Morgunblaðið - 21.12.2009, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 2009
JÓLAGJÖFIN Í ÁR
FÆST Í MIÐASÖLUM
GJAFAKORT
SAMBÍÓANNA James Levine; Kathleen Kim, Anna Netrebko,Ekaterina Gubanova, Kate Lindsey, Joseph Calleja, Alan Held
Gusugangur í grasinu
Erla Sigurðardóttir
Salka
bbmnn
Einn sól-
skinsdag eru
hagamýsnar
að leika sér
og rekast á
gamla vatns-
slöngu. Í leik-
gleðinni snúa
mýsnar krananum og vatnið byrjar
að renna mörgum til mikillar gleði;
ánamaðkarnir kíkja upp úr mold-
inni, trén, blómin og grasið teygja
úr sér eftir langvarandi þurrka og
mýsnar njóta þess að kæla sig. En
svo er komið nóg af buslugangi og
skrúfað fyrir kranann, sólin sest og
allir sofna ánægðir eftir góðan dag.
Gusugangur í grasinu er látlaus
og ágætlega skrifuð saga fyrir utan
einn undarlegan kafla þar sem hlut-
verki vatnsslöngunnar gömlu er
lýst. Þar er textinn óþarflega flók-
inn og einnig fannst mér undarlegt
þegar talað er um alvöruvatn en
gamla slangan flutti vatn úr fjallinu
og missti hlutverk sitt þegar al-
vöruvatn var tengt inn í húsið, er til
gervivatn?
Ég hef tekið eftir að það er í
tísku núna í barnabókum að
skreyta textann með ýmsum uppá-
tækjum, stafirnir eru hafðir í mis-
munandi stærðum, gerðum og lit-
um, línurnar sveigjast og beygjast,
fara í hringi og eru skreyttar á ann-
an hátt. Á það stundum vel við en í
þessari bók hefði mátt sleppa því.
Þessi læti í hinum annars meinlausa
texta draga athygli frá myndunum
og eiga ekki alltaf vel við þær. Það
á ekki að þurfa að draga athyglina
að textanum í svona fagurlega
myndskreyttri bók.
Kostur Erlu sem barnabókahöf-
undar er augljóslega teiknihæfileiki
hennar því myndskreyting bók-
arinnar er til mikillar fyrirmyndar.
Myndirnar eru virkilega fallegar,
lifandi og skemmtilegar og börn
munu njóta þess að skoða þær.
Flugvélakossar
Ingibjörg Vilbergsdóttir – Nancy Myer
Salka
bbbbm
Daníel er lítill strákur sem á
heima á Íslandi en á ömmu sem býr
í Ameríku. Til að hittast verða þau
að fljúga yfir hafið, þeim finnst
gaman að hittast og það er alltaf
erfitt að kveðjast. Í eitt skipti þegar
Daníel saknar ömmu sinnar mikið
segir mamma hans honum frá flug-
vélakossunum. Til að senda flug-
vélakossa finnur maður flugvél á
lofti og sendir ástarkveðju með
henni, fyllir lófana af kossum og
blæs þeim upp í skýin um leið og
hugsað er um þann sem kossana á
að fá. Flugvélin ber kossana svo til
viðtakanda. Daníel og amma senda
hvort öðru flugvélakossa, enda er
ástin þeirra á milli einstök.
Flugvélakossar er mjög falleg
bók sem ætti að höfða vel til yngstu
kynslóðarinnar. Sagan einkennist af
einlægni og hlýju og textinn er ein-
faldur og skýr og auðveldur að lesa.
Myndirnar eiga vel við söguna, ljúf-
ar vatnslitamyndir, sem fanga ást-
ina sem býr í bókinni vel. Þetta er
saga sem fær lesandann til að líða
vel í hjartanu og langa til að senda
einhverjum kærkomnum flug-
vélakossa.
Arngrímur apaskott og fiðlan
Kristín Arngrímsdóttir
Salka
bbbbn
Arngrímur apaskott býr úti í
skógi. Forvitni hans er vakin þegar
hann heyrir stelpuna Sólrúnu, sem
er í skógarferð með ömmu sinni,
leika á fiðlu. Arngrímur hrífst af
tónlistinni og langar að spila á fiðlu
sjálfur. Hann nær fiðlunni af Sól-
rúnu sem eltir apaskottið með
ömmu sinni. Arngrímur stoppar elt-
ingaleikinn með því að fara að spila
á fiðluna, lögin sem hafa myndast í
höfðina á honum, lög sem fjalla um
fuglana, lækinn og sólina. Sólrún og
amma hlusta á þessu fögru tóna og
í lokin eru þau orðin vinir öll þrjú.
Arngrímur er heillandi api og
óttalega saklaus, hann langar bara
svo að spila á fiðluna sem hann
heyrir svo fagra tóna úr. Sagan er
einföld og skemmtileg og vekur
skilningarvitin; þegar Arngrímur
spilar hljóðin sem hann þekkir svo
vel heyrir lesandinn þau líka.
Myndir Kristínar eru litskrúðugar
og líflegar svo augað getur ekki
annað en dregist að þeim.
Í Arngrími apaskotti skapar
Kristín skemmtilegan heim fyrir
augu og eyru sem allir krakkar
ættu að geta glaðst yfir.
Lubbi finnur málbein:
Íslensku málhljóðin sýnd og sungin
Eyrún Ísfold Gísladóttir og
Þóra Másdóttir
Mál og menning
bbbbb
Íslensku mál-
hljóðin eru tekin
fyrir í Lubbi
finnur málbein.
Eins og segir á
bókarkápunni er
hvert málhljóð
kynnt með
stuttri sögu, vísu eftir Þórarin Eld-
járn og myndum eftir Freydísi
Kristjánsdóttur. Á geisladiski sem
fylgir bókinni syngja börn úr Skóla-
kór Kársness allar málhljóðavísur
Þórarins við alþekkt lög.
Bókin er hugsuð til málörvunar
og hljóðanáms fyrir börn á aldr-
inum tveggja til sjö ára og eru höf-
undar hennar, Eyrún og Þóra, tal-
meinafræðingar og hafa áralanga
reynslu af talþjálfun barna. Bókin
nýtist bæði börnum sem glíma við
erfiðleika í máltöku og hinum sem
læra málið án vandkvæða, hún
leggur góðan grunn að lestrarnámi
og stuðlar að auðugri orðaforða og
ýtir undir skýrari framburð.
Mikið er lagt í þessa bók sem er
flott og fræðandi í alla staði. Snið-
ugt er hvernig hvert hljóð er sett
fram í vísu og texta, einnig er sýnt
hvernig það er táknað með hreyf-
ingu og hljóðstöðumynd þess.
Myndskreytingarnar gera mikið
fyrir bókina, líflegar og litaglaðar
myndir sem ættu að heilla alla
krakka.
Á geisladiskinum sem fylgir með
heyrist hvernig hljóðin eru borin
fram. En það má ekki bara læra af
diskinum því hann er líka skemmti-
legur á að hlusta.
Lubbi finnur málbein er vandað
verk og glæsilegt og ætti að vekja
athygli allra krakka sem og for-
eldra þeirra á stöfunum og mál-
hljóðunum. Þetta er bók sem á eftir
að lifa lengi og vera mörgum lær-
dómsfúsum unganum til gagns og
gamans.
Hver er sterkastur?
Mario Ramos – íslensk þýðing Guðrún
Vilmundardóttir
Bjartur
bbbmn
Hver er
sterkastur? er
fyndin saga um
hégómlegan úlf
með lítið hjarta.
Úlfurinn fer í
göngutúr um
skóginn og spyr
alla sem hann
mætir hver sé
sterkastur og
auðvitað þorir enginn að svara hon-
um öðruvísi en það sé hann, því all-
ir eru hræddir við úlfinn. Eða hvað?
Sjálfsálitið vex hjá úlfinum með
hverju jáyrði sem hann fær og lítur
hann orðið á sig sem ógnvald skóg-
arins, mestan og bestan. Svo hittir
hann lítinn drekaunga sem er ekk-
ert hræddur við úlfinn enda á hann
miklu stærri og sterkari mömmu.
Úlfurinn er nú ekki sáttur við það
en drekaunginn stendur við sitt
svar og þegar mamman birtist sér
úlfurinn að hann er bara lítill ljúf-
lingsúlfur.
Þetta er önnur bók Ramos um
úlfinn sem er þýdd yfir á íslensku
og eins og fyrri bókin er þessi snið-
ug og skemmtileg. Úlfurinn er svo
ægilega vitlaus og ná einfaldar
myndir Ramos algjörlega að fanga
það. Fullorðnir geta ekki annað en
skellt upp úr þegar þeir lesa um
úlfinn og krakkar á öllum aldri
ættu að hafa gaman af honum.
Arngrímur Skemmtilegt apaskott sem heillast af fiðluleik Sólrúnar.
Barnabækur
Ingveldur Geirsdóttir | ingveldur@mbl.is
Yfirlit yfir nýútkomnar
barnabækur, íslenskar og þýddar.