SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Qupperneq 29

SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Qupperneq 29
31. janúar 2010 29 strókurinn stóð upp úr jöklinum var ég á flugi yfir hlaupinu niðri á Skeiðarársandi og horfði til jökulsins án þess að vita að sprengingin var á þeim stað sem við vorum daginn áður. Allir voru sáttir. Morgunblaðið birti myndir á forsíðu og miðopnu blaðsins, Sjónvarpið og Stöð tvö voru líka með frá- bærar myndir. Ég gat klárað fótboltann um kvöldið. Það var ekkert smástoltur strákur sem átti fjall sem hét sama nafni og hann. En það hafði verið ákveðið að nefna fjallið Gjálp eft- ir tröllskessunni. Það er fallegt nafn og þjóðlegt. Ég er ekki viss um að Kólumbus hefði samþykkt að einhver annar hefði skírt eyjuna Hispaniola, sem hann fann 1492, Njólastaði eða einhverju öðru nafni eftir að hafa verið fyrstur til að stíga fæti á eyjuna. Kannski kemur fáninn undan jökli eftir ein- hver hundruð ára og á eftir að verða ráðgáta sagnfræðinga og valda rifrildi um hvað fjallið heitir. Við feðgarnir erum alveg sáttir við nafnið Gjálp – maður rífur ekki kjaft við tröllskessu – og hlæjum stundum að þessu uppátæki okkar, en í okkar huga heitir fjallið samt Darri. Ómar Ragnarsson, Sigmundur Arthúrsson og Ari Trausti Guðmundsson á nýju fjalli. Við fætur þeirra er fáninn með nöfnum allra leiðangursmanna og nafni fjallsins. Halldór Hreinsson og Jón Björnsson bíða með þyrluna í gangi. Þyrlan lendir á jökulbrúninni. Eyjan sem lent var á er efst til hægri. Ómar Ragnarsson stígur fyrsta skrefið á Gjálp?

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.