SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Side 15
fyrstu árin í KA. Hún er líka ung komin í kvenna-
landsliðið og vonandi að hún nái að vinna sér inn fast
sæti þar. Davíð Örn bróðir minn spilar fótbolta með
Víking og stendur sig vel. Það er gott hjá honum að
fara í fótboltann svo við höfum nú einhvern til að sjá
um okkur á seinni árum!“
– Þú spilaðir líka fyrir Alfreð Gíslason hjá Magde-
burg.
„Ég fór til Magdeburgar þegar ég var tvítugur, en
þar fékk ég í raun aldrei mikinn séns svo að skiptin
til FCK voru mér lífsnauðsynleg.“
– Ég hef tekið eftir því, að á krítískum tímapunkt-
um í leikjum, þá hikarðu ekkert við að taka af skarið.
„Nei, ef vel gengur, þá er engin ástæða til að breyta
út af, þó að það sé undir lok leiksins. Auðvitað þarf
maður að hugsa betur um skotin sín og sjá til þess að
þau komist í markið. En við setjum upp ákveðin
leikkerfi, og ef maður verður varnarsinnaður, þá
ganga þau ekki upp – sóknarleikurinn fer í kaos.
Þannig að við verðum allir að spila eins og lagt er upp
með.“
– Þú ert 25 ára og samt talarðu eins og þú sért hok-
inn af reynslu!
„Já, ég hef upplifað margt. Ég fór snemma til
Magdeburgar og þetta er sjötta árið í atvinnu-
mennsku. Ég hef lært mikið, tekið þátt í fullt af úr-
slitaleikjum og meistaradeildarleikjum, og unnið
titla með liðinu mínu í Danmörku. Svo eru lands-
leikirnir farnir að nálgast hundrað. Maður lærir af
þessu. Mér finnst ég njóta þess að hafa farið snemma
út og þroskast snemma sem leikmaður.“
– Og ný kynslóð er farin að banka á dyrnar.
„Já, við erum þrír úr okkar unglingalandsliði, ég,
Ásgeir og Björgvin, sem urðum Evrópumeistarar árið
2003, og Aron og Ólafur spila með unglingalandslið-
inu sem er núna að ná góðum árangri á heims- og
Evrópumótum. Við spilum ekki á þessu landsliði
endalaust og það er mikilvægt að nýir menn taki við
keflinu og fái að kynnast þessum stórmótum. Aron
hefur tekið heilmikinn þátt og það vegur þungt –
maður býr að reynslunni. Ég veit það vel, því ég fór
21 árs til Túnis og þetta er fimmta stórmótið mitt.“
– Logi hefur alveg verið hvíldur.
„Við eigum hann inni. Það er aldrei að vita nema
hann komi sterkur inn. Það er gott að eiga einn
mann sem er óþreyttur og getur hjálpað til í lokin.“
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarss
Ólympíuleikarnir í Peking 2008, Guðjón Valur og Arnór ánægðir með silfrið.
Arnór byrjaði ungur að gefa samherjum sínum í KA góð ráð.
Hér er hann í leik gegn Víkingi árið 2003.
„Ég er að koma mér
hægt og rólega í gang
aftur, til dæmis hef ég
næstum ekkert farið
aftur fyrir miðju hjá
FCK í ár. Ég hef sparað
hnéð, bara spilað sókn-
ina í vetur og ekki spil-
að mjög mikið. Ég var
þannig séð á báðum
áttum um hvort ég ætti
að gefa kost á mér...“
Arnór átti stórleik á móti
Norðmönnum síðastliðinn
fimmtudag, þar sem hann
skoraði 10 mörk.
31. janúar 2010 15
Ekki gefst mikill tími til að hugsa um annað
en handbolta á Evrópumótinu, en þó eiga
strákarnir sínar stundir á milli stríða. „Þá er
maður bara í rólegheitum, spásserar um
borgina, les bók, horfir á bíómyndir í tölv-
unni eða á hina leikina í sjónvarpinu,“ segir
Arnór.
„En umfram allt verður maður að hugsa
vel um sig, næra sig almennilega, fara í
nudd og til sjúkraþjálfara. Við erum með frá-
bært teymi, nuddara, sjúkraþjálfara og
lækni. Svo verjum við miklum tíma í fundi,
að skoða andstæðinga okkar og okkur
sjálfa. Það gefst því ekki mikið frí á þessum
mótum.“
Hann segist hafa verið með Ásgeiri Erni í
herbergi frá því þeir voru saman í unglinga-
landsliðinu. „Ég hef eytt fleiri nóttum með
Ásgeiri en konunni minni árið 2010!“
– Þannig að það er kært með ykkur?
„Já, það skiptir miklu máli að eiga góðan
herbergisfélaga. Oft þarf að drepa tímann
og við erum orðnir sjóaðir í því.“
– Hvaða bók ertu að lesa?
„Ævisögu Bobs Knights, körfuboltaþjálf-
ara í Bandaríkjunum.“
– Ertu líka góður í körfu?
„Nei, ég get ekki neitt í körfubolta. En
það er gaman að lesa sér til um þessa
frægu þjálfara.“
–Áttu þér önnur áhugamál?
„Ég byrjaði í gítartímum með tveimur
strákum í liðinu í haust! Svo nú reyni ég að
spila á gítar við lítinn orðstír.“
– Ertu hjátrúarfullur fyrir leiki?
„Nei, í raunninni ekki. Ég var það á árum
áður. Ef mér gekk vel í leiknum, þá reyndi
ég að gera það sama daginn eftir, en það
er liðin tíð. Og ég er ekkert alltaf í sömu
sokkunum eða sömu nærbuxunum.“
Ekki alltaf í
sömu sokkunum
Logi og Arnór spóka sig um götur Túnisborgar
á HM 2005.