Morgunblaðið - 21.12.2009, Síða 44
MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 355. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
FÓLK Í FRÉTTUM»
Heitast -1°C | Kaldast -8°C
N 8-15 m/s, og sums
staðar hvassar vind-
hviður SA-lands. Létt-
skýjað á S- og V-landi,
en annars él. »10
Myndin Old Dogs
er þynnkulegir hálf-
brandarar og mis-
lukkaðir aulabrand-
arar og lítill
gleðigjafi. »38
KVIKMYNDIR»
Lélegir
hundar
FLUGAN»
Flögraði á tvenna
tónleika og í bíó. »36
Sigur í tapleik eftir
Einar Má er merk
og vel gerð heimild-
armynd sem ætti að
vera til á hverju
heimili. »40
KVIKMYNDIR»
Vel gerð
mynd
TÓNLIST»
Áhugaverð bossa nova-
plata hjá Jussanam. »37
TÓNLIST»
Seabear og múm léku
í Iðnó. »40
Menning
VEÐUR»
1. Brittany Murphy látin
2. Fimm barna faðir í háskólanámi
3. Handtekinn að lokinni eftirför
4. Skemmdir vegna óveðurs í Eyjum
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Miklar og heitar
umræður voru á
Alþingi á laugar-
dagskvöld og fram
eftir nóttu. Ein-
hver næturgalsi
var kominn í þing-
heim er Ásta
Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti
Alþingis, gerði athugasemd við orða-
lag Tryggva Þórs Herbertssonar
alþingismanns. Talaði hann um „eitt
lítið djók“ þegar hann lýsti málflutn-
ingi stjórnarliðans og varaþing-
mannsins Önnu Pálu Sverrisdóttur.
Þingforseti minnti þingmanninn á
að menn töluðu íslensku í þingsal.
Þetta var raunar í annað sinn sem
Ásta Ragnheiður gerði athugasemd
við ræðu Tryggva Þórs. Skömmu áð-
ur hafði hann sagt „hún“ þegar hann
átti að segja háttvirtur þingmaður.
Vissara að gæta orða sinna á þingi.
STJÓRNMÁL
Bannað að segja „djók“
í sölum Alþingis
„Ég er einfald-
lega að þiggja boð
forráðamanna
Rhein-Neckar
Löwen um að sjá
leik með liðinu, boð
sem ég fékk þegar
félagið gekk frá
kaupum á Snorra Steini Guðjónssyni
frá GOG í haust. Boðið hef ég ekki
getað þekkst fyrr sökum anna,“ seg-
ir Guðmundur Þórður Guð-
mundsson, landsliðsþjálfari í
handknattleik og þjálfari danska
liðsins GOG, um væntanlega heim-
sókn sína til þýska stórliðsins Rhein-
Neckar Löwen. Guðmundur Þórður
verður gestur á heimaleik liðsins við
Düsseldorf í Mannheim annað kvöld.
Löwen hefur þrjá íslenska hand-
knattleiksmenn á sínum snærum og
gerði nýverið samning við þann
fjórða fyrir næsta keppnistímabil.
HANDKNATTLEIKUR
Guðmundur Þórður gestur
Rhein-Neckar Löwen
Milljónamæring-
arnir verða með
dansleik annan í
jólum á Hótel
Sögu.
Bogomil Font
verður í framlín-
unni sem fyrr en
hljómsveitin fær einnig til sín góða
gesti; Raggi Bjarna syngur nokkur
lög sem og látúnsbarkinn Bjarni
Arason. Annars skipa sveitina Stein-
grímur Guðmundsson sem leikur á
trommur, Kjartan Valdimarsson á
píanó, Birgir Bragason á bassa og
blásaradúettinn Jóel Pálsson og
Einar Jónsson.
TÓNLIST
Milljónamæringarnir
taka við sér á jólunum
SÓLHVÖRF vetrar verða í dag kl. 17.47 og er sól
þá lengst til suðurs á himninum. Við sólhvörfin
tekur hún að færast í norður og dagana lengir.
Morgundagurinn verður af þessum sökum um
níu sekúndum lengri en dagurinn í dag sem er
stysti dagur ársins, fjórar stundir og níu mín-
útur. Í framhaldinu mun daginn lengja í stærri
skrefum frá degi til dags þar til hann verður
rúm 21 stund við sumarsólhvörf.
Vetrarsólhvörf verða klukkan 17.47 í dag
Daginn tekur að lengja á ný
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ARNBJÖRN
Kristinsson hef-
ur rekið bókaút-
gáfuna Setberg í
áratugi og síð-
ustu sjö árin hef-
ur hann einbeitt
sér að útgáfu
barnabóka. Ár
hvert koma út
20-30 titlar hjá
Setbergi og segir
Arnbjörn það ganga ágætlega,
barnabækur seljist allt árið um
kring. Arnbjörn sat í 52 ár í stjórn
Félags íslenskra bókaútgefenda og
lenti í útistöðum við Ragnar í
Smára árið 1955. | 35
Einbeitir sér að
barnabókum
Arnbjörn
Kristinsson
Eftir Skúla Á. Sigurðsson
skulias@mbl.is
MATTEO Wullschleger er sextán
ára gamall svissneskur skiptinemi
við Menntaskólann á Akureyri.
Hann mun eyða jólum og áramótum
á Íslandi, fjarri fjölskyldu og heima-
högum í bænum Zofingen í norð-
anverðu Sviss. Þrátt fyrir að hafa
aðeins verið um fjóra mánuði hér á
landi talar Matteo mjög góða ís-
lensku en hann hafði áður lært
nokkra grunnfrasa í málinu. Hann
segist ánægður hér og hlakkar til að
upplifa íslensk jól.
„Ég er mjög spenntur að vera
hérna um jólin og upplifa hvernig
þau eru í öðru landi og hvernig Ís-
lendingar halda jólin,“ segir Matteo
og kveður jólin mun viðameiri hátíð
hér en í heimalandi sínu. Hann seg-
ist ekki hafa smakkað mikið af ís-
lenskum jólamat ennþá en segir að
sér líki hann vel. „Ég er búinn að
smakka hangikjöt sem mér finnst
mjög gott.“ Þá segist hann hafa
bragðað hvalkjöt í fyrsta sinn hér
og líkað vel.
Matteo segist munu einbeita sér
að því að upplifa jól á íslenska vísu
og heldur ekki fast við svissneska
jólasiði. Þó ætlar hann að baka
svissneskar smákökur og deila með
heimamönnum. „Ég sakna fjöl-
skyldu minnar en það er allt í lagi,
þetta er ekki svo langur tími,“ segir
Matteo en hann heldur heim í júní.
Hann segist gjarna vilja stunda
frekara nám hér á landi og jafnvel
setjast hér að í einhvern tíma. „Ég
er ekki búinn að ákveða neitt en ég
get vel hugsað mér að búa hérna.“
Hátíðir að heiman
Matteo er skiptinemi frá Sviss sem eyðir jólum á Íslandi
Hyggst kynna heimamönnum svissneskan jólabakstur
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Matteo Jólin eru að sögn Matteos
mun viðameiri hér en heima í Sviss.
Í HNOTSKURN
» Sem barn las Matteo bæk-ur Astridar Lindgren og
kveiktu þær áhuga hans á
Norðurlöndunum. Leiddi sá
áhugi til þess að hann heill-
aðist af Íslandi.
» Matteo er hér á landi ávegum fræðslusamtak-
anna AFS. Á þeirra snærum
eru nú 40 erlendir skiptinem-
ar hér á landi frá um 30 lönd-
um og íslenskir skiptinemar
erlendis eru tæplega 80 í um
25 löndum.
SÍÐAN jólaverslunin hófst af full-
um krafti hefur talsvert borið á
þjófnaði úr verslunum eða
þjófnaðartilraunum. Þótt tilkynn-
ingar um búðahnupl séu ámóta
margar og í fyrra hefur orðið mikil
aukning frá 2007. Til að bregðast
við þessu eru verslanir með meiri
viðbúnað, ráða fleiri öryggisverði,
bæði einkennis- og óeinkennis-
klædda, og upplýsa starfsfólk sitt
betur. Talið er að rýrnun í versl-
unum landsins vegna þjófnaða nemi
5-6 milljörðum árlega. | 12
Búðahnupl eykst
í jólaversluninni