SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Side 24
24 31. janúar 2010
„Hugmyndin að barnaþingi fæddist á Íslandi. Fyrir
tveimur árum fór ég með erlenda vini mína á Þingvöll og
sagði þeim frá elsta þingi í heimi. Nokkrir í hópnum eru
mjög virkir í góðgerðarsamtökum víða um heim. Við fór-
um að tala saman og skiptast á skoðunum og þá kom
hugmyndin um barnaalþing. Við ætluðum upphaflega að
hafa höfuðstöðvar þess á Íslandi en þá varð bankahrunið
og áætlanir breyttust. Höfuðstöðvarnar eru í Vín og þar
hef ég verið að starfa. Ég flakka mjög mikið milli London
og Vínarborgar.
Ég hef kynnst afar áhugaverðu fólki sem vill helga sig
því að gera heiminn betri. Þarna eru meðal annarra Kerry
Kennedy, dóttir Roberts Kennedy, Rabbi David Rosin frá
Jerúsalem og Betty Williams, nóbelsverðlaunahafi frá
Norður-Írlandi. Samtökin Kids Parliament voru stofnuð í
fyrra og frá þeim tíma höfum við verið að undirbúa fyrsta
barnaþingið sem haldið verður í haust. Kids Parliament
er í samvinnu við Sameinuðu þjóðirnar. Kynning á því
fer fram í mars eða apríl, mjög líklega líklega í Abu Dhabi,
höfuðborg Sameinuðu arabísku furstadæmanna.“
Hvernig fer þetta þing fram?
„Barn frá hverri þjóð kemur á þingið. Túlkar verða fyr-
ir börnin og fullorðnir hafa umsjón með þinginu en
ég er ekki gullsmiður. Þarna kom innblástur inn í líf mitt,
lífsfylling og mikil ástríða. Mig langaði til að söðla alveg
um og fór að hanna skartgripi. Ég tók mikla áhættu, eins
og fólk gerir þegar það fer út fyrir rammann. En ég tók
það skref vegna þess að ég vildi fylgja ástríðu minni og sé
ekki eftir því. Það sem ég er að gera núna færir mér meiri
lífsfyllingu en fyrri störf mín. En vitaskuld er þetta erf-
iðara en ef ég væri starfandi fyrir stórfyrirtæki.“
Börn á þingi
Hvernig skartgripir eru þetta sem þú hannar?
„Ég nota mikið af stórum steinum sem eru grípandi
fyrir augað og mér finnst gaman að vinna með liti. Ég er
með ódýrari línu úr silfri en hún er samt mjög glamúrleg
og gulllínu með eðalsteinum. Eins og staðan er í dag þá
fer ég rólega og vel aðrar leiðir en ég hefði annars gert. Ég
er afskaplega sátt við það.“
Þú nefndir Indland, hvernig upplifðirðu það land?
„Ég er mjög hrifin af Asíu, fólkinu sem býr þar og
menningarheimi þess. Ég hef áhuga á fólki, hvaðan það
kemur og af hverju það er eins og það er. Mér finnst gam-
an að sjá þróunina í hverju landi fyrir sig. Ég bjó í Japan
um tíma og þar er yndisleg orka. Indland er líka af-
skaplega fallegt land og áhugavert á svo mörgum sviðum.
Þar er mikil fátækt en fólk er samt merkilega hamingju-
samt.“
Ertu andlega leitandi?
„Ég mundi segja að ég væri mjög andleg. Þegar ég var
unglingur las ég bækur um Dalai Lama meðan vinkon-
urnar lásu ástarsögurnar. Ég hef hitt Dalai Lama og hann
er einn af mínum uppáhaldsmanneskjum.
Heimurinn er mjög lítill og er stjórnað af mjög fáum.
Við manneskjurnar erum orka en við nýtum þessa orku
misvel. Maður velur sér ákveðna leið og lýtur handleiðslu
æðri krafts. Heimurinn er á hraðri uppleið á tíðnibreyt-
ingum, til dæmis kallar allt sem er að gerast í fjár-
málaheiminum á breyttar forsendur. Út úr þessu munu
koma betri hlutir, þar á meðal stöðugleiki.“
Hver átti hugmyndina að barnaþinginu sem þú ert nú
að vinna að?
H
endrikka er lærður viðskiptafræðingur með
mastersgráðu í alþjóðlegum viðskiptum en
árið 2004 ákvað hún að snúa sér að hönnun
skartgripa. „Ætli ég sé ekki bara of andlega
sinnuð fyrir hinn harða viðskiptaheim,“ segir hún. „Mér
fannst hann oft hrár og þungur, stundum leiðinlegur.
Þótt það hafi verið og sé gífurlega góð reynsla að vinna í
viðskiptageiranum þá vantaði mig alltaf nauðsynlegt
jafnvægi við listina og hið andlega. Ég er alin upp í mikilli
list, móðir mín fór mikið með mig á málverkasýningar
þegar ég var barn, og ég hef alla tíð verið frekar listræn í
mér.“
Fylgdi ástríðu minni
Hvernig er þinn ferill í viðskiptum?
„Ég byrjaði átján ára gömul að flytja inn silkiblóm frá
Bandaríkjunum og ásamt móður minni rak ég silki-
blómabúð í ellefu ár. Þannig byrjaði viðskiptaáhuginn og
sá listræni kannski líka, því silkiblóm má vel flokka sem
listmuni. Mig hafði alltaf langað til að læra og þegar ég
eignaðist son minn 27 ára gömul dreif ég mig í við-
skiptanám erlendis og valdi Bandaríkin. Eftir það fékk ég
tilboð um að vinna sem markaðsstjóri Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna í Moskvu. Ég flutti þangað. Þá var
mikill hagvöxtur og uppgangur í Rússlandi en svo féll rú-
blan skyndilega og efnahagslífið hrundi 16. ágúst 1998.
Þarna var ég í tæp þrjú ár, í mjög hörðu og erfiðu um-
hverfi þar sem nær engum stökk bros. Á hverjum degi
mætti ég áskorun og þurfti að takast á við þung verkefni.
Stundum leið mér eins og ég væri í bíómynd og ég þurfti
að klípa mig til að átta mig á að þetta líf væri raunveru-
leiki. Þetta var mjög krefjandi tími sem reyndi mikið á
mig en þegar ég lít til baka geri ég mér grein fyrir því að
þarna voru mín bestu ár. Þessi reynsla herti mig og
þroskaði, eins og erfiðleikar gera yfirleitt.
Eftir dvölina í Rússlandi vann ég fyrir bandarískt
tölvufyrirtæki sem var með útibú í Bretlandi og þar hef ég
verið síðan. Árið 2004 var ég á ferð um Indland. Þá tók ég
eftir gimsteinum. Þarna var eitthvað sem heillaði mig.
Þannig að ég teiknaði nokkra hringi og lét búa þá til því
Viðtal
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@mbl.is
Í morgunmat
með Obama
Hendrikka Waage skartgripahönnuður er forseti Kids
Parliament, góðgerðarsamtaka sem eru með höfuð-
stöðvar í Vín og standa að alþjóðlegu barnaþingi sem
fyrirhugað er að halda á hverju ári. Hún hefur nýlokið
við að skrifa barnabók til styrktar samtökunum og er
auk þess framleiðandi að kvikmynd sem stendur til að
gera eftir Baróninum, skáldsögu Þórarins Eldjárns.
Hendrikka er á miklum ferðalögum vegna starfa sinna
og í næstu viku borðar hún morgunverð með Barack
Obama í Washington.
’
Hér fæddist ég og ólst upp en
samt finnst mér stundum eins og
ég sé ekki héðan. Sennilega er ég
bara frjáls andi. En vitanlega þykir
mér afar vænt um Ísland. Í sautján ár
hef ég búið í nokkrum löndum en þegar
erfiðleikar steðja að íslensku þjóðinni
finn ég að Íslendingurinn í mér vakn-
ar, ástin til landsins blossar upp og þá
langar mig til að taka þátt í að færa
hlutina til betri vegar.“