SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Síða 2

SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Síða 2
2 31. janúar 2010 18 Frumkvöðlasmiðjan sótt heim Í Frumkvöðlasmiðjunni er unnið að því að efla sjálfstraust ungs fólks og opna augu þess fyrir eigin hæfileikum og möguleikum. 23 Íslenskir kóngar Einar Már Guðmundsson skrifar um kónga og smákónga. 24 Árbítur með Obama Hendrikka Waage skartgripahönnuður og forseti góðgerðarsamtaka í Vín er á leiðinni vestur um haf að hitta forseta Bandaríkjanna. 34 Listahátíð í Reykjavík 40 ára Stiklað á stóru í sögu hátíðarinnar, í máli og myndum, og rifjuð upp nokkur af eftirminnilegustu atriðum hennar gegnum tíðina. 40 Einfalt og gott Matgæðingurinn Nanna Rögnvaldardóttir töfrar fram uppskriftir að þremur réttum sem allir þurfa að kunna. Lesbók 50 Ólæknandi ferðaþrá Foreldrar Sturlu Friðrikssonar voru á ferðalagi þegar hann fæddist fyr- ir tæpum níutíu árum. Hann hefur verið á ferðalagi síðan. 52 Skáldsaga þýðanda Kristof Magnússon þýðir íslensk skáldverk á þýsku en semur einnig skáldsögur. 53 Caulfield kveður Bandaríski rithöfundurinn J.D. Salinger fallinn frá. 16 Efnisyfirlit Forsíðumyndina tók Kristinn Ingvarsson af Arnóri Atlasyni í leik á EM. Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans: Arn- ar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, Bergþóra Jónsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Hólmfríður Gísladóttir, Ingv- eldur Geirsdóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristján Jónsson, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir, Skapti Hallgrímsson, Ylfa Kristín K. Árnadóttir. 38 Augnablikið Í sbjörn í Þistilfirði? Ertu viss um að ekki sé verið að gera grín að okkur? Er nema von að maður spyrji, í ljósi reynslunnar, þegar fréttastjórinn hringir með tíðindin. Þjóðhátíðardagurinn 2008 fór í að fanga hvíta- björn við Hraun á Skaga og í fyrra gekk plastbjörn á land í Skagafirði. Þá var ég sem betur fer ekki kominn langt þegar sannleikurinn spurðist út. Fræg er fyrirsögnin Negri í Þistilfirði í Degi á árum áður; þá var það svart, en nú er það hvítt. Nokkur símtöl og svo er rokið inn á flugvöll. Verið er að setja bensín á vélina þegar ég mæti. Shit! Er hún svona lítil? Mér svelgist á. „Ég er til. Drífum okkar af stað,“ segir flug- maðurinn brosandi. Traustur maður og ég er sannfærður um að mér er óhætt. Enn situr þó í mér atvikið yfir Austfjörðum fyr- ir margt löngu þegar hurð á lítilli vél – sem var þó mun stærri en þessi! – spenntist upp á flugi og ég fékk það verkefni, ásamt flugmanninum, að teygja mig eftir henni og skella í lás. Ég og pínulitlar flugvélar höfum ekki átt sérlega vel saman síðan. Við tökum á loft til suðurs og svo er strax beygt til vinstri. Akureyri fjarlægist og mér finnst ég furðu fljótt venjast aðstæðum; það er bjart og feg- urðin blasir við hvert sem litið er. Vélin tekur kipp. Flugmaðurinn brosir. „Smá- vindur,“ segir hann. Allt í góðu samt. Ég kinka kolli og þykist rólegur. „Dásamleg tilfinning að svífa svona um,“ segir hann en ég held aðeins fastar í sætið en áður. Það rifjast upp fyrir mér sem fyrrverandi mág- ur minn, flugmaður, sagði einhverju sinni; jafn- eðlilegt er að flugvél hristist og bíll sem ekur ofan í holu eða yfir stein. Yfir Vaðlaheiðinni tek ég eftir því að einni hringingu er ósvarað í símanum. Hringi til baka í fréttastjórann sem er með þau skilaboð að búið sé að fella dýrið. Ansans! Mér leið loks orðið vel í loftfarinu og finn strax fyrir vonbrigðum. Hvað lá þeim á að drepa blessaða skepnuna? Sessunautur minn tilkynnir flugturni að við ætlum að koma aftur inn til lendingar. Þannig fór um sjóferð þá. Engin ísbjarnarmynd en ég fékk staðfestingu á því að Vaðlaheiðin er hvít að ofan. Svo smelli ég af nokkrum myndum til þess að ferðin verði ekki algjörlega til einskis. Þegar ég sest við tölvuna seinna um daginn sýnist mér myndirnar eitthvað skrýtnar. Nei, gleraugun sjálfsagt skítug eða skjárinn bilaður. Telji lesandi myndina að ofan hreyfða eða skakka er það ekki vegna þess að ég var skelk- aður. Lesandinn hlýtur að halda vitlaust á blaðinu. Ætti að prófa að halla því örlítið rétt- sælis. Lendingin er frábær. „Takk,“ segi ég. „Varstu í straujárninu?“ spyr kunningi minn, starfsmaður á flugvellinum, sem ég hitti síðar þennan sama miðvikudag. „Já, við köllum hana það því hún er svo lítil og alveg eins og straujárn í laginu.“ Það eru góð tæki, hugsa ég. Kannski ég læri að strauja skyrturnar mínar sjálfur. skapti@mbl.is Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Straujárn á flugi 4. febrúar Íslenski dansflokkurinn frumsýnir „Endalaus“ eftir norskan danshöf- und, Alan Lucien Öyen. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Alan unnið til fjölda verðlauna fyrir verk sín og hefur getið sér gott orð fyrir falleg, tilfinningarík og ljóðræn verk. Tónlistamaðurinn Ólafur Arnalds samdi tónlistina fyrir verkið og blandar hann saman strengjum, píanói og rafmögnuðum áhrif- um. Sýningin er sýnd á Stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu og byrjar kl. 20. ÍD frumsýnir „Endalaus“ Við mælum með… 31. janúar Á dagskrá Myrkra músíkdaga eru spennandi djass- tónleikar. Sigurður Flosason flytur nýja frumsamda tónlist við ljóð Að- alsteins Ásbergs Sigurðssonar í Norræna húsinu kl. 12. Honum til fulltingis verða Ragnheiður Grön- dal, Egill Ólafsson, Kjartan Valde- marsson og Matthías Hemstock. 3. febrúar Í Þjóðmenningarhús- inu verður opnuð sýn- ing á ljósmyndum úr bókinni Íslendingar, eftir Unni Jökuls- dóttur rithöfund og Sigurgeir Sig- urjónsson ljósmyndara. Þau fóru vítt og breitt um landið í tvö ár, heimsóttu fólk, spjölluðu við það og tóku myndir. Sýningin stendur til 16. janúar og er opin alla dag á milli kl. 11 og 17. Fösturdagur Eva María Jónsdóttir Hugmynd sem rædd var með morg- unkaffinu: Í upphafi var starf- semi Sjónvarpsins skipt niður á þrjár deildir: frétta- og fræðslu- deild, lista- og skemmtideild og menntunar- og menningardeild. Hugsanlega má endurvekja þessi hlutverk fyrir heildina RÚV, því eitt af því sem veikir starf- semina ósegjanlega eru innan- hússkrytur og skilningsleysi á þeirri heild sem RÚV þarf að vera til að sinna öllum lands- mönnum. Fimmtudagur Torfi Rafn Halldórsson hugsar til Beddu systur og barnanna í Þist- ilfirði. Myndi hvorki vilja hafa ís- björn í garðinum mínum né villu- ráfandi og forheimska dýraverndunarsinna … gott ef björninn væri ekki skárri kostur. Jon Oddur Guðmundsson er að reyna að muna hvenær ísbirnir urðu hvítabirnir. Senni- lega aðeins seinna en Mexíkan- ar urðu Mexíkóar. Miðvikudagur Hrafn Jökulsson Fyrir þremur nóttum dreymdi mig átta ísbirni á vappi. Samkvæmt því eru sjö eftir … Ísleifur B. Þórhallsson Apple afhjúpar loksins nýja undratæk- ið. Ég sé núna að mig bráðvant- ar svona tæki núna strax! Mánudagur Guðrún Eva Mínervudóttir Ger- umst meðlimir í hópnum: Við vilj- um íslenskar kvikmyndir og sjón- varpsefni. Sunnudagur Inga Lind Karlsdóttir er þá búin að jafna sig eftir hið stórkost- lega þorrablót Stjörnunnar. Fjár- ans fjör var þetta. Ég held að Garðbæingar, og vinir þeirra, séu skemmtilegasta fólk á Íslandi. Fésbók vikunnar flett

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.