SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Page 19

SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Page 19
31. janúar 2010 19 Það sem áður var púkó telst nú dyggð. Fyrir kreppu varð allt að vera nýtt, hvort sem það voru barnaföt eða bílar, en nú er litið upp til hinna nýtnu, þeirra sem nýta hlutina og endurnýta. Í því sjá sex konur á Akranesi tækifæri í krepp- unni og ætla að opna barna- fata- og baðvöruverslun. Gangi áætlanir þeirra eftir munu notuð barnaföt brátt ganga í endurnýjun lífdaga. Ein kvennanna er Thelma Sjöfn Hannesdóttir, 25 ára þriggja barna móðir, sem er í fjarnámi að læra til sjúkraliða. „Ætlunin er að stofna verslun, sem sel- ur vel með farin notuð barnaföt,“ segir Thelma. „Foreldrar geti komið með föt og selt okkur eftir vigt og við seljum þau öðrum foreldrum. Einnig ætlum við að bjóða upp á skipti á fötum, foreldrar geta þá skipt á fötum, sem börnin þeirra eru vaxin upp úr, og fengið föt, sem passa, í staðinn.“ Í versluninni er þó ekki ætlunin að vera aðeins með barna- föt. Þar á að bjóða upp á baðvörur fyrir fólk á öllum aldri. Kynning á fyrirtækinu er þegar hafin. Á mánudag var fyr- irtækið sett upp á Facebook og eignaðist 100 aðdáendur á tveimur dögum. Verslunin hefur hlotið nafnið Barbamamma og er stefnt að því að opna í september. Að framtakinu standa ásamt Thelmu þær Lilja Dögg Guð- mundsdóttir, Eva Björk Pétursdóttir, Katrín Ösp Guðjóns- dóttir, Vilborg Helga Ólafsdóttir og Líney Harðardóttir. „Það kemur á óvart hvað sumt er auðvelt í sambandi við undirbúninginn,“ segir Thelma. „En annað er flókið. Það er erfitt að gera viðskiptaplan, en maður ætti að vera fljótur að ná þessu. En áhuginn þarf að vera til staðar.“ Þarf að hafa áhuga Thelma Sjöfn Hannesdóttir Í járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga er ekki jafnmikla vinnu að hafa og áður. Auðunn Sigurðsson er einn þeirra, sem nú finna fyrir samdrættinum í járnblendinu. Í gær varð hann tvítugur og tækifærin eru ekki á hverju strái. „Ég er orðinn leið- ur á að vera atvinnulaus,“ segir hann. Þegar ekkert er að hafa verða menn að grípa til sinna eigin ráða. Auðunn hefur verið í skóla og stefnir á frekara nám, en þessa dagana er hann í frumkvöðlasmiðjunni og kominn á skrið ásamt þremur öðrum þátttakendum í námskeiðinu, Haraldi Má Haraldssyni, Guðjóni Jónssyni og Snædísi Mjöll Magnúsdóttur, með að móta sína eigin viðskiptahugmynd. Á teikniborðinu er tillaga að þjónustufyrirtæki, sem selur fæðubótarefni og veitir ráðgjöf um notkun þeirra. Auðunn þekkir þennan heim út og inn: „Ég hef verið í lík- amsrækt frá því ég var 14 ára og meðal annars stundað hnefa- leika,“ segir hann. „Það vantar svona verslun á Akranesi og því datt okkur þetta í hug. Ég veit að það er mikill áhugi á líkamsrækt hér.“ Hópurinn er búinn að finna húsnæði og er að kanna hvort það borgar sig að kaupa fæðubótarefni í gegnum heildsala hér á landi eða leita beint til framleiðenda erlendis. Nafnið hefur ekki verið ákveðið, en tveir kostir koma til greina, Skaga- sport eða Úthald og styrkur. Þeir sem leggja í að stofna fyr- irtæki í þessu árferði þurfa örugglega bæði úthald og styrk, en það þarf líka að veðja á réttan hest. Um þessar mundir virðist áhugi á líkamsrækt fara vaxandi og það ætti að ýta undir eftirspurn eftir fæðubótarefnum. Úthald og styrkur Auðunn Sigurðsson hanna bækling. Aðrir eiga kannski mjög gott með að tjá sig og þeir verða þá í for- svari. Þeir sem eiga gott með að skrifa sjá um kynningarefnið. Síðan er að finna hina talnaglöggu. Þannig fær hver sitt verkefni og verkefni við sitt hæfi. Við reynum að vinna í því að hver uppgötvi sína sterku hlið. Allir hafa sinn styrk og það er merkilegt hvað maður kemur oft auga á eitthvað óvænt þar.“ Kjarninn í Frumkvöðlasmiðjunni er að kveikja áhuga. „Þau þurfa ekki að sitja hér undir löngum fyrirlestrum og vilja það ekki,“ segir Ágúst. „Þetta er ekki ítroðsla, sem er farin út daginn eftir. Þau eiga að vinna og á milli er kennsla. Við reynum einnig að tengja þetta út í at- vinnulífið, fáum fólk til að koma úr at- vinnulífinu og segja frá eigin reynslu. Það getur verið mikilvægt að fá innlegg frum- kvöðla, sem jafnvel hafa sjálfir þurft að berjast gegnum lífið eins og gengur.“ Annað markmið er að slá á þá fyr- irvara, sem krakkarnir kunna að hafa gagnvart háskólanámi. „Það er mjög mikilvægt þegar unnið er með fólki, sem ef til vill hefur ekki mikla menntun og er jafnvel hrætt við háskóla- umhverfi, að sýna þeim hvað háskólalífið getur verið skemmtilegt,“ segir Ágúst. „Í Bandaríkjunum er lögð áhersla á að fara með þátttakendur í svona námskeiðum í háskóla og sýna þeim hvað þar getur ver- ið gaman. Við fórum á Hvanneyri á þriðjudag og þar talaði nemandi við þau á þeirra máli. Þannig kviknar áhuginn.“ að fá krakkana til að koma auga á tækifærin, sem eru í nærum- hverfinu. Það finnst mér vera markmiðið með verkefninu. Þau mættu síðdegis á föstudegi, vissu ekkert út í hvað þau voru að fara, en voru hrist saman á fyrsta klukkutímanum. Þau mótuðu hugmyndir sínar yfir helgina og voru svo áhugasöm að það var varla hægt að koma þeim í hátt- inn. Um miðjan dag á sunnudegi kynntu þau hugmyndirnar og það var frábært að sjá hvað þau höfðu náð miklum árangri á svona stuttum tíma. Þetta myndi ég vilja sjá í auknum mæli inni í virkja hvern og einn. Sumir at- vinnuleitendur eiga að baki rofna skólagöngu, aðrir væru í skóla en hafa ekki efni á því. Aðstæðurnar og ástæður fyrir því að fólk er í þessari stöðu eru af ýmsum toga. Í Frumkvöðlasmiðjunni fá þau leiðsögn við að setja sér markmið og læra að varða leiðina til að ná þeim. Inga Dóra: Þessu verður síðan fylgt eftir á vegum SSV-þróunar og ráðgjafar, sem mun aðstoða þau, sem vilja þróa sínar hug- myndir áfram, við að gera við- skiptaáætlanir og fleira. Guðrún: Vinnumálastofnun á Vesturlandi er einnig að vinna að verkefni með Akranesdeild RKÍ og Fjölskyldustofu Akraneskaup- staðar til að bregðast við auknu atvinnuleysi. Það felst í því að skapa ungu fólki húsnæð- isaðstöðu, grundvöll til góðra verka. Um er að ræða eins konar hugmyndasetur þar sem áhuga- samir fá aðstoð og stuðning til þess að sinna uppbyggjandi verkefnum og jafnvel skapa sér eigin tækifæri. Þannig geta þeir sem vilja vinna frekar með hug- myndirnar í Frumkvöðlasmiðj- unni nýtt þá aðstöðu. Markmiðið er þó ekki að allir stofni fyrirtæki. Það er ekki aðal- atriðið. En hafi þau áhuga á því er einnig hægt að sækja um styrk til Vinnumálastofnunar til þróunar á eigin viðskiptahugmynd. Sá styrkur felur í sér að þau halda atvinnuleysisbótunum í sex mánuði og eru undanþegin ann- arri atvinnuleit á meðan. Nokkrir hafa þegar farið þessa leið og ekki útilokað að einhver geri það í þessum hópi. Þetta gefur fólki sýn og opnar augu þess fyrir því að það eru möguleikar. Inga Dóra: Það skiptir svo miklu máli að hafa trú á sjálfum sér, það byrjar allt þar. Hekla: Af þessari ástæðu ákváðum við að fara með hópinn í ferð á Hvanneyri, í Landbúnaðarháskóla Íslands og mörg þeirra höfðu ekki áttað sig á því að þarna er líka nám á framhaldsskólastigi og mikið af því er starfstengt. Háskólalífið var kynnt fyrir þeim og hvernig er að búa á staðnum og að það er að mörgu leyti auðveldara til dæmis að vera með börn þar en á höfuðborgarsvæðinu. Inga Dóra: Mér finnst mik- ilvægt að svona heimsóknir séu hluti af smiðjunni. Margir hverjir hafa ekki komið á Hvanneyri og vissu ekki út á hvað skólinn gengur. Það er líka hluti af smiðjunni að fara með þátttakendur í fyrirtæki og tengja þannig smiðjuna við atvinnulífið. Ég hef miklar áhyggjur af unga fólkinu, þessum aldurshópi, sem hefur verið atvinnulaus mán- uðum saman. Mér finnst mjög brýnt að aðstoða þau við að komast bæði inn í skólakerfið og skapa þeim atvinnu að einhverju marki. Við munum leggja okkar af mörkum hér til að bregðast við og bjóða upp á námsúrræði fyrir þennan aldurshóp. Stjórnvöld hafa ákveðið að verja töluverð- um fjármunum í átakið „Ungt fólk til athafna“ og það gerir okkur kleift að fjármagna m.a. fleiri frumkvöðlasmiðjur, en á næstu vikum ætlum við að bjóða upp á tvær til viðbótar á Akra- nesi, eina smiðju í Borgarnesi og eina smiðju á Snæfellsnesi. Hekla: Það þarf einnig að eiga sér stað ákveðin hugarfarsbreyt- ing hjá mörgum gagnvart vinnu. Það hefur verið svo auðvelt að fá vinnu og því lítil áhersla oft á því að standa sig vel í vinnu. Ef þér leiddist í vinnunni, þá gastu bara fengið þér aðra, en núna er ástandið ekki þannig. Þess vegna vantar smá aga til að halda sér að vinnunni jafnvel þótt það sé ekki draumavinnan. Það er meðal annars það sem farið er í gegnum í Frumkvöðlasmiðjunni. Nem- endurnir hafa í mörg horn að líta og það sem þarf að gera er ekki allt jafnskemmtilegt en það þarf að gera þessa hluti engu að síður. Inga Dóra: Mér finnst líka mikilvægt að koma því inn hjá unga fólkinu að bera virðingu fyrir verðmætum. Þau hafa ákveðnum skyldum að gegna sem þjóðfélagsþegnar en það þarf líka að koma atvinnulífinu á betra skrið til þess að ungt fólk komi ekki að luktum dyrum þegar það kemur út á vinnu- markaðinn. Við leggjum, í það minnsta, okkar af mörkum til að virkja unga fólkið okkar og fá það til að koma auga á tækifærin sem eru allt um kring og sýna því verk- færin sem það getur notað til að nýta sér þessi tækifæri. framhaldsskólakerfinu. Ég hef ekki fylgst með verkefninu hér frá degi til dags, en sýnist þessi árangur vera að nást. Guðrún: Það sama er að gerast hér. Það er mjög mikilvægt að virkja þennan hóp og þau eru fljót að taka við sér. Þau læra að setja sér markmið, finna leiðir til að ná þeim og sjá fleiri mögu- leika. Fyrir utan það hafa þau nóg að gera allan tímann og kynnast. Félags- og trygginga- málaráðuneytið fór af stað um áramótin með verkefni undir kjörorðinu „Ungt fólk til at- hafna“ og um það snýst þetta, að Morgunblaðið/RAX

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.