SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Blaðsíða 16
Og hann segist ekki liggja fyrir eftir tónleikana. „Ég leyfi mér
ekkert svoleiðis. Nú taka bara við næstu verkefni. Við spilum
aftur á tónleikum í kvöld [föstudag] og svo bíður okkar tiltektin
eftir styrktartónleikana. En það er að koma helgi og maður
verður bara veikur þá.“
Komono fékk góðar viðtökur við nýrri plötu, sem kom út 4.
desember í fyrra og nefnist „Kimono – Easy Music for Difficult
People“.
„Það var plata ársins í Morgunblaðinu, þriðja besta platan í
Fréttablaðinu og plata ársins á Rjómi.is,“ segir hann. „Ég er
þakklátur fyrir þessar góðu viðtökur. Við erum búnir að vera að
svo lengi, að við erum hálfgert „old boys“-lið í músíkinni, að
minnsta kosti miðað við böndin sem við erum að spila með. Svo
það er gaman að finna svona mikla jákvæðni þegar svo langt er
liðið á ferilinn – við eigum tíu ára starfsafmæli á næsta ári!“
Framundan er að klára túrinn með sveitunum sem Kimi Re-
cords gefur út, Morðingjunum, Me, The Slumbering Napoleon
og Sudden Weather Change. „Skörpum veðraskiptum ef þú
tekur RÚV á þetta,“ segir hann og hlær.
„Við erum klárum túrinn um miðja næstu viku. Svo hvílum
við okkur í þrjár vikur og undirbúum veglega útgáfutónleika í
byrjun mars. Eftir það fer Kjartan, trommarinn okkar, í barn-
eignarfrí, en hann og Júlí kærastan hans eiga von á barni í byrj-
un apríl. Þá ætlum við að hafa hægt um okkur fram á haust,
þegar við förum í Evrópuútgáfuna af plötunni okkar og leggj-
umst í ferðalög tengd því.“
Ú
tlitið var ekki gott fyrir tvenna tónleika sveitarinnar
Kimono á fimmtudagskvöld, því Gylfi Blöndal lá
með flensu fram eftir degi.
„En konan mín [Valdís Thor ljósmyndari] kom á
síðustu mínútu og eldaði ofan í mig kjúklingasúpu með engifer-
rót. Það gerði gæfumuninn,“ sagði hann galvaskur í samtali við
blaðamann daginn eftir tónleikana.
„Líðanin er aðeins skárri í dag. Ég held að ég hafi náð að rokka
þetta úr mér.“
Gylfi segir að styrktartónleikarnir hafi gengið afskaplega vel.
„Þetta voru frábærir tónleikar í alla staði. Það söfnuðust 220
þúsund krónur, sem er mjög gott. Ég held að öll böndin hafi átt
rosagóða tónleika og Mugison reif þakið af húsinu – ég hef aldrei
séð annað eins!“
Þetta var mikil yfirferð hjá meðlimum Kimono um kvöldið,
því sveitin spilaði fyrst á tónleikum í Hinu húsinu og svo á
styrktartónleikunum á Sódómu Reykjavík. „Þetta voru smá-
hlaup, en ekkert stress,“ segir Gylfi hæglátur. „Menn eru ýmsu
vanir. Það var líka fullt af fólki í Hinu húsinu, þéttsetinn bekk-
urinn. Og það er óhætt að segja að þetta hafi verið við-
burðaríkur og skemmtilegur dagur.“
Gylfi, Alex og Kjartan bíða baksviðs á Sódómu eftir að spila. Morgunblaðið/Ómar
Áhorfendur fylgjast grannt með í Hinu húsinu.
Alex McNeil pikkar í strengina,
einbeittur á svip.
Kjartan Bragi
Bjarnason
ber húðirnar
í Hinu húsinu.
Rokkaði flensuna úr sér
Bak við tjöldin
Texti: Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Myndir: Ómar Óskarsson og Kjartan Þorbjörnsson