SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Blaðsíða 26

SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Blaðsíða 26
26 31. janúar 2010 S l. miðvikudag birtist frétt á mbl.is þar sem sagði m.a.: „Daniel Gros, framkvæmda- stjóri miðstöðvar um Evrópu- rannsóknir, lýsti þeirri skoðun á mál- þingi á vegum Norðurlandaráðs í gær að Íslendingar ættu þegar að hefja endur- greiðslu lána í stað þess að safna skuldum og þá gæti hagvöxtur hafizt að fimm ár- um liðnum …“ Ég lít svo á að þetta snúist ekki um fjárhagslega aðstoð. Reyndar skulda Íslendingar mikið en þeir þurfa kannski helzt aðstoð við að endur- fjármagna skuldirnar … Hann ítrekaði þá skoðun, að Íslendingar ættu ekki að þiggja fleiri lán, hvorki frá Alþjóðagjald- eyrissjóðnum né öðrum. Þá ættu Íslend- ingar að draga enn frekar úr neyzlu, ekki halda genginu óeðlilega háu og hefja taf- arlaust endurgreiðslur á lánum í stað þess að ýta á undan sér skuldabyrðinni. Daniel Gros er fulltrúi Framsókn- arflokksins í stjórn Seðlabanka Íslands og hagfræðingur að mennt. Eitt sinn sagði vinstrisinnaður stjórn- málamaður frá miðbiki 20. aldarinnar við mig af nokkrum þunga: ég er íhalds- maður á almannafé. Með ummælum sín- um er Daniel Gros að boða íhaldssama stefnu í rekstri þjóðarbúsins. Hún þýðir í raun enn frekari skerðingu á lífskjörum í nokkur ár en boðar betri tíð að þeim ár- um liðnum. Kjaraskerðingin, sem nú þegar hefur komið til framkvæmda er fólki þungbær. Hækkanir á beinum sköttum, sem komu til framkvæmda í byrjun árs draga enn frekar úr ráðstöf- unarfé fólks. Boðaður niðurskurður á op- inberum útgjöldum á næstu árum hlýtur að leiða til verulegrar fækkunar op- inberra starfsmanna. Honum verður ekki náð fram með öðrum hætti. Að ganga lengra á þessari braut yrði þjóðinni afar þungbært en ávinningurinn hins vegar mikill að þessum tíma lokn- um. Þess vegna eru sjónarmið Daniel Gros verð umræðu. Þau snúast um grundvallaratriði í viðbrögðum þjóð- arinnar við bankahruninu. Mismunandi leiðir í þeim efnum hafa ekki komið til umræðu að nokkru marki. Hugmyndir hins erlenda hagfræðings snúast um það að taka sársaukann út nú í stað þess að gera það síðar. Því er haldið fram í erlendum fjöl- miðlum að þetta sé sú leið sem Írar hafi valið frammi fyrir bankakreppunni, sem komið hefur illa við fjárhag þeirra, sem þó hefur ekki orðið með jafn af- drifaríkum hætti og hér. Írar hafa valið þá leið að ganga hart fram í niðurskurði opinberra útgjalda og hafa hlotið lof fyrir á alþjóða vettvangi. Svo virðist sem litið sé til Írlands sem fyrirmyndar í þessum efnum, alla vega innan evru- svæðisins. Fyrir nokkrum vikum ráð- lagði Lex í Financial Times (skoð- anadálkur sem nýtur virðingar um allan heim) Íslendingum að fara að fordæmi Íra. Niðurskurður ríkisútgjalda á þessu ári nemur um eða innan við 10%. Um þenn- an niðurskurð urðu ekki miklar svipt- ingar við afgreiðslu fjárlaga, sem bendir til að hann gangi ekki mjög nærri sam- félaginu. Ríkisstjórnin vildi frekar hækka skatta. Það er óneitanlega vísbending um að hún víki sér undan mjög sársauka- fullum aðgerðum. Er vit í því? Stjórn- arandstöðuflokkarnir mæltu gegn skattahækkunum en þeir lögðu ekki fram róttækar tillögur um niðurskurð á ríkisútgjöldum. Er það vísbending um að þeir séu heldur ekki tilbúnir til að taka nægilega fast á málum? Það er margt sem mælir með þeirri leið sem Daniel Gros bendir á en svo róttækri og íhaldssamri stefnu í rekstri þjóðarbús- ins þarf að fylgja tvennt: annars vegar öflugra öryggisnet fyrir þá sem minnst mega sín og hins vegar áþreifanleg von um betri tíð en ekki bara fyrirheit. Sterkara öryggisnet fyrir þá sem þurfa á því að halda verður ekki búið til með auknum fjárframlögum til almanna- trygginga enda eru þeir peningar ekki til. Það verður einungis gert með víðtækari tekjutengingu, þ.e. tilfærslum frá þeim, sem þurfa síður á því að halda til þeirra, sem sannanlega þurfa á því að halda. Ný uppbygging í atvinnumálum er for- senda þess að þjóðin öðlist trú á framtíð- ina í þessu landi. Orðin ein duga ekki í þeim efnum. Við eigum tvær auðlindir. Fiskinn í hafinu og orkuna í fallvötnum og iðrum jarðar. Sjávarútvegurinn blómstrar og á sér bjarta framtíð. Pólitísk sjálfhelda á milli stjórnarflokkanna kem- ur í veg fyrir að við höldum áfram við nýtingu þeirrar orku sem við eigum. Stjórnarflokkarnir reyna að fela þessa óþægilegu staðreynd með því að halda því fram að hér gerist ekkert nema Ice- save verði samþykkt. Þetta er rangt. Hér ríkir stöðnun í atvinnumálum og vaxandi atvinnuleysi vegna þess að Samfylking og Vinstri grænir koma sér ekki saman um virkjanir og nýja stóriðju. Nýjar virkjanir og stóriðja þeim tengd eru forsenda fyrir því að atvinnu- uppbygging geti hafizt á ný og ný störf orðið til. Það er engum náttúruverðmæt- um fórnað með því að virkja við Þeista- reyki og í neðri hluta Þjórsár og byggja álver á Bakka. Vilji Vinstri grænir láta taka sig alvarlega við stjórn landsins til frambúðar verða þeir að horfast í augu við þennan veruleika. Þeir munu ekki komast upp með það til lengdar að þvæl- ast fyrir eðlilegum framkvæmdum við nýtingu annarrar mestu auðlindar þjóð- arinnar. Þegar horft er til uppbyggingar sam- félags okkar úr rústum bankahrunsins eru grundvallarþættir hennar nokkuð skýrir: Íhaldssemi í meðferð almannafjár, rót- tækari niðurskurður opinberra útgjalda og öflug uppbygging virkjana og stóriðju. Íhaldssemi í meðferð almannafjár Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@mbl.is S extán ára gömlum kanadískum hippa, David Milgaard, brá heldur betur í brún þegar hann var tekinn höndum á heimili sínu í Regina í lok maí 1969, grunaður um morðið á tvítugum hjúkrunarfræðinema, Gail Miller. Hann hafði aldrei heyrt hennar getið og sór af sér glæpinn. Lögregla taldi sig á hinn bóginn hafa skothelt mál í höndunum. Sannað var að Milgaard hafði verið staddur í bænum Saskatoon þegar lík Miller fannst þar í snjó- skafli, 31. janúar 1969. Henni hafði verið nauðgað. Milgaard hafði verið á ferðalagi um kanadísku slétt- urnar á þessum tíma ásamt tveimur félögum sínum, Ron Wilson og Nichol John, og í Saskatoon tóku þeir fjórða piltinn upp í bílinn, kunningja sinn Albert Cadrain. Það var hann sem benti lögreglunni á Milgaard. Sagði hann hafa orðið viðskila við félaga sína þennan örlagaríka dag og snúið aftur með blóðbletti á fötunum. Síðar við- urkenndi Cadrain að hann hefði einkum haft áhuga á fénu, tvö þúsund Kanadadölum, sem heitið var öllum þeim sem gefið gætu upplýsingar í málinu. Nokkrum mánuðum síðar var Cadrain lagður inn á geðsjúkrahús. Hann var víst sannfærður um að hann væri sonur Drott- ins. Wilson og John fullyrtu í fyrstu að þeir hefðu verið með Milgaard allan þennan dag og hann væri saklaus en breyttu framburði sínum fyrir dómi á þann veg að þeir teldu félaga sinn hafa framið verknaðinn. Wilson dró síðar í land, kvaðst hafa verið undir pressu þar sem sér hefði verið tjáð að hann lægi sjálfur undir grun. Milgaard var fundinn sekur um glæpinn og dæmdur í lífstíðarfangelsi réttu ári eftir morðið, 31. janúar 1970. Hann áfrýjaði til hæstaréttar Kanada sem staðfesti dóm- inn tíu mánuðum síðar. Móðir Milgaards, Joyce, var alla tíð sannfærð um sak- leysi sonar síns og talaði máli hans óspart – en fyrir daufum eyrum. Lögfræðingar fjölskyldunnar fóru margsinnis fram á endurupptöku málsins en höfðu ekki erindi sem erfiði. Samkvæmt kanadískum lögum átti Milgaard möguleika á reynslulausn tíu árum eftir dóm- inn en ekki varð af því vegna þess að hann neitaði að iðrast gjörða sinna. Pattstaða virtist komin upp í málinu. Það var ekki fyrr en árið 1991, 21 ári eftir að Milgaard var dæmdur, að skriður komst á baráttu hans en þá tók þingmaðurinn Lloyd Axworthy málið upp á kanadíska þinginu. Sagði það afskræmingu á réttlætinu að saklaus maður hefði verið bak við lás og slá í 21 ár. Dómsmálaráðherra Kanada, Kim Campbell, sem síðar gegndi embætti forsætisráðherra, þverskallaðist við. Síðar gaf hún þá skýringu að lögfræðingar Milgaards hefðu stöðugt verið að bæta skjölum í bunkann og fyrir vikið hefði afgreiðsla málsins tafist. Einmitt. Á endanum gaf Campbell þó hæstarétti fyrirmæli um að taka málið upp að nýju. Ekki kom til nýrra réttarhalda því 14. apríl 1992 kvað hæstiréttur upp þann úrskurð að Milgaard hefði verið dæmdur á grundvelli vafasamra sönn- unargagna og óáreiðanlegs framburðar vitna. Eftir 23 ár í fangelsi var David Milgaard leystur úr haldi enda þótt hann væri ekki formlega sýknaður af glæpnum. Hann þurfti að bíða í fimm ár eftir því en árið 1997 leiddi DNA-rannsókn sakleysi hans endanlega í ljós. Tveimur árum síðar báðu yfirvöld í Saskatchewan- héraði Milgaard afsökunar og féllust á að greiða honum tíu milljónir Kanadadala í miskabætur. Sama ár hafði lögregla hendur í hári hins raunverulega morðingja, Larrys nokkurs Fishers, dæmds nauðgara, sem bjó steinsnar frá staðnum þar sem Miller fannst myrt árið 1969. DNA-rannsókn staðfesti sekt hans. Það var ekki í fyrsta skipti sem Fisher var nefndur í þessu samhengi en fyrrverandi eiginkona hans hafði tjáð lögreglu árið 1980 að hún grunaði bónda sinn um morð- ið á Gail Miller. Lögregla hafðist ekkert að í málinu. Þrjátíu ár liðu frá morðinu á Miller þangað til Fisher var gripinn. 23 þeirra sat hann inni fyrir ítrekaðar nauðganir – glæpi sem koma hefði mátt í veg fyrir. orri@mbl.is Sat saklaus í steininum í rúm 20 ár Larry Fisher náðist á endanum. ’ Það var ekki í fyrsta skipti sem Fis- her var nefndur í þessu samhengi en fyrrverandi eiginkona hans hafði tjáð lögreglu árið 1980 að hún grun- aði bónda sinn um morðið á Gail Miller. David Milgaard árið sem hann var látinn laus úr fangelsi. Á þessum degi 31. janúar 1969 og 1970 Hin myrta, Gail Miller. Þrjósk, Joyce Milgaard.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.