SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Síða 12

SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Síða 12
12 31. janúar 2010 L ífið er makindalegt hjá Arnóri Atla- syni á herbergi 525 á Marriott- hótelinu í Linz þegar blaðamaður nær tali af honum á háttatíma. Þetta er að kvöldi fimmtudags eftir sætan sigur á Norðmönnum, þar sem Arnór átti stórleik og skoraði tíu mörk úr tólf skotum. Og fyrsta spurningin lýtur að því, hvers vegna allt gangi upp hjá landsliðinu, sem ekki hefur tapað leik á Evrópumótinu. „Eigum við ekki að segja að það sé staðfest- ing á því að Ólympíuleikarnir voru engin heppni,“ svarar hann glaður í bragði. „Við er- um bara með helvíti gott lið og gaman að sjá að við sýnum smástöðugleika.“ – Hvað myndirðu segja að hafi breyst? „Kannski bara þetta skref sem við stigum, að ná árangri og vita hvað þarf til þess. Það þýðir ekkert að vera bara sáttur við að ná ár- angri, það verður að gera það að lífsstíl – að vera alltaf sólgnari og sólgnari, að ná í meira og meira. Nú hefur okkur tekist það, við vit- um hvað til þarf, og það er munurinn á okkur og Norðmönnum; þeir hafa aldrei komist í undanúrslit.“ – Þú hefur komið sterkur inn í landsliðið á mótinu! „Ég hef átt erfitt tímabil upp á síðkastið, verið meiddur í hnénu og fór í stóra aðgerð í mars. Það er þriðja aðgerðin á hnénu. Ég er að koma mér hægt og rólega í gang aftur, til dæmis hef ég næstum ekkert farið aftur fyrir miðju hjá FCK í ár. Ég hef sparað hnéð, bara spilað sóknina í vetur og ekki spilað mjög mikið. Ég var þannig séð á báðum áttum um hvort ég ætti að gefa kost á mér, var ekki viss um að hnéð myndi halda. En það er frábært að ég hef ekkert fundið til í hnénu, þó að ég Verður lífsstíll að ná árangri Arnór Atlason hefur komið inn í landsliðið af fít- onskrafti á Evrópumótinu eftir erfið meiðsli. Hann er markahæstur með 32 mörk og er gjarnan sá sem tekur af skarið á ögurstundu, en var á báðum átt- um fyrir mótið um hvort hann ætti að gefa kost á sér. Nú stendur hann á krossgötum með liði sínu í Danmörku, þarf að spýta í lófana til að ljúka BS- námi á næstu mánuðum og svo hlakkar hann til að fá fjölskylduna heim til Kaupmannahafnar. Arnór Atlason er stiginn upp úr meiðslum og hefur verið í lykilhlutverki hjá Íslendingum á Evrópumótinu. Morgunblaðið/Kristinn Handbolti Pétur Blöndal pebl@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.