fótaað-
gerðir, hársnyrting, hádegisverður kl.
11.30, kaffi.
Korpúlfar Grafarvogi | Sundleikfimi kl.
9.30 í Grafarvogssundlaug og ganga í
Egilshöll kl. 10.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Við
Hringborðið, spjallhópur kvenna kl.
10.30, handverks- og bókastofa opin kl.
11.30, boccia kl. 13.30, veitingar kl.
14.30, söngstund kl. 15.
Norðurbrún 1 | Jólaljósaferð eftir há-
degi suður með sjó, hafið samband f.h.
til að ath. með laust sæti, verð 2.400
kr. bíll, farastjórn og veitingar. Botsía
kl. 10, engin handavinna og samvera í
dag. Bingó á morgun og jólaskreyt-
ingagerð.
Vesturgata 7 | Handavinna kl. 9.15-
15.30, botsía kl. 9, leikfimi kl. 11, mat-
ur, kóræfing kl. 14.30, tölvukennsla kl.
14.30, veitingar.
Garnirnar hafa gaulað í þeimsem valdi vísurnar í Frétta-
blað Iðunnar, nema það sé stemn-
ingin sem fylgir jólunum, að til-
hugsunin um svignandi veisluborð
kveiki vísur hjá hagyrðingum. Að
minnsta kosti yrkir Ragnar Böðv-
arsson:
Sannlega er sælt að geta
safnað mat
og mega alla ævi éta
á sig gat.
Og Jói í Stapa:
Lykt og bragði fljótt verð feginn
fái ég spikfeitt hangiket.
Alltaf verð ég matarmegin
meðan andann dregið get.
Þá Helgi Zimsen:
Nautatungu niður á brauð
næfurþunna saga,
svo mér þetta sjálfum bauð
svangan fyllti maga.
Svo yrkir hann á öðrum nótum:
Gírugt soltinn gleypir flest.
Göngu-móður feginn sest.
Lasinn heilsu í lengir mest.
Ljós í myrkri greinist best.
Heiðmar Jónsson á sér ósk:
Heims er geisar hríðin stíf
og hriktir í þankalínum,
megi inni ljós og líf
ljóma í húsum mínum.
Loks Guðný A. Valberg:
Vinir gleðjast, hafa hátt
á himni lækkar sólin.
Ljóðaharpa klingir kátt
koma bráðum jólin.
Vísnahorn pebl@mbl.is
Af jólum og hangiketi