SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Page 23

SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Page 23
31. janúar 2010 23 S ú skoðun okkar Íslendinga að við séum komnir af konungum er ekki ný af nálinni og varð engin breyting á þótt við hætt- um að hafa yfir okkur kónga sem flestir voru danskir og bjuggu úti í Kaup- mannahöfn. Þessir dönsku kóngar hétu ýmist Friðrik eða Kristján og voru númeraðir, fyrsti, annar, þriðji og svo framvegis. Þetta hefur okkur kóngunum á Íslandi aldrei tekist að læra, að núm- era menn. Það er þá helst í gríni. Þess er til að mynda getið að markmaðurinn sem fékk á sig fjórtán mörk í lands- leiknum við Dani hér um árið hafi feng- ið viðurnefnið fjórtándi. Við höfum varla átt seníora og júníora og alltaf átt í vandræðum með ættarnöfn og þótt ein- kennisbúningar hlægilegir. Til dæmis hélt amma mín að bresku hermennirnir sem hernámu landið í seinni heims- styrjöldinni væru skátar með fíflalæti. Því er jafnvel trúað að menn missi skopskyn sitt séu þeir færðir í einkenn- isbúning, enda hafa þeir færst mjög í aukana eftir því sem þjóðfélag okkar hefur glatað skopskyninu en meira lagt upp úr hinum nýju dyggðum fégræðgi og flottræfilshætti. Skopskyn gróða- hyggjunnar er oft blanda af mikil- mennskubrjálæði og áfengissýki í stíl við: Ég á það, ég má það, eins og auð- kýfingurinn sagði við flugfreyjuna þegar hún taldi hann hafa drukkið of mikið og vildi ekki láta hann fá meira að drekka, en auðkýfingurinn hafði þá nýverið keypt flugfélagið í skuldsettri yfirtöku, og fékk sér einkaþotu skömmu síðar. Eins eru hefðarfrúr sem ekkert vita um lífskjör almennings, líkt og drottningar okkar forðum, svo til nýjar af nálinni, en þær er helst að finna í vinnumiðl- uninni í kringum stjórnmálaflokkana. En ekkert af þessu breytir þeirri stað- reynd að við Íslendingar erum komnir af konungum og í þeim efnum sat allt við sama keip þótt við hættum að til- heyra konungsríki og yrðum að lokum lýðveldi. Nei, þvert á móti: Við þau tímamót fylltist landið af smákóngum, þótt auð- vitað væri talsvert af þeim fyrir, enda rekjum við uppruna okkar til slíkra manna, smákónga. Við erum smákóng- ar. Okkar kóngum hefur verið lýst á ýmsa vegu og hlotið margvíslegar nafn- giftir: víkingar, sjóræningjar, búhöldar, höfðingjar og afdalakóngar. Sumir þeirra eru sagðir „rísa tignarstórir úr fornaldarnóttinni og spyrna enni við himinhvelinu“, en þannig lýsir Halldór Laxness konungunum í Heimskringlu eftir Snorra Sturluson. Þessum for- feðrum okkar, smákóngunum, var rutt úr vegi þegar Noregur var sameinaður undir einn konung, Harald hárfagra, sem neitaði að láta klippa sig fyrr en sameining væri í höfn, enda alltaf teiknaður eins og hippi í sögukennslu- bókum. Sumir gáfu sig undir vald Har- aldar en okkar forfeður sigldu hingað til Íslands og námu hér land. Í því ljósi getum við þakkað Haraldi hárfagra sagnalist okkar forna. Afkomendur smákónganna vildu halda nafni þeirra á lofti og gerðu sér lítið fyrir og skópu sí- gildar bókmenntir eða voru með menn í því. Orðstírinn, heiðurinn var þeirra mál, en lærðir menn færðu til bókar. Í þeim er Haraldar hárfagra getið og son- ar hans Eiríks og ekki síst Gunnhildar, drottningar Eiríks. Gunnhildur hélt við marga af útrásarvíkingum fornaldar, bæði Þórólf úr Eglissögu og Hrút úr Njálssögu. Hún var rammgöldrótt, enda náði hún valdi á bæði hugum þeirra og limum. Hún gat ekki sætt sig við að Hrútur sængaði hjá konu sinni á Íslandi og gerði þeim ókleift að njóta ásta. Þessar fornu sögur verða ekki frá okkur teknar hvað sem líður skuld- bindingum við alþjóðasamfélagið, sem svo er nefnt. Að vísu hafa Norðmenn stundum reynt að hnupla þeim frá okk- ur og kallað þær norskar, en það er þá kannski svipaður ruglingur og þegar Gunnhildur drottning var að ruglast á eiginmanni sínum og íslenskum mönn- um. Nú finnast líka kaldhæðnir menn sem segja að þegar fyrstu skattalögin voru kunngerð í Noregi þá hafi allir sem kunnu að lesa flúið til Íslands, enda skattsvik löngum talin ein af þjóðar- íþróttum okkar og svört vinna stunduð um hábjartan dag. Líklega stenst þessi söguskoðun þó ekki þá nagandi gagn- rýni músanna sem við hér á Íslandi er- um ofurseld þessi dægrin, nú þegar hamfarir fjármálakreppu og spilling- armála ríða yfir landið, en hún er góð fyrir hláturtaugarnar og eflaust aðrar taugar líka. Meira að segja Norðmenn hlæja þegar ábyrgðarlaus Íslendingurinn slengir þessu fram, enda þykir Norð- mönnum vænt um okkur og þeir vor- kenna okkur vegna þess hvað við erum vitlausir og sjálfumglaðir og eigum vond yfirvöld. Þessi kenning um hátekju- skattsflóttamennina er eflaust af sama meiði og sú að skortur á fögrum konum á Englandi stafi af því að víkingar hafi á sínum tíma numið þær allar á brott og haft með sér hingað norður í höf svo þeir gætu hlýjað sér og þeim fjölgað. Gott dæmi um þetta er sagan af Mel- korku konungsdóttur af Írlandi sem Höskuldur Dalakollur, nafnfrægur mað- ur bæði í Noregi og á Íslandi, eins og segir um hann í Laxdælu, keypti á sam- komu austur í Brenneyjum af Gilla hin- um gerska. Höskuldur hélt að hún væri mállaus en hún neitaði að tala af mót- þróa við ánauð sína. Hún ól Höskuldi son og var hann bæði mæltur á hennar keltnesku tungu sem og norræna tungu föðurins. Er það stórmerk saga. Hös- kuldur var bróðir Hrúts sem Gunn- hildur fíflaði í Njálu en í fornsögunum er strax komin þessi nútímalega tækni bókmenntanna að láta persónur flakka á milli sagna. Ekki veit ég hvort rekja megi reiði Gordons Browns í garð Ís- lendinga til þessara fornu kvennamála, en það er þá ekkert víst að hann geri sér grein fyrir því sjálfur, því gera má ráð fyrir að Gordon Brown hafi dulvit- und eins og aðrir menn og viti ekki alltaf nákvæmlega hvað hann er að hugsa. Ekki alls fyrir löngu reiddist hann sjónvarpsspyrli sem vildi vita hvort hann væri á lyfjum og hann er sagður henda símum í fólk. Ég hætti mér ekki út í þá sálma hér, jafn illa og komið er fyrir okkur Íslend- ingum á alþjóðavettvangi. Gordon Brown gæti sett á okkur einhver enn önnur lög og það væru þá ekki nein Bítlalög. Hinu má halda fram með gild- um rökum að til séu staurblankir Bretar vegna þess að íslenskir auðjöfrar stálu sparifé þeirra eða réttara sagt, þeir tóku við fé þeirra og lánuðu það til vina sinna sem eyddu því í tóma vitleysu. Það er þó viss sárabót fyrir Bretana að íslensk alþýða mun þurfa að borga brúsann, en íslensku auðjöfrarnir sem stundum voru kallaðir útrásarvíkingar stálu einfaldlega öllu steini léttara og keyptu fyrir það leikföng, þotur og snekkjur, skíðabrekkur og lúxusíbúðir, og héldu veislur þar sem þeir leyfðu stjórnmálamönnum að leika sér og bankamönnum að skemmta sér og það ekki í smáum stíl ef marka má reikn- inga frá fylgdarkonuþjónustum og fleiri kjaftasögur sem sagðar hafa verið eftir að allt hrundi, en þó mun enginn þeirra hafa komið heim með írska konungs- dóttur eins og Höskuldur Dalakollur forðum, enda engir kóngar á Írlandi lengur. Íslenskir kóngar Skoðun Einar Már Guðmundsson

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.